1Þetta er nú í þriðja sinn, sem ég kem til yðar. Því aðeins skal framburður gildur vera, að tveir eða þrír beri.2Það sem ég sagði yður við aðra komu mína, það segi ég yður nú aftur fjarstaddur, bæði þeim, sem hafa brotlegir orðið, og öðrum: Næsta sinn, sem ég kem, mun ég ekki hlífa neinum,3enda krefjist þér sönnunar þess, að Kristur tali í mér. Hann er ekki veikur gagnvart yður, heldur máttugur á meðal yðar.4Hann var krossfestur í veikleika, en hann lifir fyrir Guðs kraft. Og einnig vér erum veikir í honum, en munum þó lifa með honum fyrir Guðs kraft, sem hann sýnir yður.5Reynið yður sjálfa, hvort þér eruð í trúnni, prófið yður sjálfa. Gjörið þér yður ekki grein fyrir, að Jesús Kristur er í yður? Það skyldi vera, að þér stæðust ekki prófið.6En ég vona, að þér komist að raun um, að vér höfum staðist prófið.7Vér biðjum til Guðs, að þér gjörið ekki neitt illt, ekki til þess að það sýni ágæti vort, heldur til þess að þér gjörið hið góða. Vér gætum eins sýnst óhæfir.8Því að ekki megnum vér neitt gegn sannleikanum, heldur fyrir sannleikann.9Vér gleðjumst, þegar vér erum veikir, en þér eruð styrkir. Það, sem vér biðjum um, er að þér verðið fullkomnir.10Þess vegna rita ég þetta fjarverandi, til þess að ég þurfi ekki, þegar ég er kominn, að beita hörku, samkvæmt því valdi, sem Drottinn hefur gefið mér. Það er til uppbyggingar, en ekki til niðurbrots.11Að öðru leyti, bræður, verið glaðir. Verið fullkomnir, áminnið hver annan, verið samhuga, verið friðsamir. Þá mun Guð kærleikans og friðarins vera með yður.12Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Allir heilagir biðja að heilsa yður.13Náðin Drottins Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.

13.1 Aðeins skal … 5Mós 17.6; 19.15; Matt 18.16; 1Tím 5.19; Heb 10.28 – í þriðja sinn 2Kor 12.14+
13.3 Talar í mér 2Kor 3.5-6
13.4 Veikur en lifi þó Róm 6.8-11; 2Kor 12.9-10+
13.5 Prófið ykkur sjálfa 1Kor 11.28; Gal 6.4
13.9 Veikur 2Kor 12.9-10+
13.10 Byggja upp, rífa niður Jer 1.10; 2Kor 10.8
13.11 Glöð Fil 3.1; 4.4 – samhuga Róm 15.5; 1Kor 1.10; Ef 4.2-3; Fil 2.2 – Guð friðarins Róm 15.33
13.12 Með heilögum kossi Róm 16.16; 1Kor 16.20; 1Þess 5.26; 1Pét 5.14
13.13 Náð, kærleikur, samfélag Fil 2.1 – Jesús Kristur, Guð, heilagur andi Matt 28.19; Jóh 14.16; Róm 1.4; 15.16,30; 2Kor 1.21-22; Gal 4.6; Ef 1.3-14; 2.18; 1Pét 1.2; 1Jóh 4.2; Opb 22.