1Andinn segir berlega, að á síðari tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda.2Þessu valda hræsnisfullir lygarar, sem eru brennimerktir á samvisku sinni.3Það eru þeir, sem meina hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu, er Guð hefur skapað til þess að við henni sé tekið með þakkargjörð af trúuðum mönnum, er þekkja sannleikann.4Allt sem Guð hefur skapað er gott, og engu ber frá sér að kasta, sé það þegið með þakkargjörð.5Það helgast af orði Guðs og bæn.6Með því að brýna þetta fyrir bræðrunum, munt þú verða góður þjónn Krists Jesú, nærður af orði trúarinnar og góðu kenningarinnar, sem þú hefur fylgt.7En hafna þú vanheilögum kerlingaævintýrum, og æf sjálfan þig í guðhræðslu.8Líkamleg æfing er nytsamleg í sumu, en guðhræðslan er til allra hluta nytsamleg og hefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.9Það orð er satt og í alla staði þess vert, að við því sé tekið.10Þess vegna leggjum vér á oss erfiði og þreytum stríð, því að vér höfum fest von vora á lifanda Guði, sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra.11Bjóð þú þetta og kenn það.12Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.13Ver þú, þangað til ég kem, kostgæfinn að lesa úr Ritningunni, áminna og kenna.14Vanræktu ekki náðargjöfina þína, sem var gefin þér að tilvísan spámanna og með handayfirlagningu öldunganna.15Stunda þetta, ver allur í þessu, til þess að framför þín sé öllum augljós.16Haf gát á sjálfum þér og fræðslunni. Ver stöðugur við þetta. Þegar þú gjörir það, muntu bæði gjöra sjálfan þig hólpinn og áheyrendur þína.

4.1 Á síðustu tímum 2Tím 3.1; 2Pét 3.3; 1Jóh 2.18; Júd 18
4.3 Halda sér frá fæðu sbr Róm 14; Kól 2.20-23; Tít 1.13-15 – leyfilegt að eta 1Mós 9.3 – tekið með þakklæti Róm 14.6; 1Kor 10.30-31
4.4 Öll sköpun Guðs er góð 1Mós 1.31; Post 10.15
4.7 Hégiljum 1Tím 1.4; 6.20; 2Tím 2.16,23; 4.4; Tít 1.14
4.8 Guðrækni Post 3.12; 1Tím 2.2; 3.16; 6.3,5-6,11; 2Tím 3.5; Tít 1.1; 2Pét 1.3,6-7 – nytsamleg 1Tím 6.6 – líkamleg æfing 1Kor 9.24-27+
4.9 Það orð er satt 1Tím 1.15+
4.10 Guð frelsari 1Tím 1.1+
4.12 Smáum augum … Tít 2.15
4.13 Ritningrlestur Lúk 4.16-21; Post 13.14-16
4.14 Handayfirlagning öldunganna 2Tím 1.6 – leggja hendur yfir Post 6.6+ ; 1Tím 5.22 – öldungar 1Tím 5.17