1Þú skalt ekki fórna Drottni Guði þínum nokkru því nauti eða sauð, sem lýti er á, einhver slæmur galli, því að það er andstyggilegt Drottni Guði þínum.2Ef hjá þér finnst, í einhverri af borgum þínum, þeim er Drottinn Guð þinn gefur þér, maður eða kona, er gjörir það sem illt er í augum Drottins Guðs þíns, með því að rjúfa sáttmála hans,3og fer og dýrkar aðra guði og fellur fram fyrir þeim, eða fyrir sólinni eða tunglinu eða öllum himinsins her, er ég hefi eigi leyft,4og verði þér sagt frá þessu og þú heyrir það, þá skalt þú rækilega rannsaka það, og ef það reynist satt vera, að slík svívirðing hafi framin verið í Ísrael,5þá skalt þú leiða mann þann eða konu, er slíkt ódæði hefir framið, að borgarhliðinu manninn eða konuna, og lemja þau grjóti til bana.6Eftir framburði tveggja eða þriggja vitna skal sá líflátinn verða, er fyrir dauðasök er hafður. Eigi skal hann líflátinn eftir framburði eins vitnis.7Vitnin skulu fyrst reiða hönd gegn honum til þess að deyða hann, og því næst allur lýðurinn. Þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér.8Ef þér er um megn að dæma í einhverju máli: manndrápsmáli, máli um eignarrétt, meiðslamáli í einhverjum þrætumálum innan borgarhliða þinna, þá skalt þú hafa þig til vegar og fara til þess staðar, er Drottinn Guð þinn velur,9og þú skalt ganga fyrir levítaprestana og dómarann, sem þá er, og þú skalt spyrja þá ráða, og þeir skulu segja þér dómsatkvæðið.10Og þú skalt fara eftir því atkvæði, sem þeir segja þér á þeim stað, sem Drottinn velur, og þú skalt gæta þess að gjöra allt eins og þeir segja þér fyrir.11Eftir þeim fyrirmælum, sem þeir tjá þér, og eftir þeim dómi, sem þeir segja þér, skalt þú fara. Þú skalt eigi víkja frá atkvæðinu, sem þeir segja þér, hvorki til hægri né vinstri.12En ef nokkur gjörir sig svo djarfan, að hann vill eigi hlýða á prestinn, sem stendur þar í þjónustu Drottins Guðs þíns, eða á dómarann sá maður skal deyja, og þú skalt útrýma hinu illa úr Ísrael,13svo að allur lýðurinn heyri það og skelfist og enginn sýni framar slíka ofdirfsku.14Þegar þú ert kominn inn í landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér, og þú hefir fengið það til eignar og ert setstur þar að og segir: Ég vil taka mér konung, eins og allar þjóðirnar, sem í kringum mig eru,15þá skalt þú taka þann til konungs yfir þig, sem Drottinn Guð þinn útvelur. Mann af bræðrum þínum skalt þú taka til konungs yfir þig. Eigi mátt þú setja útlendan mann yfir þig, þann sem eigi er bróðir þinn.16Eigi skal hann hafa marga hesta, né heldur fara aftur með lýðinn til Egyptalands til þess að afla sér margra hesta, með því að Drottinn hefir sagt við yður: Þér skuluð aldrei snúa aftur þessa leið.17Hann skal og eigi hafa margar konur, svo að hjarta hans gjörist eigi fráhverft, og hann skal eigi draga saman ógrynni af silfri og gulli.18Og þegar hann nú er setstur í hásæti konungdóms síns, þá skal hann fá lögmál þetta hjá levítaprestunum og rita eftirrit af því handa sér í bók.19Og hann skal hafa hana hjá sér og lesa í henni alla ævidaga sína, til þess að hann læri að óttast Drottin Guð sinn og gæti þess að halda öll fyrirmæli þessa lögmáls og þessi ákvæði,20að hann ofmetnist eigi í hjarta sínu yfir bræður sína og víki eigi frá boðorðunum, hvorki til hægri né vinstri, svo að hann megi um langa ævi ríkjum ráða í Ísrael, hann og synir hans.

17.1 Dýr með lýti 3Mós 22.20+ – Drottni viðurstyggð 5Mós 7.25+
17.2 Gjöra illt 5Mós 4.25+
17.3 Dýrka aðra guði 2Mós 22.19+ – dýrka sólina … 5Mós 4.19+ – aðrir guðir 5Mós 6.14+
17.4 Rannsaka mál 5Mós 1.16+ ; sbr 13.15
17.5 Grýta 5Mós 13.11+
17.6 Vitni 4Mós 35.30+
17.7 Kasta fyrsta steininum 5Mós 13.10; Jóh 8.7 – allt fólkið 5Mós 13.10 – uppræta hið illa 5Mós 13.6+
17.8 Skyldur dómenda 5Mós 1.9+ – staður, sem Guð velur 5Mós 12.5+
17.9 Levítaprestar 5Mós 17.18; 18.1, 24.8, 27.9; Jós 3.3; 8.33; sbr 5Mós 21.5; 31.9
17.10 Gæta þess að fara … 5Mós 5.1+
17.11 Ekki víkja 5Mós 5.32+
17.12 Þjónusta við Drottin 5Mós 10.8+ – útrýma hinu illa 5Mós 13.6+
17.13 Öll þjóðin skal frétta 5Mós 13.12+
17.14 Konungur 1Sam 8.5
17.15 Guð útvelur konung 1Sam 10.24; 16.1; Hag 2.23
17.16 Riddarar 1Kon 10.26-29; Jes 31.1-3; Esk 17.15 – aftur til Egyptalands 5Mós 28.68; 2Mós 14.10-13
17.17 Margar konur sbr 1Kon 11.1-13
17.18 Rita lögmálið 5Mós 31.24 – Levítaprestar 5Mós 17.9+
17.19 Lesa lögmálið 2Kon 23.1-3 – óttast Drottin 5Mós 4.10+ – halda 5Mós 5.1+
17.20 Víkja ekki frá 5Mós 5.32+