1Á þeim degi mun þetta kvæði sungið verða í Júdalandi: Vér eigum rammgerva borg. Hjálpræði sitt gjörir hann að múrum og varnarvirki.2Látið upp hliðin, svo að réttlátur lýður megi inn ganga, sá er trúnaðinn varðveitir3og hefir stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið, því að þeir treysta á þig.4Treystið Drottni æ og ætíð, því að Drottinn, Drottinn er eilíft bjarg.5Hann niðurlægir þá, sem byggja á hæðum. Háreistu borginni steypir hann niður, hann steypir henni til jarðar og leggur hana í duftið.6Fætur troða hana niður, fætur fátækra, iljar umkomulausra.7Vegur hins réttláta er sléttur, götu hins réttláta ryður þú.8„Já, á vegi dóma þinna, Drottinn, væntum vér þín; þitt nafn og þína minning þráir sála vor.“9Af hjarta þrái ég þig á næturnar, já, með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér. Þegar dómar þínir birtast á jörðu, þá læra byggjendur jarðríkis réttlæti.10Sé hinum óguðlegu sýnd vægð, læra þeir eigi réttlæti. Þá fremja þeir órétt í því landi, þar sem réttlæti skal ríkja, og gefa ekki gætur að hátign Drottins.11Drottinn, hönd þín er á lofti, en þeir sjá það ekki. Lát þá sjá vandlæti þitt lýðsins vegna og blygðast sín, já, eldur eyði óvinum þínum.12Drottinn, veit þú oss frið, því að þú hefir látið oss gjalda allra vorra verka.13Drottinn, Guð vor, aðrir drottnar en þú höfðu fengið yfirráð yfir oss, en nú viljum vér eingöngu lofa þitt nafn.14Dauðir lifna ekki, vofur rísa ekki upp. Þú vitjaðir þeirra og eyddir þeim og afmáðir alla minningu um þá.15Þú hefir gjört þjóðina stóra, Drottinn, þú hefir gjört þjóðina stóra, þú hefir gjört þig dýrlegan, þú hefir fært út öll takmörk landsins.16Drottinn, í neyðinni leituðu þeir þín, þeir stundu upp andvörpum, er þú hirtir þá.17Eins og þunguð kona, sem komin er að því að fæða, hefir hríðir og hljóðar í harmkvælum sínum, eins vorum vér fyrir þínu augliti, Drottinn!18Vér vorum þungaðir, vér höfðum hríðir en þegar vér fæddum, var það vindur. Vér höfum eigi aflað landinu frelsis, og heimsbúar hafa eigi fæðst.19Menn þínir, sem dánir eru, skulu lifna, lík þeirra rísa upp. Vaknið og hefjið fagnaðarsöng, þér sem búið í duftinu, því að döggin þín er dögg ljóssins, og jörðin skal fæða þá, sem dauðir eru.20Gakk þú, þjóð mín, inn í herbergi þitt og lyk aftur dyrunum á eftir þér. Fel þig skamma hríð, uns reiðin er liðin hjá.21Því sjá, Drottinn gengur út frá aðseturstað sínum til þess að hegna íbúum jarðarinnar fyrir misgjörðir þeirra. Jörðin mun birtast láta blóðið, sem á henni hefir verið úthellt, og hún mun ekki lengur hylja þá, sem á henni hafa myrtir verið.

26.2 Hliðin opin Slm 24.3-4; 118.19-20
26.3 Trúfastur Guð Jes 25.1
26.4 Treystið Drottni Slm 9.11+ – bjarg Slm 28.1+
26.5 Hann lítillækkar … Jes 2.12-17; Jer 49.15-16; 50.31-32; Ób 3-4; Okv 16.5,18
26.8 Væntum vér þín Jes 25.9
26.9 Ég þrái þig Slm 42.2; 63.2 – um nætur Slm 77.3 – læra réttlæti Jes 51.5
26.10 Misnota vægð Guðs Préd 8.11
26.11 Sjá ekki verk Guðs Jes 5.12 – ákafi Drottins Jes 9.7; 37.32
26.12 Oss hefur hlotnast sbr Slm 90.17; Fil 2.13
26.15 Gert þig dýrlegan 2Mós 14.4,17; Esk 28.22
26.17 Hríðir Jes 13.8; Matt 24.8
26.19 Dánir lifna Jes 25.8; Esk 37; Dan 12.2; 1Kor 15.12-56 – dögg Jes 18.4; 1Mós 27.28; Hós 14.6; Slm 133.3; Okv 19.12; sbr Hós 6.3; Slm 110.3 – ljóssins Slm 36.10; 56.14; Job 33.28,30
26.20 Skjól 1Mós 7.16b; 2Mós 12.22b-23 – uns reiðin er liðin hjá Jes 10.25; Matt 24.22
26.21 Blóð saklausra 1Mós 4.10; Slm 106.38 – jörðin afhjúpr blóðið Job 16.18