1Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Ég sá körfu með sumarávöxtum.2Þá sagði hann: Hvað sér þú, Amos? Ég svaraði: Körfu með sumarávöxtum. Þá sagði Drottinn við mig: Endirinn er kominn yfir lýð minn Ísrael, ég vil eigi lengur umbera hann.3Og musterissöngmeyjarnar skulu kveina á þeim degi segir Drottinn Guð ._ Líkin eru mörg. Alls staðar fleygja menn þeim út í kyrrþey!4Heyrið þetta, þér sem sundur merjið hina fátæku og ætlið að gjöra út af við alla aumingja í landinu,5sem segið: Hvenær mun tunglkomuhátíðin líða, svo að vér megum selja korn, og hvíldardagurinn, svo að vér megum opna kornhlöðurnar? sem minnkið mælinn og hækkið verðið og falsið svikavogina,6og kaupið hina snauðu fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó, sem segið: Vér seljum þeim aðeins úrganginn úr korninu.7Drottinn hefir svarið við vegsemd Jakobs: Aldrei skal ég gleyma öllu því, er þeir hafa gjört.8Hlaut ekki jörðin að nötra af slíku og allir þeir, sem þar búa, að verða sorgbitnir, svo að hún hófst upp alls staðar eins og Níl-fljótið og lækkaði eins og fljótið á Egyptalandi?9Á þeim degi, segir Drottinn Guð vil ég láta sólina ganga til viðar um miðjan dag og senda myrkur yfir landið á ljósum degi.10Ég vil snúa hátíðum yðar í sorg og öllum ljóðum yðar í harmkvæði, klæða allar mjaðmir í sorgarbúning og gjöra öll höfuð sköllótt. Ég læt það verða eins og sorg eftir einkason og endalok þess sem beiskan dag.11Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn Guð, að ég mun senda hungur inn í landið, ekki hungur eftir brauði né þorsta eftir vatni, heldur eftir því að heyra orð Drottins,12svo að menn skulu reika frá einu hafinu til annars og renna frá norðri til austurs til þess að leita eftir orði Drottins. En þeir skulu ekki finna það.13Á þeim degi skulu fríðar meyjar og æskumenn vanmegnast af þorsta.14Þeir er sverja við vansæmd Samaríu og segja: Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Dan! og: Svo sannarlega sem Guð þinn lifir, Beerseba! þeir skulu falla og ekki framar á fætur rísa.

8.1 Karfa með ávöxtum Jer 24.1
8.5 Nýtt tungl 1Sam 20.5,24; Jes 1.13-14 – hvíldardagur Neh 10.32; 13.15 – falsa vigtina 3Mós 19.35-36; 5Mós 25.13-16; Hós 12.8; Mík 6.11
8.6 Fyrir eina ilskó Am 2.6
8.7 Drottinn hefur svarið Am 6.8+ – Guð gleymir ekki Hós 7.2+
8.9 Á þeim degi Hós 1.5+ – myrkur Jes 13.10; Jl 2.2; Sef 1.15; Mrk 15.33 og hlst.
8.10 Sorg Jer 48.37; Esk 7.18 – eftir einbirni Jer 6.26; Sak 12.10
8.11 Hungur sbr Am 4.6; 5Mós 8.3
8.12 Reika 5Mós 28.28-29 – leita að 5Mós 30.11-13; Jes 55.6 – finna ekki Hós 5.6+ ; Slm 74.9; Okv 1.28; Ljl 5.6
8.14 Syndasekt Samaríu Hós 8.5-6 – Dan 1Kon 12.30; Beerseba Am 5.5+