1Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, skal Ísrael segja2hefði það ekki verið Drottinn sem var með oss, þegar menn risu í móti oss,3þá hefðu þeir gleypt oss lifandi, þegar reiði þeirra bálaðist upp í móti oss.4Þá hefðu vötnin streymt yfir oss, elfur gengið yfir oss,5þá hefðu gengið yfir oss hin beljandi vötn.6Lofaður sé Drottinn, er ekki gaf oss tönnum þeirra að bráð.7Sál vor slapp burt eins og fugl úr snöru fuglarans. Brast snaran, burt sluppum vér.8Hjálp vor er í nafni Drottins, skapara himins og jarðar.

124.1 Hefði Drottinn ekki … Slm 94.17 – með oss Slm 118.13 – skal Ísrael segja Slm 118.2; 129.1
124.2 Móti oss Slm 3.2
124.3 Gleypt oss Slm 35.25; Jer 51.34; Okv 1.12
124.4-5 Beljandi vötn Slm 18.5; 32.6; 42.8; 69.2-3; Jes 8.7-8
124.6 Lofaður sé Drottinn Slm 28.6+
124.7 Úr snöru Slm 91.3; 107.20; Okv 6.5; sbr Slm 25.15+
124.8 Drottin er hjálp vor Slm 20.8; 33.21; Okv 18.10 – skapari himins og jarðar Slm 121.2+