1Helgigönguljóð. Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, skal Ísrael segja2þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.3Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,4en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.5Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.6Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.7Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,8og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: Blessun Drottins sé með yður. Vér blessum yður í nafni Drottins!

129.1 Skal Ísrael segja Slm 118.2; 124.1
129.4 Drottinn er réttlátur Slm 7.10,12; 11.7; 51.6; 119.137; 145.17; Jes 45.21; Sef 3.5; Hlj 1.18; Dan 4.34; 9.14; Esr 9.15; Neh 9.33
129.5 Hörfa Slm 35.4; 40.15
129.6 Gras á þekju 2Kon 19.26
129.8 Vér blessum yður Slm 118.26