1Vei þér, sem eyðir, og hefir þó sjálfur eigi fyrir eyðingu orðið, sem rænir, og hefir þó eigi rændur verið! Þegar þú hefir lokið eyðingunni, skalt þú fyrir eyðingu verða, þegar þú ert hættur að ræna, skalt þú rændur verða.2Drottinn, ver þú oss líknsamur! Vér vonum á þig. Ver þú styrkur vor á hverjum morgni og hjálpræði vort á neyðarinnar tíma.3Fyrir hinum dynjandi gný flýja þjóðirnar. Þegar þú rís upp, tvístrast heiðingjarnir.4Þá mun herfangi verða safnað, eins og þegar engisprettur eru að tína, menn munu stökkva á það, eins og þegar jarðvargar stökkva.5Hár er Drottinn, því að hann býr á hæðum, hann fyllir Síon réttindum og réttlæti.6Örugga tíma skalt þú hljóta, gæfufjársjóð átt þú í visku og þekkingu. Ótti Drottins er auður lýðsins.7Sjá, kapparnir kveina úti fyrir, friðarboðarnir gráta beisklega.8Þjóðvegirnir eru eyðilagðir, mannaferðir hættar. Menn rjúfa sáttmálann, fyrirlíta vitnin og virða náungann vettugi.9Landið sýtir og visnar, Líbanon blygðast sín og skrælnar, Saronsléttan er orðin eins og eyðimörk, Basan og Karmel fella laufið.10Nú vil ég upp rísa, segir Drottinn, nú vil ég láta til mín taka, nú vil ég hefjast handa.11Þér gangið með hey og alið hálm, andgustur yðar er eldur, sem eyða mun sjálfum yður.12Þjóðirnar munu brenndar verða að kalki, þær munu verða sem upphöggnir þyrnar, sem brenndir eru í eldi.13Heyrið, þér sem fjarlægir eruð, hvað ég hefi gjört, og sjáið, þér sem nálægir eruð, kraft minn!14Syndararnir í Síon eru hræddir, skelfing hefir gagntekið guðleysingjana: Hver af oss má búa við eyðandi eld, hver af oss má búa við eilíft bál?15Sá sem fram gengur réttvíslega og talar af hreinskilni, sá sem hafnar þeim ávinningi, sem fenginn er með ofríki, sá sem hristir mútugjafir af höndum sér, sá sem byrgir fyrir eyru sín til þess að heyra eigi morð ráðin, sá sem afturlykur augum sínum til þess að horfa eigi á það, sem illt er,16hann skal búa uppi á hæðunum. Hamraborgirnar skulu vera vígi hans, brauðið skal verða fært honum og vatnið handa honum skal eigi þverra.17Augu þín skulu sjá konunginn í ljóma sínum, þau skulu horfa á víðáttumikið land.18Hjarta þitt mun hugsa til skelfingartímans: Hvar er nú sá, er silfrið taldi? Hvar er sá, er vó það? Hvar er sá, sem taldi turnana?19Þú skalt ekki framar sjá hina ofstopafullu þjóð, sem talar svo óglöggt mál, að ekki verður numið, og svo óskilmerkilega tungu, að enginn fær skilið.20Lít þú á Síon, borg samfunda vorra! Augu þín skulu horfa á Jerúsalem, bústaðinn örugga, tjaldið, sem eigi er flutt úr stað, hælum þess eigi kippt upp og ekkert af stögum þess slitið.21Nei, hinn máttki, Drottinn, er þar oss til varnar, eins og fljót og breið vatnsföll, þar sem engin róðrarskip geta gengið og engin tignarleg langskip um farið.22Drottinn er vor dómari, Drottinn er vor löggjafi, Drottinn er vor konungur, hann mun frelsa oss.23Stögin eru slök hjá þér, þau halda ekki siglunni í skorðum og geta eigi þanið út seglið. Þá skal mikilli bráð og herfangi skipt verða, jafnvel haltir menn skulu ræna.24Og enginn borgarbúi mun segja: Ég er sjúkur. Fólkið, sem þar býr, hefir fengið fyrirgefning misgjörða sinna.

33.2 Vertu oss náðugur Jes 30.18-19; Slm 67.2; 123.3 – vér vonum á þig Jes 25.9; Slm 33.22 – hjálp vor Jes 12.2-3; 26.1; Slm 46.2 – á neyðartíma Slm 77.3+
33.3 Tvístrast Jes 17.13; 4Mós 10.35; Slm 68.2
33.5 Hár Jes 2.11,17 – réttur og réttlæti Jes 1.27; 32.1
33.6 Vísdómur, ótti Drottins Jes 11.2; Slm 111.10+
33.8 Sáttmálinn rofinn Jes 24.5
33.9 Land í sorg Jes 24.4 – Líbanon Jes 2.13+ ; 37.24 – Saron Jes 35.2; 65.10; 1Kor 27.29 – Basan Jes 2.13+ ; Esk 39.18; Slm 22.13; 68.16 – Karmel Nah 1.4
33.10 Drottinn rís upp Slm 12.6
33.11 Fæða hálm Jes 26.18; 59.4; Slm 7.15
33.12 Brenndar Jes 1.31; 9.1-18; sbr Am 2.1 – þyrnar Jes 5.6+ ; brenndir í eldi Jes 10.16-17
33.13 Fjarlægir Jes 49.1 – og nálægir Jes 57.19
33.14 Hver getur leitað … ? Slm 15.1; 24.3; sbr Slm 34.13 – eyðandi eld Jes 4.5; 30.27; 31.9; 5Mós 9.3
33.15 Sá sem … Slm 15.2-5; 24.4; sbr Esk 18.5-9; 22.6-16; Slm 118.19-20 – mútur sbr Jes 1.23; 5.23; Slm 15.5 – heyra ekki … Okv 1.10-16
33.18 Skelfingartími Jes 37.1-6
33.19 Óljóst mál Jes 28.11
33.20 Síon, borg hátíða Jes 30.29 – og stöðugleikans Slm 122.1-4; sbr Jes 32.18; Slm 46.6
33.21 Hinn voldugi, Drottinn Jes 12.6 – vatnsföll Jes 12.3; Esk 47.1-12; Slm 46.5
33.22 Drottinn er dómari vor Jes 2.4; Slm 50.6 – konungur vor Jes 6.5; Slm 93.1 – frelsar Jes 12.2; 25.9
33.23 Herfangi skipt Jes 9.2
33.24 Syndir fyrirgefnar Mík 7.18-19