1Ísrael lagði af stað með allt sitt, og hann kom til Beerseba og færði þar Guði Ísaks föður síns sláturfórn.2Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: Jakob, Jakob! Og hann svaraði: Hér er ég.3Og hann sagði: Ég er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egyptalands, því að þar mun ég gjöra þig að mikilli þjóð.4Ég mun fara með þér til Egyptalands, og ég mun líka flytja þig þaðan aftur, og Jósef skal veita þér nábjargirnar.5Þá tók Jakob sig upp frá Beerseba, og Ísraels synir fluttu Jakob föður sinn og börn sín og konur sínar á vögnunum, sem Faraó hafði sent til að flytja hann á.6Og þeir tóku fénað sinn og fjárhluti, sem þeir höfðu aflað sér í Kanaanlandi, og komu til Egyptalands, Jakob og allir niðjar hans með honum.7Sonu sína og sonasonu, dætur sínar og sonadætur og alla niðja sína flutti hann með sér til Egyptalands.8Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands: Jakob og synir hans: Rúben, frumgetinn son Jakobs.9Synir Rúbens: Hanok, Pallú, Hesron og Karmí.10Synir Símeons: Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóar og Sál, sonur kanversku konunnar.11Synir Leví: Gerson, Kahat og Merarí.12Synir Júda: Ger, Ónan, Sela, Peres og Sera. En Ger og Ónan dóu í Kanaanlandi. Synir Peres voru: Hesron og Hamúl.13Synir Íssakars: Tóla, Púva, Job og Símron.14Synir Sebúlons: Sered, Elon og Jahleel.15Þessir voru synir Leu, sem hún fæddi Jakob í Mesópótamíu, ásamt Dínu dóttur hans. Allir synir hans og dætur voru að tölu þrjátíu og þrjú.16Synir Gaðs: Sífjón, Haggí, Súní, Esbon, Erí, Aródí og Arelí.17Synir Assers: Jimna, Jísva, Jísví, Bría og Sera, systir þeirra. Synir Bría voru: Heber og Malkíel.18Þessir voru synir Silpu, sem Laban gaf Leu dóttur sinni. Hún ól Jakob þessa, sextán sálir.19Synir Rakelar, konu Jakobs: Jósef og Benjamín.20En Jósef fæddust synir í Egyptalandi: Manasse og Efraím, sem Asenat, dóttir Pótífera prests í Ón, ól honum.21Synir Benjamíns: Bela, Beker, Asbel, Gera, Naaman, Ehí, Rós, Múppím, Húppím og Ard.22Þetta voru synir Rakelar, sem hún ól Jakob, alls fjórtán sálir.23Sonur Dans: Húsín.24Synir Naftalí: Jahseel, Gúní, Jeser og Sillem.25Þessir voru synir Bílu, sem Laban gaf Rakel dóttur sinni, og þessa ól hún Jakob, sjö sálir alls.26Allar þær sálir, sem komu með Jakob til Egyptalands og af honum voru komnar, voru sextíu og sex að tölu, auk sonakvenna Jakobs.27Og synir Jósefs, sem honum höfðu fæðst í Egyptalandi, voru tveir að tölu. Allar þær sálir af ætt Jakobs, sem komu til Egyptalands, voru sjötíu að tölu.28Jakob sendi Júda á undan sér til Jósefs, að hann vísaði sér veginn til Gósen. Og þeir komu til Gósenlands.29Þá lét Jósef beita fyrir vagn sinn og fór á móti Ísrael föður sínum til Gósen, og er fundum þeirra bar saman, féll hann um háls honum og grét lengi um háls honum.30Og Ísrael sagði við Jósef: Nú vil ég glaður deyja, fyrst ég hefi séð auglit þitt, að þú ert enn á lífi.31Og Jósef sagði við bræður sína og við frændlið föður síns: Nú vil ég fara og láta Faraó vita og segja við hann: Bræður mínir og frændlið föður míns, sem var í Kanaanlandi, er til mín komið.32Og mennirnir eru hjarðmenn, því að þeir hafa stundað kvikfjárrækt, og sauði sína og nautpening sinn og allt, sem þeir eiga, hafa þeir haft hingað með sér.33Þegar nú Faraó lætur kalla yður og spyr: Hver er atvinna yðar?34þá skuluð þér svara: Kvikfjárrækt hafa þjónar þínir stundað frá barnæsku allt til þessa dags, bæði vér og feður vorir, til þess að þér fáið að búa í Gósenlandi, því að Egyptar hafa andstyggð á öllum hjarðmönnum. öllum hjarðmönnum.

46.2 Í sýn 1Mós 20.3+ ; 28.12
46.3 Mikil þjóð 1Mós 12.2+
46.4 Nábjargirnar 1Mós 50.1
46.6 Jakob kemur til Egyptalands 4Mós 20.15; 5Mós 26.5; Jós 24.4; Jes 52.4; Slm 105.23; Post 7.14-15
46.8-27 Jakob og niðjar hans 2Mós 1.1-5; 4Mós 26; 1Kro 2-8
46.12 Synir Júda 1Mós 38.3-10
46.15 Synir Leu 1Mós 29.31-35; 30.17-21
46.18 Synir Silpu 1Mós 30.9-13
46.20 Synir Jósefs 1Mós 41.45,50-52
46.22 Synir Rakelar 1Mós 30.22-24; 35.16-18
46.25 Synir Bílu 1Mós 30.1-8
46.29 Hann grét 1Mós 42.24+
46.30 Nú er ég búin undir dauða minn 1Mós 45.28
46.32 Hjarðmenn 1Mós 31.38; 37.12
46.34 Andstyggð 1Mós 43.32