1Þetta eru síðustu orð Davíðs: Svo mælti Davíð Ísaíson, svo mælti maðurinn, er hátt var settur, hinn smurði Jakobs Guðs, ljúflingur Ísraels ljóða.2Andi Drottins talaði í mér og hans orð er á minni tungu.3Ísraels Guð talaði, bjarg Ísraels mælti við mig: Sá sem ríkir yfir mönnum með réttvísi, sá sem ríkir í ótta Guðs,4hann er eins og dagsbirtan, þegar sólin rennur upp á heiðríkju-morgni, þegar grasið sprettur í glaðasólskini eftir regn.5Já, er ekki hús mitt svo fyrir Guði? Því að hann hefir gjört við mig eilífan sáttmála, ákveðinn í öllum greinum og áreiðanlegan. Já, allt sem verður mér til heilla og gleði, skyldi hann ekki veita því vöxt?6En varmennin, þau eru öll eins og þyrnar, sem út er kastað, því að enginn tekur á þeim með hendinni.7Hver, sem rekst á þau, vopnast járni og spjótskafti, og í eldi munu þau brennd verða til kaldra kola.8Þetta eru nöfnin á köppum Davíðs: Ísbaal Hakmóníti, höfðingi hinna þriggja. Hann veifaði spjóti sínu yfir átta hundruð vegnum í einu.9Honum næstur er, meðal kappanna þriggja, Eleasar Dódóson, Ahóhíti. Hann var með Davíð í Pas Dammím, en Filistar höfðu safnast þar saman til orustu. En er Ísraelsmenn hörfuðu undan,10stóð hann fastur fyrir og barði á Filistum, uns hann varð þreyttur í hendinni, og hönd hans var kreppt um sverðið, og Drottinn veitti mikinn sigur á þeim degi. Og liðið sneri aftur með honum aðeins til rána.11Næstur honum er Samma Ageson, Hararíti. Filistar söfnuðust saman og fóru til Lekí, en þar var akurspilda, alsprottin flatbaunum. En er fólkið flýði fyrir Filistum,12nam hann staðar í spildunni miðri, náði henni og vann sigur á Filistum. Veitti Drottinn þannig mikinn sigur.13Einu sinni fóru þrír af höfðingjunum þrjátíu og komu til Davíðs í hamrinum, í Adúllamvíginu, en flokkur af Filistum lá í herbúðum í Refaímdal.14Þá var Davíð í víginu, en varðsveit Filista var þá í Betlehem.15Þá þyrsti Davíð og hann sagði: Hver vill sækja mér vatn í brunninn í Betlehem, sem er þar við hliðið?16Þá brutust kapparnir þrír gegnum herbúðir Filista, jusu vatni úr brunninum í Betlehem, sem þar er við hliðið, tóku það og færðu Davíð. En hann vildi ekki drekka það, heldur dreypti því Drottni til handa17og mælti: Drottinn láti það vera fjarri mér að gjöra slíkt! Get ég drukkið blóð þeirra manna, sem stofnuðu lífi sínu í hættu með því að fara? og hann vildi ekki drekka það. Þetta gjörðu kapparnir þrír.18Abísaí, bróðir Jóabs, sonur Serúju, var fyrir hinum þrjátíu. Hann veifaði spjóti sínu yfir þrjú hundruð vegnum og var frægur meðal hinna þrjátíu.19Af hinum þrjátíu var hann í heiðri hafður og var foringi þeirra, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki.20Benaja Jójadason, hraustmenni, frægur fyrir afreksverk sín, var frá Kabseel. Hann drap báða sonu Aríels frá Móab. Hann sté ofan í brunn og drap þar ljón einn dag, er snjóað hafði.21Hann drap og egypskan mann tröllaukinn. Egyptinn hafði spjót í hendi, en hann fór á móti honum með staf, reif spjótið úr hendi Egyptans og drap hann með hans eigin spjóti.22Þetta gjörði Benaja Jójadason. Hann var frægur meðal þrjátíu kappanna.23Af hinum þrjátíu var hann í heiðri hafður, en til jafns við þá þrjá komst hann ekki. Davíð setti hann yfir lífvörð sinn.24Meðal hinna þrjátíu voru: Asahel, bróðir Jóabs, Elkanan Dódóson frá Betlehem,25Samma frá Haród, Elíka frá Haród,26Heles frá Pelet, Íra Íkkesson frá Tekóa,27Abíeser frá Anatót, Síbbekaí frá Húsa,28Salmón frá Ahó, Maharaí frá Netófa,29Heled Baanason frá Netófa, Íttaí Ríbaíson frá Gíbeu í Benjamíns ættkvísl,30Benaja frá Píraton, Híddaí frá Nahale Gaas,31Abi Albon frá Bet Araba, Asmavet frá Bahúrím,32Eljahba frá Saalbón, Jasen Gúníti,33Jónatan Sammason frá Harar, Ahíam Sararsson frá Arar,34Elífelet Ahasbaíson frá Maaka, Elíam Akítófelsson frá Gíló,35Hesró frá Karmel, Paaraí Arkíti,36Jígal Natansson frá Sóba, Baní frá Gað,37Selek Ammóníti, Naharaí frá Beerót, skjaldsveinn Jóabs Serújusonar,38Íra frá Jattír, Gareb frá Jattír,39Úría Hetíti. Til samans þrjátíu og sjö.

23.1 Síðustu orð Davíðs 1Kon 2.1-9; sbr 1Mós 49
23.2 Talaði af munni mínum Matt 22.43
23.3 Klettur Ísraels Slm 28.1+
23.5 Ævarandi sáttmáli 2Sam 7.12 – lét dafna Jes 61.11
23.6-7 Þyrnar Jes 33.12; sbr Jóh 15.16
23.10 Mikill sigur 2Sam 23.12; 1Sam 11.13; 19.5
23.16 Inn í herbúðir óvinanna 1Sam 26.6
23.20 Benaja 2Sam 20.23; 1Kon 1.26,36; 2.25,35,46
23.21 Með staf 1Sam 17.43 – með hans eigin spjóti 1Sam 17.51
23.24 Asahel 2Sam 2.18-23
23.39 Úría Hetíti 2Sam 11.3-27