1Davíðssálmur. Drottinn, heyr þú bæn mína, ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.2Gakk eigi í dóm við þjón þinn, því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar, lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.4Andi minn örmagnast í mér, hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.5Ég minnist fornra daga, íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.6Ég breiði út hendurnar í móti þér, sál mín er sem örþrota land fyrir þér. Sela7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér, svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg, er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.9Frelsa mig frá óvinum mínum, Drottinn, ég flý á náðir þínar.10Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns, leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns.12Lát þú óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar, ryð þeim öllum úr vegi, er að mér þrengja, því að ég er þjónn þinn.

143.1 Heyr Slm 4.4; 102.2; 145.19 – ljá eyra Slm 71.2+ – grátbeiðni Slm 55.2; 119.170; 140.7; 1Kon 8.28
143.2 Enginn er réttlátur Róm 3.20
143.5 Fornir dagar Slm 77.6 – gjörðir þínar Slm 77.13
143.6 Lyfir upp hönduunum Slm 77.3; 88.10; sbr 28.2+ – örfoka land Slm 63.2; Jes 32.2
143.7 Fljótt Slm 31.3+ – byrg eigi Slm 27.9+ – þeir sem grafnir eru Slm 22.30+
143.8 Miskunn að morgni Slm 59.17 – treysta Drottni Slm 9.11+ ; 55.24+ – þann veg Slm 25.4 – til þín Slm 86.4
143.10 Guð minn Slm 22.11+
143.12 Þjónn þinn Slm 86.16; 116.16