1Þegar Jesús gekk út úr helgidóminum, segir einn lærisveina hans við hann: Meistari, lít á, hvílíkir steinar, hvílíkar byggingar!2Jesús svaraði honum: Sérðu þessar miklu byggingar? Ekki mun eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.3Þá er hann sat á Olíufjallinu gegnt helgidóminum, spurðu hann einslega þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og Andrés:4Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn þess, að allt þetta sé að koma fram?5En Jesús tók að segja þeim: Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.6Margir munu koma í mínu nafni og segja: Það er ég! og marga munu þeir leiða í villu.7En þegar þér spyrjið hernað og ófriðartíðindi, þá skelfist ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.8Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verða landskjálftar á ýmsum stöðum og hungur. Þetta er upphaf fæðingarhríðanna.9Gætið að sjálfum yður. Menn munu draga yður fyrir dómstóla, í samkundum verðið þér húðstrýktir, og þér munuð leiddir fyrir landshöfðingja og konunga mín vegna, þeim til vitnisburðar.10En fyrst á að prédika öllum þjóðum fagnaðarerindið.11Þegar menn taka yður og draga fyrir rétt, hafið þá ekki fyrirfram áhyggjur af því, hvað þér eigið að segja, heldur talið það, sem yður verður gefið á þeirri stundu. Þér eruð ekki þeir sem tala, heldur heilagur andi.12Þá mun bróðir selja bróður í dauða og faðir barn sitt. Börn munu rísa gegn foreldrum og valda þeim dauða.13Og þér munuð hataðir af öllum vegna nafns míns. En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.14En þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar standa þar, er ekki skyldi lesandinn athugi það þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.15Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan og inn í húsið að sækja neitt.16Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.17Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.18Biðjið, að það verði ekki um vetur.19Á þeim dögum verður sú þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi sköpunar, er Guð skapaði, allt til þessa, og mun aldrei verða.20Ef Drottinn hefði ekki stytt þessa daga, kæmist enginn maður af. En hann hefur stytt þá vegna þeirra, sem hann hefur útvalið.21Og ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur, eða: Þar, þá trúið því ekki.22Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra tákn og undur til að leiða afvega hina útvöldu ef orðið gæti.23Verið varir um yður. Ég hef sagt yður allt fyrir.24En á þeim dögum, eftir þrenging þessa, mun sólin sortna og tunglið hætta að skína.25Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.26Þá munu menn sjá Mannssoninn koma í skýjum með miklum mætti og dýrð.27Og hann mun senda út englana og safna sínum útvöldu úr áttunum fjórum, frá skautum jarðar til himinskauta.28Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.29Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að hann er í nánd, fyrir dyrum.30Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.31Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.32En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn.33Verið varir um yður, vakið! Þér vitið ekki, nær tíminn er kominn.34Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka.35Vakið því, þér vitið ekki, nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun.36Látið hann ekki finna yður sofandi, þegar hann kemur allt í einu.37Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!

13.1-23 Hlst. Matt 24.1-28; Lúk 21.5-24
13.2 Ekki stein yfir steini Lúk 19.44
13.3 Olífjallið Mrk 11.1 og hlst.+ – Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1+ – Andrés Matt 4.18+
13.5 Varist villukennendur Matt 24.4+
13.6 Í mínu nafni Jóh 5.43
13.7 Þetta á að verða Dan 2.28
13.8 Þjóð gegn þjóð Jes 19.2-6,17; 2Kro 15.6 – fæðingarhríðir Matt 24.8
13.9 Draga fyrir dómstóla Matt 10.17 – bera vitni Matt 10.18; 24.14; Mrk 1.44; 6.11
13.10 Fagnaðarerindið Mrk 1.1+ – prédika Matt 3.1+ ; 24.14+ – öllum þjóðum Matt 10.18; 28.19; Lúk 21.24; Róm 11.25
13.11 Hafið ekki áhyggjur Matt 10.19; Lúk 12.11-12
13.12 Sbr Mík 7.6
13.13 Hataðir vegna Jesú Matt 10.22; 24.9; Jóh 15.18-21; 16.2; 1Pét 4.14 – staðfastur Matt 10.22
13.14 Viðurstyggð eyðingarinnar Dan 9.27; 11.31; 12.11; 1Makk 1.54; 6.7
13.16 Ekki hverfa aftur Lúk 17.31
13.17 Vei Lúk 23.29; sbr Matt 11.21+
13.19 Þrenging Matt 24.21+
13.22 Tákn og undur 5Mós 13.2-4; 2Þess 2.9-10; 13.13-14
13.24-27 Hlst. Matt 24.29-31; Lúk 21.25-28
13.24-25 Sólin sortnar Jes 13.10; 34.4; Esk 32.7-8; Jl 2.10; 3.4; 4.15; Opb 6.12-14; 8.12
13.26 Mannssonurinn Matt 8.20+ – koma hans Matt 10.23+ ; Mrk 8.38; Opb 1.7 – í skýjum 3Mós 16.2; 4Mós 11.25; Matt 24.30+
13.27 Himinskaut 5Mós 30.4; Neh 1.9; Esk 37.9; Sak 2.10
13.28-31 Hlst. Matt 24.32-35; Lúk 21.29-33
13.28 Fíkjutré Matt 21.19; Mrk 11.13
13.31 En orð mín Matt 5.18; Lúk 16.17
13.32-37 Hlst. Matt 24.36-44
13.32 Sá dagur eða stund Post 1.7; 1Þess 5.1,2 – sonurinn, faðirinn Matt 11.27; Lúk 10.22
13.33 Vakið Matt 24.42+ ; 25.13
13.34 Maður fer úr landi Matt 25.14
13.35-36 Óvænt heimkoma húsbónda Lúk 12.36-38
13.37 Vakið Matt 24.42+