1Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:2Fyrir því veita hugsanir mínar mér andsvör og af því að það sýður í mér:3Ég verð að hlusta á háðulegar ávítur, en andi minn gefur mér skilning að svara.4Veist þú, að svo hefir það verið frá eilífð, frá því er menn voru settir á jörðina,5að fögnuður óguðlegra er skammær og að gleði hins guðlausa varir örskotsstund?6Þó að sjálfbirgingskapur hans nemi við himin og höfuð hans nái upp í skýin,7þá verður hann þó eilíflega að engu eins og hans eigin saur, þeir, sem sáu hann, segja: Hvar er hann?8Hann líður burt eins og draumur, svo að hann finnstekki, og hverfur eins og nætursýn.9Augað, sem á hann horfði, sér hann eigi aftur, og bústaður hans lítur hann aldrei framar.10Börn hans sníkja á snauða menn, og hendur þeirra skila aftur eigum hans.11Þótt bein hans séu full af æskuþrótti, leggjast þau samt með honum í moldu.12Þótt hið illa sé honum sætt í munni, þótt hann feli það undir tungu sinni,13þótt hann treini sér það og vilji ekki sleppa því og haldi því eftir í miðjum gómnum,14þá breytist þó fæðan í innýflum hans, í nöðrugall í kviði honum.15Auð gleypti hann hann verður að æla honum aftur, Guð keyrir hann úr kviði hans.16Nöðrueitur saug hann, tunga eiturormsins deyðir hann.17Hann má ekki gleðjast yfir lækjum, yfir rennandi ám hunangs og rjóma.18Hann lætur af hendi aflaféð og gleypir það eigi, auðurinn sem hann græddi, veitir honum eigi eftirvænta gleði.19Því að hann kúgaði snauða og lét þá eftir hjálparlausa, sölsaði undir sig hús, en byggði ekki.20Því að hann þekkti enga ró í maga sínum, þó fær hann eigi forðað því, sem honum er dýrmætast.21Ekkert komst undan græðgi hans, fyrir því er velsæld hans eigi varanleg.22Þótt hann hafi allsnægtir, kemst hann í nauðir, allt magn mæðunnar kemur yfir hann.23Þá verður það: Til þess að fylla kvið hans sendir Guð í hann sína brennandi reiði og lætur mat sínum rigna yfir hann.24Flýi hann fyrir járnvopnunum, þá borar eirboginn hann í gegn.25Hann dregur örina út, þá kemur hún út um bakið, og hinn blikandi oddur kemur út úr galli hans skelfing grípur hann.26Allur ófarnaður er geymdur auðæfum hans, eldur, sem enginn blæs að, eyðir honum, hann etur það, sem eftir er í tjaldi hans.27Himinninn afhjúpar misgjörð hans, og jörðin gjörir uppreisn í móti honum.28Gróði húss hans fer í útlegð, rennur burt í allar áttir á degi reiðinnar.29Þetta er óguðlegs manns hlutskipti frá Guði og arfleifð sú, sem honum er úthlutuð af hinum Almáttka.

20.5 Skammær gleði Job 18.5-21; Slm 37; 73
20.6 Nemi við ský 1Mós 11.4; Jes 14.13-14; Dan 4.11,20
20.8 Líður burt Slm 73.20; 90.5
20.12-14 Sætt í munni, slæmt í maga Esk 3.3; Opb 10.9-10
20.16 Nöðrueitur 5Mós 32.32-33; Slm 58.5; Jak 3.8
20.17 Streymandi mjólk Job 29.6
20.19 Sölsaði undir sig Mrk 12.40
20.23 Sendir reiði sína Lúk 12.19-20
20.24 Hvergi skjól Jes 24.18; Am 5.19
20.25 Skelfing Job 6.4+
20.26 Engin blæs að Dan 2.34,45
20.28 Flóð skolar burt Sef 1.18; Okv 11.4
20.29 Hlutur guðleysingjans Job 27.13; Opb 21.8; sbr 1Kor 6.9-10