1Þá er Salómon hafði lokið að byggja musteri Drottins og konungshöllina og allt annað, er hann fýsti að gjöra,2þá vitraðist Drottinn honum í annað sinn, eins og hann hafði vitrast honum í Gíbeon.3Og Drottinn sagði við hann: Ég hefi heyrt bæn þína og grátbeiðni, sem þú barst fram fyrir mig. Ég hefi helgað þetta hús, sem þú hefir reist, með því að ég læt nafn mitt búa þar að eilífu, og augu mín og hjarta skulu dvelja þar alla daga.4Ef þú nú gengur fyrir augliti mínu, eins og Davíð faðir þinn gjörði, í hreinskilni hjartans og einlægni, svo að þú gjörir allt, sem ég hefi fyrir þig lagt, og heldur lög mín og ákvæði,5þá vil ég staðfesta hásæti konungdóms þíns yfir Ísrael að eilífu, eins og ég hét Davíð föður þínum, er ég sagði: Eigi skal þig vanta eftirmann í hásæti Ísraels.6En ef þér snúið baki við mér, þér og synir yðar, og varðveitið eigi boðorð mín og lög, þau er ég hefi lagt fyrir yður, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,7þá mun ég uppræta Ísrael úr því landi, sem ég gaf þeim, og húsinu, sem ég hefi helgað nafni mínu, mun ég burt snara frá augliti mínu, og Ísrael skal verða að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.8Og þetta hús, svo háreist sem það er hver sem gengur fram hjá því, honum mun blöskra og hann mun blístra. Og er menn spyrja: Hvers vegna hefir Drottinn leikið svo hart þetta land og þetta hús?9munu menn svara: Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð sinn, er leiddi feður þeirra af Egyptalandi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir þeim og þjónuðu þeim. Fyrir því hefir Drottinn leitt yfir þá alla þessa ógæfu.10Að tuttugu árum liðnum, þá er Salómon hafði reist bæði húsin, musteri Drottins og konungshöllina11en Híram konungur í Týrus hafði hjálpað Salómon um sedrusvið, kýpresvið og gull, eins og hann vildi, þá gaf Salómon konungur Híram tuttugu borgir í Galíleuhéraði.12Og Híram fór frá Týrus til þess að skoða borgirnar, er Salómon hafði gefið honum, en honum líkuðu þær ekki.13Þá sagði hann: Hvaða borgir eru þetta, sem þú hefir gefið mér, bróðir? Fyrir því hafa þær verið kallaðar Kabúlhérað fram á þennan dag.14En Híram sendi konungi hundrað og tuttugu talentur gulls.15Svo stóð á vinnuskyldu þeirri, er Salómon konungur lagði á til þess að byggja musteri Drottins og höll sína, Milló og múra Jerúsalem, Hasór, Megiddó og Geser:16Faraó Egyptalandskonungur hafði farið herferð og unnið Geser og lagt eld í hana, en drepið Kanaanítana, sem bjuggu í borginni, og síðan gefið hana dóttur sinni, konu Salómons, í heimanmund.17En Salómon reisti Geser að nýju og Neðri Bethóron,18og Baalat og Tamar í óbyggðinni í landinu,19og allar vistaborgirnar, sem Salómon átti, og vagnliðsborgirnar og riddaraborgirnar, og allt sem Salómon fýsti að byggja í Jerúsalem, á Líbanon og í öllu ríki sínu:20Allt það fólk, sem eftir var af Amorítum, Hetítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, sem eigi heyrðu til Ísraelsmönnum,21niðjar þeirra, sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn eigi höfðu getað helgað banni á þá lagði Salómon skylduvinnu, og er svo enn í dag.22En af Ísraelsmönnum gjörði Salómon enga að þrælum, en þeir voru hermenn, embættismenn hans, hershöfðingjar hans, vagnkappar hans og foringjar fyrir vagnliði hans og riddaraliði.23Æðstu fógetarnir, er settir voru yfir verk Salómons, voru fimm hundruð og fimmtíu að tölu. Höfðu þeir eftirlit með mönnum þeim, er að verkinu unnu.24Óðara en dóttir Faraós var farin úr Davíðsborg í hús sitt, það er hann hafði reist handa henni, byggði hann Milló.25Þrisvar sinnum á ári fórnaði Salómon brennifórnum og heillafórnum á altarinu, er hann hafði reist Drottni, og færði auk þess reykelsisfórnir á því altari, sem stóð frammi fyrir Drottni. Þannig fullgjörði hann musterið.26Salómon konungur lét og smíða skip í Esjón Geber, sem liggur hjá Elat á strönd Rauðahafs, í Edómlandi.27Og Híram sendi á skipin menn sína, farmenn vana sjómennsku, ásamt mönnum Salómons.28Og þeir fóru til Ófír og sóttu þangað gull fjögur hundruð og tuttugu talentur og færðu það Salómon konungi.

9.3 Nafn mitt 1Kon 8.29+
9.5 Niðjar þínir 1Kon 2.4+
9.7 Að háði og spotti 5Mós 28.37; Jer 18.16; 19.8; 24.9; 29.18
9.15 Kvaðavinna 1Kon 5.27-32+ – Milló 2Sam 5.9+
9.16 Kona Salómons 1Kon 3.1
9.20 Var eftir Dóm 3.3-5
9.21 Gjöreyða 5Mós 2.34
9.26 Skip 1Kon 22.49-50
9.28 Ófír 1Kon 10.11; 22.49; 1Mós 10.29; Jes 13.12; Slm 45.10; Job 22.24; 28.16; 1Kro 1.23; 29.4; 2Kro 8.18; 9.10; Tób 13.17; Sír 7.18