1Þegar Jesús hafði þetta mælt, fór hann út með lærisveinum sínum og yfir um lækinn Kedron. Þar var grasgarður, sem Jesús gekk inn í og lærisveinar hans.2Júdas, sem sveik hann, þekkti líka þennan stað, því Jesús og lærisveinar hans höfðu oft komið þar saman.3Júdas tók með sér flokk hermanna og verði frá æðstu prestum og faríseum. Þeir koma þar með blysum, lömpum og vopnum.4Jesús vissi allt, sem yfir hann mundi koma, gekk fram og sagði við þá: Að hverjum leitið þér?5Þeir svöruðu honum: Að Jesú frá Nasaret. Hann segir við þá: Ég er hann. En Júdas, sem sveik hann, stóð líka hjá þeim.6Þegar Jesús sagði við þá: Ég er hann, hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar.7Þá spurði hann þá aftur: Að hverjum leitið þér? Þeir svöruðu: Að Jesú frá Nasaret.8Jesús mælti: Ég sagði yður, að ég væri hann. Ef þér leitið mín, þá lofið þessum að fara.9Þannig rættist orð hans, er hann hafði mælt: Engum glataði ég af þeim, sem þú gafst mér.10Símon Pétur hafði sverð, brá því og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. Þjónninn hét Malkus.11Þá sagði Jesús við Pétur: Sting sverðinu í slíðrin. Á ég ekki að drekka kaleikinn, sem faðirinn hefur fengið mér?12Hermennirnir, foringinn og varðmenn Gyðinga tóku nú Jesú höndum og bundu hann13og færðu hann fyrst til Annasar. Hann var tengdafaðir Kaífasar, sem var æðsti prestur það ár.14En Kaífas var sá sem gefið hafði Gyðingum það ráð, að betra væri, að einn maður dæi fyrir lýðinn.15Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn. Sá lærisveinn var kunnugur æðsta prestinum og fór með Jesú inn í hallargarð æðsta prestsins.16En Pétur stóð utan dyra. Hinn lærisveinninn, sem var kunnugur æðsta prestinum, kom út aftur, talaði við þernuna, sem dyra gætti, og fór inn með Pétur.17Þernan við dyrnar sagði þá við Pétur: Ert þú ekki líka einn af lærisveinum þessa manns? Hann sagði: Ekki er ég það.18Þjónarnir og varðmennirnir höfðu kveikt kolaeld, því kalt var, og stóðu við hann og vermdu sig. Pétur stóð hjá þeim og ornaði sér.19Nú spurði æðsti presturinn Jesú um lærisveina hans og kenningu hans.20Jesús svaraði honum: Ég hef talað opinskátt í áheyrn heimsins. Ég hef ætíð kennt í samkundunni og í helgidóminum, þar sem allir Gyðingar safnast saman, en í leynum hef ég ekkert talað.21Hví spyr þú mig? Spyrðu þá, sem heyrt hafa, hvað ég hef við þá talað. Þeir vita hvað ég hef sagt.22Þegar Jesús sagði þetta, rak einn varðmaður, sem þar stóð, honum löðrung og sagði: Svarar þú æðsta prestinum svona?23Jesús svaraði honum: Hafi ég illa mælt, þá sanna þú, að svo hafi verið, en hafi ég rétt að mæla, hví slær þú mig?24Þá sendi Annas hann bundinn til Kaífasar æðsta prests.25En Símon Pétur stóð og vermdi sig. Hann var þá spurður: Ert þú ekki líka einn af lærisveinum hans? Hann neitaði því og sagði: Ekki er ég það.26Þá sagði einn af þjónum æðsta prestsins, frændi þess, sem Pétur sneið af eyrað: Sá ég þig ekki í grasgarðinum með