1Getur þú veitt krókódílinn á öngul, getur þú heft tungu hans með snæri?2Dregur þú seftaug gegnum nasir hans og rekur þú krók gegnum kjálka honum?3Ætli hann beri fram fyrir þig margar auðmjúkar bænir eða mæli til þín blíðum orðum?4Mun hann gjöra við þig sáttmála, svo að þú takir hann að ævinlegum þræli?5Munt þú leika þér að honum eins og litlum fugli og getur þú bundið hann fastan fyrir smámeyjar þínar?6Manga fiskveiðafélagar um hann, skipta þeir honum meðal kaupmanna?7Getur þú fyllt húð hans broddum og haus hans skutlum?8Legg hönd þína á hann hugsaðu þér, hvílík viðureign! Þú gjörir það ekki aftur.9Já, von mannsins bregst, hann fellur þegar flatur fyrir sjóninni einni saman.10Enginn er svo fífldjarfur, að hann þori að egna hann, og hver er þá sá, er þori að ganga fram fyrir mitt auglit?11Hver hefir að fyrra bragði gefið mér, svo að ég ætti að endurgjalda? Allt sem undir himninum er, það er mitt!12Ég vil ekki þegja um limu hans, né um styrkleik og fegurð vaxtar hans.13Hver hefir flett upp skjaldkápu hans að framan, hver fer inn undir tvöfaldan tanngarð hans?14Hver hefir opnað hliðin að gini hans? Ógn er kringum tennur hans.15Tignarprýði eru skjaldaraðirnar, lokaðar með traustu innsigli.16Hver skjöldurinn liggur fast að öðrum, ekkert loft kemst á milli þeirra.17Þeir eru fastir hver við annan, eru svo samfelldir, að þeir verða eigi skildir sundur.18Þegar hann hnerrar, standa ljósgeislar úr nösum hans, og augu hans eru sem brágeislar morgunroðans.19Úr gini hans standa blys, eldneistar ganga fram úr honum.20Úr nösum hans stendur eimur, eins og upp úr sjóðandi potti, sem kynt er undir með sefgrasi.21Andi hans kveikir í kolum, og logi stendur úr gini hans.22Kraftur situr á hálsi hans, og angist stökkur á undan honum.23Vöðvar holds hans loða fastir við, eru steyptir á hann og hreyfast ekki.24Hjarta hans er hart sem steinn, já, hart sem neðri kvarnarsteinn.25Þegar hann stökkur upp, skelfast kapparnir, þeir verða ringlaðir af hræðslu.26Ráðist einhver að honum með sverði, þá vinnur það eigi á, eigi heldur lensa, skotspjót eða ör.27Hann metur járnið sem strá, eirinn sem maðksmoginn við.28Eigi rekur örin hann á flótta, slöngusteinarnir verða hálmur fyrir honum.29Kylfur metur hann sem hálmstrá, og að hvin spjótsins hlær hann.30Neðan á honum eru oddhvöss brot, hann markar för í aurinn sem för eftir þreskisleða.31Hann lætur vella í djúpinu sem í potti, gjörir hafið eins og smyrslaketil.32Aftur undan honum er ljósrák, ætla mætti, að sjórinn væri silfurhærur.33Enginn er hans maki á jörðu, hans sem skapaður er til þess að kunna ekki að hræðast.34Hann lítur niður á allt hátt, hann er konungur yfir öllum drembnum dýrum.

41.2 Egna Guð Job 9.4; 40.4; 3Mós 26.21,23,27; Nah 1.6
41.3 Hver ræðst gegn Guði og sleppur heill Róm 11.35 – allt undir himninum er Guðs Job 34.13; 2Mós 19.5; 5Mós 10.14; 1Kor 10.26+; 1Kor 3.21-23
41.7 Skjöldur Job 15.26
41.11-13 Spýr eldi Slm 18.9; Opb 9.17-18
41.16 Hjarta sem steinn sbr Esk 11.19; 36.26
41.22 Í eðjuna Esk 29.3
41.23 Lætur djúpið vella Esk 32.2; sbr Slm 69.3