1Þegar þú hverfur aftur, Ísrael segir Drottinn skalt þú hverfa aftur til mín. Ef þú flytur viðurstyggðir þínar burt frá augliti mínu og ert ekki framar á sveimi2og vinnur eiðinn svo sannarlega sem Drottinn lifir í sannleika, réttvísi og einlægni, munu þjóðir óska sér hans blessunar og hrósa sér af honum.3Já, svo segir Drottinn við Júdamenn og við Jerúsalem: Takið nýtt land til yrkingar og sáið ekki ofan í þyrna!4Umskerið yður fyrir Drottni og takið burt yfirhúð hjarta yðar, þér Júdamenn og Jerúsalembúar, svo að heiftarreiði mín brjótist ekki út, eins og eldur, og brenni svo, að eigi verði slökkt, sakir vonskuverka yðar.5Kunngjörið í Júda og boðið í Jerúsalem og segið: Þeytið lúður í landinu! Kallið fullum rómi og segið: Safnist saman, og förum inn í víggirtu borgirnar!6Reisið upp hermerki í áttina til Síonar, flýið undan, standið eigi við! Því að ég kem með ógæfu úr norðri og mikla eyðing.7Ljón er risið upp úr runni sínum, þjóða-eyðir lagður af stað, farinn að heiman til þess að gjöra land þitt að auðn, borgir þínar verða gjöreyddar, mannlausar.8Gyrðið yður því hærusekk, harmið og kveinið, því að hin brennandi reiði Drottins hefir ekki snúið sér frá oss.9En á þeim degi segir Drottinn munu konungurinn og höfðingjarnir standa ráðalausir, prestarnir verða agndofa og spámennirnir skelfast.10Þá mælti ég: Æ, herra Drottinn! Vissulega hefir þú illa svikið þessa þjóð og Jerúsalem, þá er þú sagðir: Yður mun heill hlotnast! þar sem sverðið gengur nú mjög nærri þeim.11Þá mun sagt verða um þessa þjóð og um Jerúsalem: Glóandi vindur af skóglausum hæðum í eyðimörkinni kemur gegn þjóð minni, hvorki verður sáldrað né hreinsað!12Ákafur vindur kemur í móti mér, en nú vil ég einnig kveða upp dóma gegn þeim.13Sjá, eins og ský þýtur hann áfram, og vagnar hans eru eins og vindbylur, hestar hans eru fljótari en ernir. Vei oss, það er úti um oss!14Þvo illskuna af hjarta þínu, Jerúsalem, til þess að þú frelsist. Hversu lengi eiga þínar syndsamlegu hugsanir að búa í brjósti þér?15Því heyr, menn segja tíðindi frá Dan og boða ógæfu frá Efraímfjöllum.16Segið þjóðunum frá því, kallið á þær gegn Jerúsalem! Umsátursmenn koma úr fjarlægu landi og hefja óp gegn Júdaborgum.17Eins og akurverðir sitja þeir hringinn í kringum hana, af því að hún hefir þrjóskast í gegn mér segir Drottinn.18Atferli þitt og gjörðir þínar hafa bakað þér þetta, þetta hefir þú fyrir illsku þína. Já, beiskt er það, það gengur mjög nærri þér.19Iður mín, iður mín! Ég engist sundur og saman! Ó, veggir hjarta míns! Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ég get ekki þagað! Því að önd mín heyrir lúðurhljóminn, bardagaópið.20Hrun á hrun ofan er boðað, já allt landið er eytt. Skyndilega eru tjöld mín eydd, tjalddúkar mínir tættir sundur allt í einu.21Hversu lengi á ég að sjá gunnfána, hversu lengi á ég að heyra lúðurhljóm?22Já, fíflsk er þjóð mín, mig þekkja þeir ekki. Heimskir synir eru þeir, og vanhyggnir eru þeir. Vitmenn eru þeir illt að fremja, en gott að gjöra kunna þeir ekki.23„Ég leit jörðina, og sjá, hún var auð og tóm; ég horfði til himins, og ljós hans var slokknað.“24Ég leit á fjöllin, og sjá, þau nötruðu, og allar hæðirnar, þær bifuðust.25Ég litaðist um, og sjá, þar var enginn maður, og allir fuglar himinsins voru flúnir.26Ég litaðist um, og sjá, aldingarðurinn var orðinn að eyðimörk og allar borgir hans gjöreyddar af völdum Drottins, af völdum hans brennandi reiði.27Svo segir Drottinn: Auðn skal allt landið verða, en aleyðing á því vil ég ekki gjöra.28Vegna þessa syrgir jörðin og himinninn uppi er dimmur, af því að ég hefi sagt það, og mig iðrar þess eigi, hefi ákveðið það og hætti ekki við það.29Fyrir harki riddaranna og bogmannanna er hver borg á flótta. Menn skríða inn í runna og stíga upp á kletta. Allar borgir eru yfirgefnar og enginn maður býr framar í þeim.30En þú, eyðingunni ofurseld, hvað ætlar þú að gjöra? Þótt þú klæðist skarlati, þótt þú skreytir þig með gullskarti, þótt þú smyrjir augu þín blýlit, til einskis gjörir þú þig fagra. Friðlarnir hafna þér, þeir sitja um líf þitt.31Já, hljóð heyri ég, eins og í jóðsjúkri konu, angistaróp, eins og í konu, sem er að ala fyrsta barnið, óp dótturinnar Síonar, sem stendur á öndinni af kvölum og breiðir út hendurnar: Ó, vei mér, því að örmagna hnígur sál mín fyrir morðingjum.

