1Páll, kallaður að Guðs vilja til að vera postuli Jesú Krists, og Sósþenes, bróðir vor, heilsa2söfnuði Guðs í Korintu, þeim sem helgaðir eru í Kristi Jesú, heilagir að köllun til, ásamt öllum þeim, sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists, sem er þeirra Drottinn og vor.3Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.4Ávallt þakka ég Guði mínum yðar vegna fyrir þá náð, sem hann hefur gefið yður í Kristi Jesú.5Í honum eruð þér auðgaðir orðnir í öllu, í hvers konar ræðu og hvers konar þekkingu.6Vitnisburðurinn um Krist er líka staðfestur orðinn á meðal yðar,7svo að yður brestur ekki neina náðargjöf meðan þér væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists.8Hann mun og gjöra yður staðfasta allt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists.9Trúr er Guð, sem yður hefur kallað til samfélags sonar síns Jesú Krists, Drottins vors.10En ég áminni yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér séuð allir samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun.11Því að mér hefur verið tjáð um yður, bræður mínir, af heimilismönnum Klóe, að þrætur eigi sér stað á meðal yðar.12Ég á við þetta, að sumir yðar segja: Ég er Páls, og aðrir: Ég er Apollóss, eða: Ég er Kefasar, eða: Ég er Krists.13Er þá Kristi skipt í sundur? Mun Páll hafa verið krossfestur fyrir yður? Eða eruð þér skírðir til nafns Páls?14Ég þakka Guði fyrir, að ég hef engan yðar skírt nema Krispus og Gajus,15til þess að enginn skuli segja, að þér séuð skírðir til nafns míns.16Jú, ég skírði líka Stefanas og heimamenn hans. Annars veit ég ekki til, að ég hafi skírt neinn annan.17Ekki sendi Kristur mig til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindið, og ekki með orðspeki, til þess að kross Krists missti ekki gildi sitt.18Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs.19Ritað er: Ég mun eyða speki spekinganna, og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gjöra.20Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefur Guð ekki gjört speki heimsins að heimsku?21Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar.22Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki,23en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku,24en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.25Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari.26Bræður, hyggið að köllun yðar: Þér voruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir.27En Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika til að gjöra hinu volduga kinnroða.28Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, það sem ekkert er, til þess að gjöra að engu það, sem eitthvað er,29til þess að enginn maður skuli hrósa sér fyrir Guði.30Honum er það að þakka að þér eruð í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn.31Eins og ritað er: Sá, sem hrósar sér, hrósi sér í Drottni.

1.1 Páll postuli Róm 1.1; 2Kor 1.1; Gal 1.1 o.fl. – Sósþenes sbr Post 18.17
1.2 Söfnuður Guðs sbr 5Mós 23.1-8 – helga 1Kor 6.11 – þeim sem ákalla Post 9.14+ ; sbr Post 2.21; Róm 10.13
1.3 Náð og friður Róm 1.7
1.7 Opinberun Jesú Krists Lúk 17.30; 2Þess 1.7; Tít 2.13
1.8 Dagur Jesú Krists Fil 1.6; 1Þess 3.13; 5.23; sbr Am 5.18; 1Kor 3.13; 5.5
1.9 Guð er trúr 5Mós 7.9; 1Kor 10.13; 1Þess 5.24 – samfélag sonar hans 1Jóh 1.3
1.10 Samhuga Fil 2.2
1.12 Ég fylgi Páli … 1Kor 3.4 – Apollós Post 18.24+ – Kefas (Pétur) Jóh 1.42; 1Kor 3.22; 9.5; 15.5; Gal 1.18; 2.9-14; sbr Matt 4.18+
1.14 Krispus Post 18.8 – Gajus sbr Post 19.29; Róm 16.23
1.16 Heimamenn Stefanusar 1Kor 16.15,17
1.17 Boða fagnaðarerindi … skíra Matt 28.19; Jóh 4.2 – ekki með lærðu orðskrúði 1Kor 2.1-5
1.18 Stefna í glötun 2Kor 4.3 – kraftur Guðs Róm 1.16
1.19 Seki spekinganna Jes 29.14
1.20 Hvar er vitringur? Jes 19.12 – hvar fræðimaður? sbr Jes 33.18 – speki heimsins heimska Jes 44.25
1.21 Þekktu ekki Matt 11.25; Róm 1.19-21
1.22 Gyðingar heimta tákn Matt 12.38; Jóh 4.48 – Grikkir leita speki Post 17.18,32
1.23 Gyðingum hneyksli Róm 9.32 – heiðingjum heimska 1Kor 2.14
1.24 Kristur speki Guðs Kól 2.3
1.25 Veikleiki Guðs 2Kor 13.4
1.26 Vitur, voldug Matt 11.25; Jóh 7.48; Jak 2.1-5
1.29 Hrósa sér Róm 3.27; Ef 2.9
1.30 Vísdómur, réttlæti Jer 23.5-6 – helgun Jóh 17.19 – endurlausn 2Kor 5.21
1.31 Sá, sem … Jer 9.22-23; 2Kor 10.17