1Sendið landshöfðingjanum sauðaskattinn úr klettagjánum gegnum eyðimörkina til fjalls Síondóttur.2Eins og flöktandi fuglar, eins og ungar, fældir úr hreiðri, skulu Móabsdætur verða við vöðin á Arnon.3Legg nú ráð, veit hjálp, gjör skugga þinn um hábjartan dag sem nótt. Fel hina burtreknu, seg ekki til flóttamannanna.4Ljá hinum burtreknu úr Móab dvöl hjá þér. Ver þeim verndarskjól fyrir eyðandanum. Þegar kúgarinn er horfinn burt, eyðingunni linnir og undirokararnir eru farnir úr landinu,5þá mun veldisstóll reistur verða með miskunnsemi og á honum sitja með trúfesti í tjaldi Davíðs dómari, sem leitar réttinda og temur sér réttlæti.6Vér höfum heyrt drambsemi Móabs hann er mjög hrokafullur ofmetnað hans, drambsemi og ofsa, og hin marklausu stóryrði hans.7Þess vegna kveina nú Móabítar yfir Móab, allir kveina þeir. Yfir rúsínukökum Kír Hareset munu þeir andvarpa harla hnuggnir.8Því að akurlönd Hesbon eru fölnuð og víntré Síbma. Vín þeirra varpaði höfðingjum þjóðanna til jarðar. Vínviðarteinungarnir náðu til Jaser, villtust út um eyðimörkina. Greinar þeirra breiddu sig út, fóru yfir hafið.9Fyrir því græt ég með Jaser yfir víntrjám Síbma. Ég vökva þig með tárum mínum, Hesbon og Eleale! því að fagnaðarópum óvinanna laust yfir sumargróða þinn og vínberjatekju.10Fögnuður og kæti eru horfin úr aldingörðunum, og í víngörðunum heyrast engir gleðisöngvar né fagnaðarhljóð. Troðslumenn troða ekki vínber í vínþröngunum, ég hefi látið fagnaðaróp þeirra þagna.11Fyrir því titrar hjarta mitt sem gígjustrengur sökum Móabs og brjóst mitt sökum Kír Hares.12Og þó að Móab sýni sig á blóthæðinni og streitist við og fari inn í helgidóm sinn til að biðjast fyrir, þá mun hann samt engu til leiðar koma.13Þetta er það orð, sem Drottinn talaði um Móab fyrrum.14En nú talar Drottinn á þessa leið: Áður en þrjú ár eru liðin, slík sem ár kaupamanna eru talin, skal vegsemd Móabs með öllum hinum mikla mannfjölda fyrirlitin verða, en leifar munu eftir verða, lítilfenglegar, eigi teljandi.

16.2 Arnon 4Mós 21.26-28; Jós 12.2; 13.9-16
16.4 Elska útlendinginn 5Mós 10.18
16.5 Hásæti Davíðs Jes 9.5;: 11.3-4; Jer 23.5; 33.15 – reist 2Sam 7.13; Okv 25.5
16.6-12 Sjá Jer 48.29-33; sbr Sef 2.8
16.7 Rúsínukökum 2Sam 6.19; 1Kro 16.3; Jer 44.19; Hós 3.1; Ljl 2.5
16.14 Stakkaskipti Jes 10.25; 29.17