1En Páll hvessti augun á ráðið og mælti: Bræður, ég hef í öllu breytt með góðri samvisku fyrir Guði fram á þennan dag.2En Ananías æðsti prestur skipaði þeim, er hjá stóðu, að ljósta hann á munninn.3Þá sagði Páll við hann: Guð mun ljósta þig, kalkaði veggur. Hér situr þú til að dæma mig samkvæmt lögmálinu og skipar þó þvert ofan í lögmálið að slá mig.4Þeir, sem hjá stóðu sögðu: Smánar þú æðsta prest Guðs?5Páll svaraði: Ekki vissi ég, bræður, að hann væri æðsti prestur, því ritað er: Þú skalt ekki illmæla höfðingja lýðs þíns.6Nú vissi Páll, að sumir þeirra voru saddúkear, en aðrir farísear, og hann hrópaði upp í ráðinu: Bræður, ég er farísei, af faríseum kominn. Ég er lögsóttur fyrir vonina um upprisu dauðra.7Þegar hann sagði þetta, varð deila milli farísea og saddúkea, og þingheimur skiptist í flokka.8Því saddúkear segja, að ekki sé til upprisa, englar né andar, en farísear játa allt þetta.9Nú varð hróp mikið, og nokkrir fræðimenn af flokki farísea risu upp og fullyrtu: Vér sjáum ekki, að þessi maður hafi brotið af sér. Gæti ekki hugsast, að andi hafi talað við hann eða engill?10Deilan harðnaði og hersveitarforinginn fór að óttast, að þeir ætluðu að rífa Pál í sundur. Því skipaði hann herliðinu að koma ofan, taka hann af þeim og færa hann inn í kastalann.11Nóttina eftir kom Drottinn til hans og sagði: Vertu hughraustur! Svo sem þú hefur vitnað um mig í Jerúsalem eins ber þér og að vitna í Róm.12Þegar dagur rann, bundust Gyðingar samtökum og sóru þess eið að eta hvorki né drekka, fyrr en þeir hefðu ráðið Pál af dögum.13Voru þeir fleiri en fjörutíu, sem þetta samsæri gjörðu.14Þeir fóru til æðstu prestanna og öldunganna og sögðu: Vér höfum svarið þess dýran eið að neyta einskis, fyrr en vér höfum ráðið Pál af dögum.15Nú skuluð þér og ráðið leggja til við hersveitarforingjann, að hann láti senda hann niður til yðar, svo sem vilduð þér kynna yður mál hans rækilegar. En vér erum við því búnir að vega hann, áður en hann kemst alla leið.16En systursonur Páls heyrði um fyrirsátina. Hann gekk inn í kastalann og sagði Páli frá.17Páll kallaði til sín einn hundraðshöfðingjann og mælti: Far þú með þennan unga mann til hersveitarforingjans, því að hann hefur nokkuð að segja honum.18Hundraðshöfðinginn tók hann með sér, fór með hann til hersveitarforingjans og sagði: Fanginn Páll kallaði mig til sín og bað mig fara til þín með þennan unga mann. Hann hefur eitthvað að segja þér.19Hersveitarforinginn tók í hönd honum, leiddi hann afsíðis og spurði: Hvað er það, sem þú hefur að segja mér?20Hinn svaraði: Gyðingar hafa komið sér saman um að biðja þig að senda Pál niður í ráðið á morgun, þar eð þeir ætli að rannsaka mál hans rækilegar.21En lát þú ekki að vilja þeirra, því að menn þeirra, fleiri en fjörutíu, sitja fyrir honum og hafa svarið þess eið að eta hvorki né drekka fyrr en þeir hafi vegið hann. Nú eru þeir viðbúnir og bíða eftir, að svarið komi frá þér.22Hersveitarforinginn lét piltinn fara og bauð honum: Þú mátt engum segja, að þú hafir gjört mér viðvart um þetta.23Hann kallaði fyrir sig tvo hundraðshöfðingja og sagði: Látið tvö hundruð hermenn vera tilbúna að fara til Sesareu eftir náttmál, auk þess sjötíu riddara og tvö hundruð léttliða.24Hafið og til fararskjóta handa Páli, svo að þér komið honum heilum til Felixar landstjóra.25Og hann ritaði bréf, svo hljóðandi:26Kládíus Lýsías sendir kveðju hinum göfuga Felix landstjóra.27Mann þennan höfðu Gyðingar tekið höndum og voru í þann veginn að taka af lífi, er ég kom að með hermönnum. Ég komst að því, að hann var rómverskur, og bjargaði honum.28En ég vildi vita, fyrir hverja sök þeir ákærðu hann, og fór með hann niður í ráð þeirra.29Komst ég þá að raun um, að hann var kærður vegna ágreinings um lögmál þeirra, en engin sök var honum gefin, er sætir dauða eða fangelsi.30En þar sem ég hef fengið bendingu um, að setið sé um líf mannsins, sendi ég hann tafarlaust til þín. Ég hef jafnframt boðið ákærendum hans að flytja mál sitt gegn honum fyrir þér.31Hermennirnir tóku þá Pál, eins og þeim var boðið, og fóru með hann um nótt til Antípatris.32Daginn eftir sneru þeir aftur til kastalans, en létu riddarana fara með honum.33Þeir fóru inn í Sesareu, skiluðu bréfinu til landstjórans og færðu Pál fyrir hann.34Hann las bréfið og spurði, úr hvaða skattlandi hann væri. Var honum tjáð, að hann væri frá Kilikíu.35Þá mælti hann: Ég mun rannsaka mál þitt, þegar kærendur þínir koma. Og hann bauð að geyma hann í höll Heródesar.

23.1 Með góðri samvisku Post 24.16
23.2-3 Ljósta á munninn Jóh 18.22-23
23.2 Ananías Post 24.1
23.3 Kalkaði veggur Esk 13.10-15
23.5 Þú skalt ekki formæla … 2Mós 22.27
23.6 Saddúkear og upprisan Matt 22.23; Post 4.1-2; 23.8 – Páll var farísei Post 26.5; Fil 3.5 – vonin um upprisu dauðra Post 24.15,21; 26.6-8; 28.20
23.9 Ekki brotið af sér Lúk 23.4,14,22; Jóh 18.38; 19.4-6; Post 25.25
23.11 Drottinn styrkir Pál Post 18.9 – einnig í Róm Post 19.21; 27.24; 28.16,23
23.14-15 Samsæri gegn Páli Post 25.3
23.23 Sesarea Post 8.40; 9.20; 10.1; 11.11; 12.19; 21.8,16; 23.33; 25.4
23.24 Felix Post 24.24
23.27 Bjargaði rómverskum borgara Post 21.30-33; Post 22.27
23.28 Páll fyrir ráðinu Post 22.30
23.29 Ágreiningur um trúmál Post 18.14-15; 25.18-19; 26.31-32; sbr 23.6 – engin dauðasök Post 23.9; 26.31; 28.18
23.30 Ákærendur flytja mál Post 24.5-8; 25.5
23.32 Kastalinn Post 21.34
23.34 Frá Kilikíu Post 22.3