honum?27Aftur neitaði Pétur, og um leið gól hani.28Nú var Jesús fluttur frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Gyðingar fóru ekki sjálfir inn í höllina, svo að þeir saurguðust ekki, heldur mættu neyta páskamáltíðar.29Pílatus kom út til þeirra og sagði: Hvaða ákæru berið þér fram gegn þessum manni?30Þeir svöruðu: Ef þetta væri ekki illvirki, hefðum vér ekki selt hann þér í hendur.31Pílatus segir við þá: Takið þér hann, og dæmið hann eftir yðar lögum. Gyðingar svöruðu: Oss leyfist ekki að taka neinn af lífi.32Þannig rættist orð Jesú, þegar hann gaf til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.33Pílatus gekk þá aftur inn í höllina, kallaði Jesú fyrir sig og sagði við hann: Ert þú konungur Gyðinga?34Jesús svaraði: Mælir þú þetta af sjálfum þér, eða hafa aðrir sagt þér frá mér?35Pílatus svaraði: Er ég þá Gyðingur? Þjóð þín og æðstu prestarnir hafa selt þig mér í hendur. Hvað hefur þú gjört?36Jesús svaraði: Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi, hefðu þjónar mínir barist, svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.37Þá segir Pílatus við hann: Þú ert þá konungur? Jesús svaraði: Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn, að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum, heyrir mína rödd.38Pílatus segir við hann: Hvað er sannleikur? Að svo mæltu gekk hann aftur út til Gyðinga og sagði við þá: Ég finn enga sök hjá honum.39Þér eruð vanir því, að ég gefi yður einn mann lausan á páskunum. Viljið þér nú, að ég gefi yður lausan konung Gyðinga?40Þeir hrópuðu á móti: Ekki hann, heldur Barabbas. En Barabbas var ræningi.

18.1 Yfir um Kedron Matt 26.36; Mrk 14.32
18.2 Kom þar oft Lúk 21.37; 22.39
18.3 Verðir Jóh 7.32,45
18.4 Jesús vissi … Jóh 13.1,3
18.5 Ég er hann sbr Jóh 8.24+
18.9 Engum glataði ég … Jóh 6.39; 17.12; sbr 10.28
18.10 Sverð Lúk 22.36,38
18.11 Kaleikur Mrk 10.38+ og hlst.; 14.36 og hlst.
18.13 Kaífas Lúk 3.2+
18.14 Ráð Kaífasar Jóh 11.49-51
18.15 Pétur og annar lærisveinn Jóh 20.3
18.16 Í garð æðsta prestsins Mrk 14.54 og hlst.
18.17 Pétur neitar Jóh 18.25
18.20 Í áheyrn allra Jóh 7.26 – í samkundunni og musterinu Matt 4.23; 26.55; Jóh 6.59; 7.14
18.22 Löðrungur Matt 26.67; Mrk 14.65; Jóh 19.3; sbr Post 23.2
18.24 Annas Lúk 3.2; Jóh 18.13
18.25 Pétur neitar enn Jóh 18.17
18.26 Sneið af eyrað Mrk 14.47 og hlst.; Jóh 18.10 – með honum í garðinum Jóh 18.1
18.27 Hani gól Mrk 14.30 og hlst.; Jóh 13.38
18.29 Pílatus Matt 27.2 o.fl.; Mrk 15.1 o.fl.; Lúk 3.1; 13.1; 23.1 o.fl.; Post 3.13-14; 4.27; 13.28; 1Tím 6.13
18.31 Takið hann … Jóh 19.6-7 – eftir ykkar lögum Post 18.15
18.32 Með hvaða hætti Matt 20.19; 26.2; Jóh 3.14; 12.32-33
18.33 Konungur Jóh 1.49; 6.15 – Gyðinga Matt 27.11; Mrk 15.2; Lúk 23.3
18.35 Þjóð þín Jóh 1.11
18.37 Jesús ber vitni 1Tím 6.13 – bera sannleikanum vitni Jóh 3.11,32-33; 8.46 – heyra rödd Jesú Jóh 8.47+
18.40 Barabbas Mrk 15.6-15 og hlst. – ekki hann … Post 3.14