1Bæn hrjáðs manns, þá er hann örmagnast og úthellir kveini sínu fyrir Drottni.2Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist til þín.3Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar ég er í nauðum staddur, hneig að mér eyra þitt, þegar ég kalla, flýt þér að bænheyra mig.4Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur.5Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að ég gleymi að neyta brauðs míns.6Sakir kveinstafa minna er ég sem skinin bein.7Ég líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum.8Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.9Daginn langan smána óvinir mínir mig, fjandmenn mínir formæla með nafni mínu.10Ég et ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum11sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og varpað mér burt.12Dagar mínir eru sem hallur skuggi, og ég visna sem gras.13En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns.14Þú munt rísa upp til þess að miskunna Síon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin.15Þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar.16Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína,17því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni.18Hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra.19Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin.20Því að Drottinn lítur niður af sínum helgu hæðum, horfir frá himni til jarðar21til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans,22að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Síon og lofstír hans í Jerúsalem,23þegar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin til þess að þjóna Drottni.24Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína.25Ég segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri ævinni. Ár þín vara frá kyni til kyns.26Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna.27Þeir líða undir lok, en þú varir. Þeir fyrnast sem fat, þú skiptir þeim sem klæðum, og þeir hverfa.28En þú ert hinn sami, og þín ár fá engan enda.29Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.

102.1 Úthella harmi fyrir Drottni Slm 142.3
102.2 Heyr bæn mína Slm 39.13; 84.9; 143.1 – berist til þín Slm 17.7; 88.3; 119.169
102.3 Byrg eigi Slm 27.9+ – í nauðum staddur Slm 77.3+ – hneig Slm 71.2+ – þegar ég kalla Slm 56.10; sbr Slm 3.5+ – skjótt Slm 31.3+
102.4 Líða hjá sem reykur Slm 90.9; Jak 4.14 – bein mín brenna Job 30.30
102.5 Sem gras Slm 90.6; Jes 40.7 – gleymi að eta brauð 1Sam 1.7
102.6 Kveinstafir Slm 6.7; 31.11; Hlj 1.21
102.9 Smána mig Slm 42.11; 44.17 – til formælinga Jes 65.15
102.10 Brauð og tár Slm 42.4+
102.11 Heift þín og reiði Nah 1.6
102.12 Dagar mínir Slm 90.9; 103.15; 109.23; 144.4; Job 14.1-2
102.13 Þú ríkir Slm 9.8; Hlj 5.19 – frá kyni til kyns Slm 135.13; 2Mós 3.15
102.14 Líkna Slm 67.2; 135.14; 5Mós 32.36; Jes 14.1; Jer 31.20; Esk 39.25; Am 5.15 – tími til komin Slm 119.126
102.15 Steinar og rústir Jes 52.2; Hlj 4.1; sbr Dan 9.17; Neh 2.3
102.16 Allar þjóðir Jes 59.19; 66.18
102.17 Byggir upp Síon Slm 51.20; 147.2; sbr Jer 30.18 – dýrð Drottins Jes 60.1
102.18 Hafnar ekki bæn Slm 22.25; 69.34; 1Kon 8.28
102.19 Fyrir komandi kynslóð Slm 22.31-32 – ekki sköpuð Jes 43.1,21
102.20 Drottinn lítur niður Slm 14.2 – horfir til jarðar Slm 11.4+ ; 5Mós 26.15; Jes 63.15
102.21 Andvarpanir bandingjanna Slm 79.11
102.23 Þjóðirnar þjóna Drottni Slm 86.9; Jes 45.14; 60.3; Mal 1.11; Opb 15.4; 21.24
102.24 Fækkað ævidögum Slm 89.46
102.25 Ár Guðs Slm 102.28; 90.2,4
102.26-28 Himinn og jörð fyrnast Jes 34.4; 51.6-8; Heb 1.10-12
102.27 Eyðir og skapar Jes 65.17; sbr 2Pét 3.10; Opb 20.11
102.29 Börn þjóna þinna Slm 69.37; Esk 37.25