1Drottinn talaði við Móse og sagði:2Á fyrsta degi hins fyrsta mánaðar skalt þú reisa búð samfundatjaldsins.3Þar skalt þú setja sáttmálsörkina og byrgja fyrir örkina með fortjaldinu.4Og þú skalt bera borðið þangað og raða því, sem á því skal vera. Síðan skalt þú bera þangað ljósastikuna og setja upp lampa hennar.5Og þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og hengja dúkbreiðuna fyrir búðardyrnar.6Og þú skalt setja brennifórnaraltarið fyrir framan dyr samfundatjalds-búðarinnar.7Og kerið skalt þú setja milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það.8Síðan skalt þú reisa forgarðinn umhverfis og hengja dúkbreiðu fyrir forgarðshliðið.9Þá skalt þú taka smurningarolíuna og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög.10Og þú skalt smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, og þú skalt vígja altarið, og skal altarið þá vera háheilagt.11Og þú skalt smyrja kerið og stétt þess og vígja það.12Þá skalt þú leiða Aron og sonu hans að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá úr vatni.13Og þú skalt færa Aron í hin helgu klæði, smyrja hann og vígja, að hann þjóni mér í prestsembætti.14Þú skalt og leiða fram sonu hans og færa þá í kyrtlana,15og þú skalt smyrja þá, eins og þú smurðir föður þeirra, að þeir þjóni mér í prestsembætti, og skal smurning þeirra veita þeim ævinlegan prestdóm frá kyni til kyns.16Og Móse gjörði svo. Eins og Drottinn hafði boðið honum, svo gjörði hann í alla staði.17Búðin var reist í fyrsta mánuði hins annars árs, fyrsta dag mánaðarins.18Reisti Móse búðina, lagði undirstöðurnar, sló upp þiljunum, setti í slárnar og reisti upp stólpana.19Og hann þandi tjaldvoðina yfir búðina og lagði tjaldþökin þar yfir, eins og Drottinn hafði boðið Móse.20Hann tók sáttmálið og lagði það í örkina, setti stengurnar í örkina og lét arkarlokið yfir örkina.21Og hann flutti örkina inn í búðina, setti upp fortjaldsdúkbreiðuna og byrgði fyrir sáttmálsörkina, eins og Drottinn hafði boðið Móse.22Hann setti borðið inn í samfundatjaldið, við norðurhlið búðarinnar, fyrir utan fortjaldið,23og hann raðaði á það brauðunum frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.24Hann setti upp ljósastikuna í samfundatjaldinu gegnt borðinu við suðurhlið búðarinnar.25Og hann setti upp lampana frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.26Hann setti upp gullaltarið inni í samfundatjaldinu fyrir framan fortjaldið,27og brenndi á því ilmreykelsi, eins og Drottinn hafði boðið Móse.28Síðan hengdi hann dúkbreiðuna fyrir dyr búðarinnar,29setti brennifórnaraltarið við dyr samfundatjalds-búðarinnar og fórnaði á því brennifórn og matfórn, eins og Drottinn hafði boðið Móse.30Hann setti kerið milli samfundatjaldsins og altarisins og lét vatn í það til þvottar,31og þvoðu þeir Móse, Aron og synir hans hendur sínar og fætur úr því.32Hvert sinn er þeir gengu inn í samfundatjaldið og nálguðust altarið, þvoðu þeir sér, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.33Síðan reisti hann forgarðinn umhverfis búðina og altarið og hengdi dúkbreiðuna fyrir forgarðshliðið, og hafði Móse þá aflokið verkinu.34Þá huldi skýið samfundatjaldið, og dýrð Drottins fyllti búðina,35og mátti Móse ekki inn ganga í samfundatjaldið, því að skýið lá yfir því og dýrð Drottins fyllti búðina.36Hvert sinn er skýið hófst upp frá búðinni, lögðu Ísraelsmenn upp, alla þá stund er þeir voru á ferðinni.37En er skýið hófst ekki upp, lögðu Ísraelsmenn ekki af stað fyrr en þann dag er skýið hófst upp.38Því að ský Drottins var yfir búðinni um daga, en eldbjarmi um nætur, í augsýn allra Ísraelsmanna, alla þá stund, er þeir voru á ferðinni.ferðinni

40.34 Skýið og dýrð Drottins 2Mós 24.15-16; 1Kon 8.10-13; Jes 6.3-4; Esk 43.4-5; Opb 15.8
40.36 Skýið hóf sig upp 4Mós 9.15-23