1Í sama mund komu einhverjir og sögðu honum frá Galíleumönnunum, að Pílatus hefði blandað blóði þeirra í fórnir þeirra.2Jesús mælti við þá: Haldið þér, að þessir Galíleumenn hafi verið meiri syndarar en allir aðrir Galíleumenn, fyrst þeir urðu að þola þetta?3Nei, segi ég yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir farast eins.4Eða þeir átján, sem turninn féll yfir í Sílóam og varð að bana, haldið þér, að þeir hafi verið sekari en allir þeir menn, sem í Jerúsalem búa?5Nei, segi ég yður, en ef þér gjörið ekki iðrun, munuð þér allir farast eins.6En hann sagði þessa dæmisögu: Maður nokkur átti fíkjutré gróðursett í víngarði sínum. Hann kom og leitaði ávaxtar á því og fann ekki.7Hann sagði þá við víngarðsmanninn: Í þrjú ár hef ég nú komið og leitað ávaxtar á fíkjutré þessu og ekki fundið. Högg það upp. Hví á það að spilla jörðinni?8En hann svaraði honum: Herra, lát það standa enn þetta ár, þar til ég hef grafið um það og borið að áburð.9Má vera að það beri ávöxt síðan. Annars skaltu höggva það upp.10Jesús var að kenna á hvíldardegi í samkundu einni.11Þar var þá kona nokkur. Í átján ár hafði hún verið haldin sjúkleiks anda og var kreppt og alls ófær að rétta sig upp.12Jesús sá hana og kallaði hana til sín og sagði við hana: Kona, þú ert laus við sjúkleik þinn!13Þá lagði hann hendur yfir hana, og jafnskjótt réttist hún og lofaði Guð.14En samkundustjórinn reiddist því, að Jesús læknaði á hvíldardegi, og mælti til fólksins: Sex daga skal vinna, komið þá og látið lækna yður og ekki á hvíldardegi.15Drottinn svaraði honum: Hræsnarar, leysir ekki hver yðar á hvíldardegi naut sitt eða asna af stalli og leiðir til vatns?16En þessi kona, sem er dóttir Abrahams og Satan hefur fjötrað full átján ár, mátti hún ekki leyst verða úr fjötrum þessum á hvíldardegi?17Við þessi orð hans urðu allir mótstöðumenn hans sneyptir, en allur lýður fagnaði yfir öllum þeim dýrðarverkum, er hann gjörði.18Hann sagði nú: Hverju er Guðs ríki líkt? Við hvað á ég að líkja því?19Líkt er það mustarðskorni, sem maður tók og sáði í jurtagarð sinn. Það óx og varð tré og fuglar himins hreiðruðu sig í greinum þess.20Og aftur sagði hann: Við hvað á ég að líkja Guðs ríki?21Líkt er það súrdeigi, er kona tók og fól í þrem mælum mjöls, uns það sýrðist allt.22Og hann hélt áfram til Jerúsalem, fór um borgir og þorp og kenndi.23Einhver sagði við hann: Herra, eru þeir fáir, sem hólpnir verða? Hann sagði við þá:24Kostið kapps um að komast inn um þröngu dyrnar, því margir, segi ég yður, munu reyna að komast inn og ekki geta.25Þegar húsbóndinn stendur upp og lokar dyrum og þér takið þá að standa fyrir utan og knýja á dyr og segja: Herra, ljúk þú upp fyrir oss! mun hann svara yður: Ég veit ekki, hvaðan þér eruð.26Þá munuð þér segja: Vér höfum þó etið og drukkið með þér, og þú kenndir á götum vorum.27Og hann mun svara: Ég segi yður, ég veit ekki, hvaðan þér eruð, farið frá mér allir illgjörðamenn!28Þar verður grátur og gnístran tanna, er þér sjáið Abraham, Ísak og Jakob og alla spámennina í Guðs ríki, en yður út rekna.29Þá munu menn koma frá austri og vestri, frá norðri og suðri og sitja til borðs í Guðs ríki.30En til eru síðastir, er verða munu fyrstir, og til eru fyrstir, er verða munu síðastir.31Á þeirri stundu komu nokkrir farísear og sögðu við hann: Far þú og hald á brott héðan, því að Heródes vill drepa þig.32Og hann sagði við þá: Farið og segið ref þeim: Í dag og á morgun rek ég út illa anda og lækna og á þriðja degi mun ég marki ná.33En mér ber að halda áfram ferð minni í dag og á morgun og næsta dag, því að eigi hæfir, að spámaður bíði dauða annars staðar en í Jerúsalem.34Jerúsalem, Jerúsalem! Þú, sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum eins og hænan ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi.35Hús yðar verður í eyði látið. Ég segi yður: Þér munuð eigi sjá mig, fyrr en þar er komið, að þér segið: Blessaður sé sá er kemur, í nafni Drottins!

13.1 Galíleumenn drepnir Post 5.37
13.2 Þjáningar og syndir Jóh 9.2-3
13.3 Ógnun dómsins Slm 7.12
13.6 Fíkjutré án ávaxtar Hab 3.17; Matt 21.19; Mrk 11.13; Lúk 3.8-9; 6.43-44
13.8 Enn þetta ár 2Pét 3.9,15
13.10 Í samkundunni á hvíldardegi Lúk 6.6-11; sbr 14.1-6
13.13 Lagði hendur yfir hana Matt 9.18+ ; Mrk 5.23+ – lofa Guð Lúk 2.20+
13.14 Lækna á hvíldardegi Lúk 6.7,9 og hlst.; 14.4; Jóh 5.16; 7.23; 9.14,16; sbr Matt 12.1+ – sex daga skal vinna 2Mós 20.9-10; 5Mós 5.13-14
13.15 Undantekningar Matt 12.11; Lúk 14.5
13.16 Dóttir Abrahams Lúk 19.9 – Satan Mrk 1.13+ – leyst á hvíldardegi Mrk 3.4
13.18-21 Hlst. Matt 13.31-33; Mrk 4.30-32
13.18 Guðs ríki Matt 3.2+ ; 6.10+
13.19 Í greinum þess Dan 4.9,18; Esk 17.23; 31.6
13.22-30 Hlst. Matt 7.13-14,21-23
13.22 Til Jerúsalem Lúk 9.51; 17.11; 19.28
13.24 Kostið kapps um Lúk 16.16; 1Tím 6.12 – þröngar dyr sbr Mrk 10.25
13.27 Farið frá mér Slm 6.9
13.28 Grátur og gnístran tanna Matt 8.12+
13.29 Frá austri og vestri Slm 107.3; sbr Jes 2.2-5; 25.6-8; 60; 66.18-21 – sitja til borðs í Guðs ríki Jes 25.6; Lúk 14.15-24; 22.16,18,30; sbr Lúk 16.22
13.31-35 Hlst. Matt 23.37-39
13.31 Farísear hlynntir Jesú Lúk 7.36; 11.37; 14.1
13.32 Í dag Lúk 2.11+
13.33 Jesú líkt við spámann Matt 16.14+ – píslavætti spámannanna Lúk 6.23+
13.35 Lagt í rúst Mík 3.12; Jer 7.1-15; 26; Esk 8-11; sbr Lúk 21.6 – blessaður sé sá … Slm 118.26; Lúk 19.38 og hlst.