1Ó að þér vilduð umbera dálitla fávisku hjá mér! Jú, vissulega umberið þér mig.2Ég vakti yfir yður með afbrýði Guðs, því að ég hef fastnað yður einum manni, Kristi, og vil leiða fram fyrir hann hreina mey.3En ég er hræddur um, að eins og höggormurinn tældi Evu með flærð sinni, svo kunni og hugsanir yðar að spillast og leiðast burt frá einlægri og hreinni tryggð við Krist.4Því að ef einhver kemur og prédikar annan Jesú en vér höfum prédikað, eða þér fáið annan anda en þér hafið fengið, eða annað fagnaðarerindi en þér hafið tekið á móti, þá umberið þér það mætavel.5Ég álít mig þó ekki í neinu standa hinum stórmiklu postulum að baki.6Þótt mig bresti mælsku, brestur mig samt ekki þekkingu og vér höfum á allan hátt birt yður hana í öllum greinum.7Eða drýgði ég synd, er ég lítillækkaði sjálfan mig til þess að þér mættuð upphafnir verða og boðaði yður ókeypis fagnaðarerindi Guðs?8Aðra söfnuði rúði ég og tók mála af þeim til þess að geta þjónað yður, og er ég var hjá yður og leið þröng, varð ég þó ekki neinum til byrði,9því að úr skorti mínum bættu bræðurnir, er komu frá Makedóníu. Og í öllu varaðist ég að verða yður til þyngsla og mun varast.10Svo sannarlega sem sannleiki Krists er í mér, skal þessi hrósun um mig ekki verða þögguð niður í héruðum Akkeu.11Hvers vegna? Er það af því að ég elska yður ekki? Nei, Guð veit að ég gjöri það.12En það, sem ég gjöri, mun ég og gjöra til þess að svipta þá tækifærinu, sem færis leita til þess að vera jafnokar vorir í því, sem þeir stæra sig af.13Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists.14Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd.15Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra.16Enn segi ég: Ekki álíti neinn mig fávísan. En þó svo væri, þá takið samt við mér sem fávísum, til þess að ég geti líka hrósað mér dálítið.17Það sem ég tala nú, þegar ég tek upp á að hrósa mér, tala ég ekki að hætti Drottins, heldur eins og í heimsku.18Með því að margir hrósa sér af sínum mannlegu afrekum, vil ég einnig hrósa mér svo,19því að fúslega umberið þér hina fávísu, svo vitrir sem þér eruð.20Þér umberið það, þótt einhver hneppi yður í ánauð, þótt einhver eti yður upp, þótt einhver hremmi yður, þótt einhver lítilsvirði yður, þótt einhver slái yður í andlitið.21Ég segi það mér til minnkunar, að í þessu höfum vér sýnt oss veika. En þar sem aðrir láta drýgindalega, ég tala fávíslega _, þar gjöri ég það líka.22Eru þeir Hebrear? Ég líka. Eru þeir Ísraelítar? Ég líka. Eru þeir Abrahams niðjar? Ég líka.23Eru þeir þjónar Krists? Nú tala ég eins og vitfirringur! Ég fremur. Meira hef ég unnið, oftar verið í fangelsi, fleiri högg þolað og oft dauðans hættu.24Af Gyðingum hef ég fimm sinnum fengið höggin þrjátíu og níu,25þrisvar verið húðstrýktur, einu sinni verið grýttur, þrisvar beðið skipbrot, verið sólarhring í sjó.26Ég hef verið á sífelldum ferðalögum, komist í hann krappan í ám, lent í háska af völdum ræningja, í háska af völdum samlanda og af völdum heiðingja, í háska í borgum og í óbyggðum, á sjó og meðal falsbræðra.27Ég hef stritað og erfiðað, átt margar svefnlausar nætur, verið hungraður og þyrstur og iðulega fastað, og ég hef verið kaldur og klæðlaus.28Og ofan á allt annað bætist það, sem mæðir á mér hvern dag, áhyggjan fyrir öllum söfnuðunum.29Hver er sjúkur, án þess að ég sé sjúkur? Hver hrasar, án þess að ég líði?30Ef ég á að hrósa mér, vil ég hrósa mér af veikleika mínum.31Guð og faðir Drottins Jesú, hann sem blessaður er að eilífu, veit að ég lýg ekki.32Í Damaskus setti landshöfðingi Areta konungs vörð um borgina til þess að handtaka mig.33En gegnum glugga var ég látinn síga út fyrir múrinn í körfu og slapp þannig úr höndum hans.

11.2 Afbrýði Guðs 2Mós 20.5; 5Mós 4.24; 1Kor 10.22 – fastna einum manni Ef 5.25-26; Opb 19.7; 21.2-9
11.3 Tældi Evu 1Mós 3.4-13; 1Tím 2.14
11.4 Annað fagnaðarerindi Gal 1.6-9
11.7-9 Boðaði fagnaðarerindið ókeypis Post 18.3; 20.33-35; 1Kor 4.12; 9.12,18; 2Kor 12.13; Fil 4.15-18
11.8-9 Frá söfnuðunum í Makedóníu 2Kor 8.1-4
11.10 Kristur í mér Gal 2.20; Fil 1.21
11.13 Svikulir verkamenn Matt 7.15; 2Kor 2.17; Fil 3.2; 2Pét 2.1; Opb 19.20
11.14 Satan 2Kor 2.11+
11.16 Hrósað 2Kor 10.8+
11.22 Páll er Gyðingur Post 21.39; 22.3; 23.6; 26.5; Róm 11.1; Gal 2.15; Fil 3.2-6
11.23 Þjónar Krists 1Kor 15.10 – í fangelsi Post 16.23; 1Kor 15.32; Fil 1.7,13; Ef 3.1; 4.1; Kól 4.18; Fílm 1+
11.25 Húðstrýktur Post 16.22 – grýttur Post 14.19
11.26 Í háska af völdum samlanda Post 9.23; 13.50; 20.3
11.29 Öllum allt Róm 9.1-3; 1Kor 9.22
11.30 Hrósa sér af veikleika sínum 2Kor 12.9+
11.32-33 Páll flýr frá Damaskus Post 9.24-25