1Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum.2Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels.3Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur.4Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,5Jíbhar, Elísúa, Elpelet,6Nóga, Nefeg, Jafía,7Elísama, Beeljada og Elífelet.8Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim.9Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal.10Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér? Drottinn svaraði honum: Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér.11Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás. Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.12En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs.13Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn.14Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum.15Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.16Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser.17Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir.

14.1-7 1Kro 3.5-9; 2Sam 5.11-16
14.8-17 sbr 2Sam 5.17-25