1Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum,2fyrir konungum og öllum þeim, sem hátt eru settir, til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði.3Þetta er gott og þóknanlegt fyrir frelsara vorum Guði,4sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.5Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús,6sem gaf sig sjálfan til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma.7Til að boða hann er ég skipaður prédikari og postuli, ég tala sannleika, lýg ekki, kennari heiðingja í trú og sannleika.8Ég vil, að karlmenn biðjist hvarvetna fyrir, með upplyftum heilögum höndum, án reiði og þrætu.9Sömuleiðis vil ég, að konur skrýði sig sæmandi búningi, með blygð og hóglæti, ekki með fléttum og gulli eða perlum og skartklæðum,10heldur með góðum verkum, eins og sómir konum, er Guð vilja dýrka.11Konan á að læra í kyrrþey, í allri undirgefni.12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát.13Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva.14Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg.15En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.

2.1 Bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir Ef 6.18; Fil 4.6
2.2 Guðsótti 1Tím 4.7-8+
2.3 Guð frelsari 1Tím 1.1+
2.4 Að allir verði hólpnir Esk 18.23; 2Pét 3.9 – til þekkingar á sannleikanum 2Tím 2.25; 3.7; Tít 1.1
2.5 Einn er Guð Róm 3.29-30; 10.12 – Jesús meðalgangari Heb 12.24
2.6 Gaf sjálfan sig Gal 1.4; 2.20; Tít 2.14 – til lausnargjalds Matt 20.28 – vitnisburður Jesú 1Tím 6.13; Opb 1.5; 3.14 – á settum tíma 1Tím 6.15; Tít 1.3; sbr Post 1.7; Róm 5.6-8; Gal 4.4
2.7 Prédikari og postuli Post 9.15; Gal 2.7-8; 1Tím 1.11
2.9 Sæmandi búningur 1Pét 3.3-5
2.10 Með góðum verkum 1Tím 5.10
2.11-12 Fyrirmæli til kristinna kvenna 1Kor 14.34
2.12 Vera kyrrlát sbr 1Tím 5.13
2.13 Adam fyrstur 1Mós 1.27; 2.7,22; 1Kor 11.8-9
2.14 Konan lét tælast 1Mós 3.6,13; 2Kor 11.3
2.15 Fæðir börnin … 1Tím 4.3; Tít 2.3-5