4.1 Snýrð aftur Jer 3.12+ – til mín Jl 2.12 – viðurstyggilega Jer 7.30; 13.27; 16.18; 32.34; 5Mós 29.17; 2Kon 23.13,24; Esk 5.11; 7.20; Nah 3.6, sbr 2Mós 20.3
4.2 Sverja Jer 5.2; 12.16; 23.7-8; 44.26; 5Mós 6.13 – njóta blessunar sbr 1Mós 22.18; 26.4; Jes 65.16; Matt 5.16
4.3 Nýtt land Hós 10.12; Matt 13.23
4.4 Umskurn hjartans 5Mós 10.16; 30.6; Róm 2.29; sbr Jer 9.25-26; 3Mós 26.41; sbr Jer 6.10
4.5 Lúðurhljómur (hættumerki) Jer 4.19,21; 6.1,17; 42.14; 51.27 – safnist saman Jer 8.14
4.6 Úr norðri Jer 1.14+ – tortíming 4.20; 6.1; 8.21; 10.19; 14.17; 30.12
4.7 Ljón Jer 2.15; 5.6; 49.19; 50.44; Jes 5.29; Nah 2.12
4.8 Gyrða sig hærusekk Jer 6.26; 48.37; 49.3; Jes 15.3; Esk 7.18 – hin glóandi reiði Jer 4.26; 12.13; 25.37-38; 51.45; Nah 1.6 – er ekki horfin frá oss Jer 4.26, Jes 5.25
4.10 Farnast vel Jer 14.13; sbr 28.6
4.12 Dómar Drottins Jer 1.16; 12.1
4.13 Vagnar hans Nah 2.5 – hestarnir Hab 1.8; Hlj 4.19
4.14 Hreinsaðu hjarta þitt Jes 1.16; Esk 18.31; Jak 4.8
4.18 Þín eigin illska Jer 2.17,19; Slm 107.17
4.19 Engist sundur og saman Jer 13.17; 2Kon 8.11; Hab 3.16; Hlj 1.20
4.20 Hrun Jer 4.6+ ; Esk 7.26
4.22 Heimsk er þjóðin Jer 5.21; 8.7; 5Mós 32.28; Jes 27.11; Hós 4.6; Slm 82.5; Lúk 24.25 – kunna ekki Jer 13.23; Róm 7.21 – gott að gera Am 5.14-15, Slm 34.13-15
4.23 Auð og tóm 1Mós 1.2 – dimmur himinn Jer 4.28; Jes 50.3; Mrk 15.33
4.24 Fjöllin skulfu Dóm 5.5; Jes 5.25+ ; Nah 1.5; Slm 46.3-4
4.25 Fuglarnir flognir Jer 9.9; 12.4; 50.3; Hós 4.3; Sef 1.3
4.26 Aldingarður að eyðimörk 3Mós 26.33; Slm 107.34
4.27 Ekki gereyða Jer 5.10,18; 30.11
4.28 Jörðin syrgir Jer 12.4; 23.10 – iðrar þess ekki Am 1.3,6 og fl.; sbr Jer 23.19
4.30 Þeir sem girntust þig Jer 22.20,22; 30.14; Esk 16.33-37; 23.7,9,22; Hós 2.7,9; Hlj 1.19
4.31 Vein jóðsjúkrar konu Jer 6.24; 30.6; 48.41; 49.22; 50.43; Mík 4.9-10+