1Þér voruð eitt sinn dauðir vegna afbrota yðar og synda,2sem þér lifðuð í samkvæmt aldarhætti þessa heims, að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem nú starfar í þeim, sem ekki trúa.3Vér lifðum fyrrum allir eins og þeir í mannlegum girndum vorum. Þá lutum vér vilja holdsins og hugsana vorra og vorum að eðli til reiðinnar börn alveg eins og hinir.4En Guð er auðugur að miskunn. Af mikilli elsku sinni, sem hann gaf oss,5hefur hann endurlífgað oss með Kristi, þegar vér vorum dauðir vegna misgjörða vorra. Af náð eruð þér hólpnir orðnir.6Guð hefur uppvakið oss í Kristi Jesú og búið oss stað í himinhæðum með honum.7Þannig vildi hann á komandi öldum sýna hinn yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar með gæsku sinni við oss í Kristi Jesú.8Því að af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trú. Þetta er ekki yður að þakka. Það er Guðs gjöf.9Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því.10Vér erum smíð Guðs, skapaðir í Kristi Jesú til góðra verka, sem hann hefur áður fyrirbúið, til þess að vér skyldum leggja stund á þau.11Þér skuluð því minnast þessa: Þér voruð forðum fæddir heiðingjar og kallaðir óumskornir af mönnum, sem kalla sig umskorna og eru umskornir á holdi með höndum manna.12Sú var tíðin, er þér voruð án Krists, lokaðir úti frá þegnrétti Ísraelsmanna. Þér stóðuð fyrir utan sáttmálana og fyrirheit Guðs, vonlausir og guðvana í heiminum.13Nú þar á móti eruð þér, sem eitt sinn voruð fjarlægir, orðnir nálægir í Kristi, fyrir blóð hans.14Því að hann er vor friður. Hann gjörði báða að einum og reif niður vegginn, sem skildi þá að, fjandskapinn milli þeirra. Með líkama sínum15afmáði hann lögmálið með boðorðum þess og skipunum til þess að setja frið og skapa í sér einn nýjan mann úr báðum.16Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð á krossinum, þar sem hann deyddi fjandskapinn.17Og hann kom og boðaði frið yður, sem fjarlægir voruð, og frið hinum, sem nálægir voru.18Því að fyrir hann eigum vér hvorir tveggja aðgang til föðurins í einum anda.19Þess vegna eruð þér ekki framar gestir og útlendingar, heldur eruð þér samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs.20Þér eruð bygging, sem hefur að grundvelli postulana og spámennina, en Krist Jesú sjálfan að hyrningarsteini.21Í honum er öll byggingin samantengd og vex svo, að hún verður heilagt musteri í Drottni.22Í honum verðið þér líka bústaður handa Guði fyrir anda hans.

2.1-10 Hólpin af náð Tít 3.3-7
2.1 Dauð vegna afbrota Ef 2.5; Kól 2.13; Lúk 15.24,32; Róm 6.13
2.2 Þér lifðuð Ef 2.11; 5.8; Kól 3.7; Tít 3.3 – valdhafinn Ef 6.12; 2Kor 4.4; Jóh 12.31
2.3 Undir dómi Guðs Róm 1.18; 2.3; 3.9,20,23
2.4 Miskunn Guðs 1Pét 1.3 – elska Guðs Jóh 3.16-17 – dauð Ef 2.1+
2.5 Endurlífga Lúk 15.24,32; Róm 6.13 – hólpin Ef 2.8; Kól 2.12; Post 15.11 – hjálpræðið í vændum Róm 6.3-11; 8.11,17-18
2.6 Reisa upp Kól 3.1-4
2.8 Hólpin af náð Post 15.11; Róm 3.24; 9.16; Gal 2.16; Ef 2.5 – Guðs gjöf Jóh 4.10; Heb 6.4
2.9 Ekki byggt á verkum Róm 3.28; 2Tím 1.9; Tít 3.5 – miklast 1Kor 1.29; Gal 6.14
2.10 Sköpuð í Kristi 2Kor 5.17; Gal 6.15 – til góðra verka Tít 2.14
2.11 Upprunalega Ef 2.2+ – heiðingjar Róm 11.17 – umskurn Kól 2.11
2.12 Lokuð úti Kól 1.21; Ef 4.18 – þegnréttur Ísraelsmanna Róm 9.4-5 – vonlausir 1Þess 4.13 – guðvana Post 17.22-23
2.13 Fjarlæg … nálæg Jes 57.19; Ef 2.17 – fjarlægð Post 2.39 – blóð Krists Ef 1.7; Kól 1.20; Heb 9.14+ ; Róm 3.25; 5.9
2.14-16 Eind Esk 37.17; 1Kor 12.13; Gal 3.28 – friður Jes 9.6; Matt 5.9; Kól 1.20
2.15 Afmáði lögmálið Kól 2.14 – nýr maður Kól 3.10+
2.16 Sætti Róm 5.10-11; 11.15; 2Kor 5.18-20; Kól 1.20-22
2.17 Yður sem fjarlæg voruð … Jes 52.7; 57.19; Sak 9.10 – boðaði frið Ef 6.15
2.18 Nálgast föðurinn Ef 3.12; Róm 5.2; 8.15; Heb 4.16; 7.25; 10.19-20; 1Pét 3.18
2.19 Heimamenn Guðs Ef 3.6 – samþegnar hinna heilögu Gal 4.26; Fil 3.20; Heb 12.22-23
2.20 Grundvöllur kirkjunnar 1Kor 3.9-11; Matt 16.18; Opb 21.14 – hyrningarsteinn Jes 28.16; Róm 9.33; 10.11; 1Kor 3.11; 1Pét 2.4-8
2.21 Kirkjan Ef 4.11-16; Kól 2.19 – musteri Guðs 1Kor 3.16; 2Kor 6.16; Jóh 2.21
2.22 Bústaður Guðs 1Pét 2.5