1Þegar þeir nálgast Jerúsalem og koma til Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sendir hann tvo lærisveina sína2og segir við þá: Farið í þorpið hér framundan ykkur. Um leið og þið komið þangað, munuð þið finna fola bundinn, sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann, og komið með hann.3Ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna gjörið þið þetta? Þá svarið: Herrann þarf hans við, hann sendir hann jafnskjótt aftur hingað.4Þeir fóru og fundu folann bundinn við dyr úti á strætinu og leystu hann.5Nokkrir sem stóðu þar, sögðu við þá: Hvers vegna eruð þið að leysa folann?6Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt, og þeir létu þá fara.7Síðan færðu þeir Jesú folann og lögðu á hann klæði sín, en hann settist á bak.8Og margir breiddu klæði sín á veginn, en aðrir lim, sem þeir höfðu skorið á völlunum.9Þeir sem á undan fóru og eftir fylgdu, hrópuðu: Hósanna! Blessaður sé sá sem kemur, í nafni Drottins!10Blessað sé hið komandi ríki föður vors Davíðs! Hósanna í hæstum hæðum!11Hann fór inn í Jerúsalem og í helgidóminn. Þar leit hann yfir allt, en þar sem komið var kvöld, fór hann til Betaníu með þeim tólf.12Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi hann hungurs.13Þá sá hann álengdar laufgað fíkjutré og fór að gá, hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því, fann hann ekkert nema blöð, enda var ekki fíknatíð.14Hann sagði þá við tréð: Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu! Þetta heyrðu lærisveinar hans.15Þeir komu til Jerúsalem, og hann gekk í helgidóminn og tók að reka út þá, sem voru að selja þar og kaupa, og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna.16Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn.17Og hann kenndi þeim og sagði: Er ekki ritað: Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir? En þér hafið gjört það að ræningjabæli.18Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum, því að allur lýðurinn hreifst mjög af kenningu hans.19Þegar leið að kvöldi, fóru þeir úr borginni.20Árla morguns fóru þeir hjá fíkjutrénu og sáu, að það var visnað frá rótum.21Pétur minntist þess, sem gerst hafði, og segir við hann: Rabbí, sjáðu! fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað.22Jesús svaraði þeim: Trúið á Guð.23Sannlega segi ég yður: Hver sem segir við fjall þetta: Lyft þér upp, og steyp þér í hafið, og efar ekki í hjarta sínu, heldur trúir, að svo fari sem hann mælir, honum mun verða að því.24Fyrir því segi ég yður: Hvers sem þér biðjið í bæn yðar, þá trúið, að þér hafið öðlast það, og yður mun það veitast.25Og þegar þér eruð að biðja, þá fyrirgefið, ef yður þykir nokkuð við einhvern, til þess að faðir yðar á himnum fyrirgefi einnig yður misgjörðir yðar.26Ef þér fyrirgefið ekki, mun faðir yðar á himnum ekki heldur fyrirgefa misgjörðir yðar.27Þeir koma aftur til Jerúsalem, og þegar hann var á gangi í helgidóminum, koma til hans æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir28og segja við hann: Með hvaða valdi gjörir þú þetta? Hver gaf þér það vald, að þú gjörir þetta?29Jesús sagði við þá: Ég vil leggja eina spurningu fyrir yður. Svarið henni, og ég mun segja yður, með hvaða valdi ég gjöri þetta.30Var skírn Jóhannesar frá himni eða frá mönnum? Svarið mér!31Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: Ef vér svörum: Frá himni, spyr hann: Hví trúðuð þér honum þá ekki?32Eða ættum vér að svara: Frá mönnum? það þorðu þeir ekki fyrir lýðnum, því allir töldu, að Jóhannes hefði verið sannur spámaður.33Þeir svöruðu Jesú: Vér vitum það ekki. Jesús sagði við þá: Ég segi yður þá ekki heldur, með hvaða valdi ég gjöri þetta.

11.1-11 Hlst. Matt 21.1-11; Lúk 19.28-40; Jóh 12.12-19
11.1 Betanía Matt 21.17+ – Olífjallið Sak 14.4; Mrk 13.3 og hlst.; 14.26 og hlst.; Lúk 21.37; Jóh 8.1; Post 1.12
11.2 Foli Sak 9.9
11.9 Sbr Slm 118.25-26; Matt 21.15; 23.39
11.10 Davíð Lúk 1.32-33; Post 2.29; sbr Matt 1.6+
11.12-14 Hlst. Matt 21.18-19
11.13 Fíkjutré Lúk 13.6 – án ávaxta Jer 8.13; Hós 9.16-17; Jl 1.7; Mík 7.1
11.14 Fíkjutrénu formælt Mrk 11.20
11.15-19 Hlst. Matt 21.12-17; Lúk 19.45-48; Jóh 2.13-22
11.17 Bænahús Jes 56.7 – ræningjabæli Jer 7.11
11.18 Ráðagjörðir gegn Jesú Matt 12.14+ ; Mrk 14.1; Lúk 20.19; 22.2 – óttuðust fólkið Matt 14.5+
11.20-26 Hlst. Matt 21.20-22
11.20 Fíkjutrénu formælt Mrk 11.14
11.23 Trú, sem flytur fjöll Matt 17.20 ; sbr Mrk 9.23
11.24 Bæn og trú Matt 18.19
11.25 Faðir ykkar á himnum Matt 6.9+ – fyrirgefning Matt 6.14; Ef 4.32; Kól 3.13 – á móti einhverjum Matt 5.23; Opb 2.4,14,20
11.27-33 Hlst. Matt 21.23-27; Lúk 20.1-8
11.27 Æðstu prestar, fræðimenn og öldungar Matt 16.21; 27.41; Mrk 8.31; 14.43,53; 15.1; Lúk 9.22; 20.1; 22.66
11.30 Skírn Jóhannesar Matt 3.6+
11.31 Frá Guði Lúk 11.16+ – Jóhannesi skírara hafnað Matt 21.32; Lúk 7.30
11.32 Óttuðust fólkið Matt 14.5+ ; Mrk 14.2