1Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði.2Af tungu hinna vitru drýpur þekking, en munnur heimskingjanna eys úr sér vitleysu.3Augu Drottins eru alls staðar, vakandi yfir vondum og góðum.4Hógværð tungunnar er lífstré, en fals hennar veldur hugarkvöl.5Afglapinn smáir aga föður síns, en sá sem tekur umvöndun, verður hygginn.6Í húsi hins réttláta er mikill auður, en glundroði er í gróðafé hins óguðlega.7Varir hinna vitru dreifa út þekkingu, en hjarta heimskingjanna er rangsnúið.8Fórn óguðlegra er Drottni andstyggð, en bæn hreinskilinna er honum þóknanleg.9Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur, en þann sem stundar réttlæti, elskar hann.10Slæm hirting bíður þess, sem yfirgefur rétta leið, sá sem hatar umvöndun, hlýtur að deyja.11Dánarheimur og undirdjúpin eru opin fyrir Drottni, hversu miklu fremur hjörtu mannanna barna!12Spottaranum er ekki vel við, að vandað sé um við hann, til viturra manna fer hann ekki.13Glatt hjarta gjörir andlitið hýrlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.14Hjarta hins vitra leitar að þekking, en munnur heimskingjanna gæðir sér á fíflsku.15Hinn volaði sér aldrei glaðan dag, en sá sem vel liggur á, er sífellt í veislu.16Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum.17Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinn uxi með hatri.18Bráðlyndur maður vekur deilur, en sá sem seinn er til reiði, stillir þrætu.19Vegur letingjans er eins og þyrnigerði, en gata hreinskilinna er brautarvegur.20Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur maður fyrirlítur móður sína.21Óvitrum manni er fíflskan gleði, en skynsamur maður gengur beint áfram.22Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin, en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.23Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns, og hversu fagurt er orð í tíma talað!24Lífsins vegur liggur upp á við fyrir hinn hyggna, til þess að hann lendi ekki niður í Helju.25Drottinn rífur niður hús dramblátra, en setur föst landamerki ekkjunnar.26Ill áform eru Drottni andstyggð, en hrein eru vingjarnleg orð.27Sá kemur ólagi á heimilishag sinn, sem fíkinn er í rangfenginn gróða, en sá sem hatar mútugjafir, mun lifa.28Hjarta hins réttláta íhugar, hverju svara skuli, en munnur óguðlegra eys úr sér illsku.29Drottinn er fjarlægur óguðlegum, en bæn réttlátra heyrir hann.30Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað, góðar fréttir feita beinin.31Eyra sem hlýðir á holla umvöndun, mun búa meðal hinna vitru.32Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig, en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda.33Ótti Drottins er ögun til visku, og auðmýkt er undanfari virðingar.

15.5 Taka umvöndum Okv 10.17; 12.1; 13.18; 15.31,32
15.6 Gróðafé hins rangláta Okv 11.28; 24.4-5; Jes 5.8-10; Am 4.1-3; 6.1-7; Jak 5.1-6
15.8 Fórn ranglátra 1Sam 15.22+
15.8-9 Drottni andstyggð Okv 3.32+
15.12 Spottarinn Okv 13.1+
15.16 Lítið Okv 16.8+
15.22 Margir ráðgjafar Okv 11.14+
15.25 Landamerki ekkjunnar Okv 22.28+
15.27 Mútugjafir Okv 17.23; 5Mós 16.19; Jes 1.23; Esk 22.12
15.33 Ótti Drottins og speki Okv 9.10+