1Í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði, og Orðið var Guð.2Hann var í upphafi hjá Guði.3Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt, sem til er.4Í honum var líf, og lífið var ljós mannanna.5Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því.6Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes.7Hann kom til vitnisburðar, til að vitna um ljósið, svo að allir skyldu trúa fyrir hann.8Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.9Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn.10Hann var í heiminum, og heimurinn var orðinn til fyrir hann, en heimurinn þekkti hann ekki.11Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum.12En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, er trúa á nafn hans.13Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir.14Og Orðið varð hold, hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika, og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðurnum.15Jóhannes vitnar um hann og hrópar: Þetta er sá sem ég átti við, þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig, var á undan mér, enda fyrri en ég.16Af gnægð hans höfum vér allir þegið, náð á náð ofan.17Lögmálið var gefið fyrir Móse, en náðin og sannleikurinn kom fyrir Jesú Krist.18Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann.19Þessi er vitnisburður Jóhannesar, þegar Gyðingar sendu til hans presta og levíta frá Jerúsalem að spyrja hann: Hver ert þú?20Hann svaraði ótvírætt og játaði: Ekki er ég Kristur.21Þeir spurðu hann: Hvað þá? Ertu Elía? Hann svarar: Ekki er ég hann. Ertu spámaðurinn? Hann kvað nei við.22Þá sögðu þeir við hann: Hver ertu? Vér verðum að svara þeim, er sendu oss. Hvað segir þú um sjálfan þig?23Hann sagði: Ég er rödd hrópanda í eyðimörk: Gjörið beinan veg Drottins, eins og Jesaja spámaður segir.24Sendir voru menn af flokki farísea.25Þeir spurðu hann: Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?26Jóhannes svaraði: Ég skíri með vatni. Mitt á meðal yðar stendur sá, sem þér þekkið ekki,27hann, sem kemur eftir mig, og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.28Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.29Daginn eftir sér hann Jesú koma til sín og segir: Sjá, Guðs lamb, sem ber synd heimsins.30Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður, sem var á undan mér, því hann er fyrri en ég.31Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni, að hann opinberist Ísrael.32Og Jóhannes vitnaði: Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu, og hann nam staðar yfir honum.33Sjálfur þekkti ég hann ekki, en sá er sendi mig að skíra með vatni, sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda.34Þetta sá ég, og ég vitna, að hann er sonur Guðs.35Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans.36Hann sér Jesú á gangi og segir: Sjá, Guðs lamb.37Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú.38Jesús sneri sér við, sá þá koma á eftir sér og sagði við þá: Hvers leitið þið? Þeir svara: Rabbí það þýðir meistari , hvar dvelst þú?39Hann segir: Komið og sjáið. Þeir komu og sáu, hvar hann dvaldist, og voru hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis.40Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jóhannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés, bróðir Símonar Péturs.41Hann finnur fyrst bróður sinn, Símon, og segir við hann: Við höfum fundið Messías! Messías þýðir Kristur, Hinn smurði.42Hann fór með hann til Jesú. Jesús horfði á hann og sagði: Þú ert Símon Jóhannesson, þú skalt heita Kefas Pétur, það þýðir klettur .43Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: Fylg þú mér!44Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur.45Filippus fann Natanael og sagði við hann: Vér höfum fundið þann, sem Móse skrifar um í lögmálinu og spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.46Natanael sagði: Getur nokkuð gott komið frá Nasaret? Filippus svaraði: Kom þú og sjá.47Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: Hér er sannur Ísraelíti, sem engin svik eru í.48Natanael spyr: Hvaðan þekkir þú mig? Jesús svarar: Ég sá þig undir fíkjutrénu, áður en Filippus kallaði á þig.49Þá segir Natanael: Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.50Jesús spyr hann: Trúir þú, af því að ég sagði við þig: Ég sá þig undir fíkjutrénu? Þú munt sjá það, sem þessu er meira.51Og hann segir við hann: Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.

1.1 Í upphafi Okv 8.22-26; Sír 24.9; Jóh 17.5; 1Jóh 1.1-2 – Orðið Opb 19.13; sbr Sír 24.3 – hjá Guði Jóh 5.17-30 – Orðið var Guð Fil 2.6; Kól 1.15; Heb 1.3
1.3 Orðið og sköpunin 1Mós 1.3; Slm 33.6,9; 147.15-18; Jes 40.26; 48.3; SSal 9.1; Jóh 1.10; 1Kor 8.6; Kól 1.16-17; Heb 1.2 – spekin og sköpunin Okv 8.27-30; SSal 9.9
1.4 Í honum var líf Jóh 5.26 – ljós Jóh 8.12+
1.5 Tók ekki á móti Jóh 1.10-13; 3.19; sbr SSal 13.1-9; Róm 1.19-23; 1Kor 1.21
1.6 Jóhannes Lúk 1.13,17,76; Matt 3.1+
1.7 Jóhannes vitnar Jóh 1.15,19-34; 3.27-30; 5.33; 10.41
1.8 Ekki ljósið Jóh 1.20
1.9 Hið sanna ljós 1Jóh 2.8 – kom nú Jóh 6.14
1.10 Heimurinn Jóh 3.16; 12.31; 1Jóh 2.16 – orðinn til fyrir hann Jóh 1.3+ – þekkti hann ekki Jóh 17.25
1.12 Nafnið Jóh 2.23; 3.18; 1Jóh 3.23; 5.13 – þeim sem trúa … Gal 3.26 – Guðs börn Jóh 11.52; 1Jóh 3.1-2,10; 5.2,4,18
1.13 Af Guði fædd Jóh 3.3,5-6; Jak 1.18; 1Pét 1.23; 1Jóh 3.9; 5.18
1.14 Orðið varð hold Róm 1.3; Gal 4.4; Fil 2.7; 1Tím 3.16; Heb 2.14; 1Jóh 4.2 – hold Jóh 3.6+ – vér sáum dýrð hans Jes 60.1-2; Lúk 9.32; Jóh 2.11; sbr Jóh 12.23,28; 13.31; 17.2-5,22-23 – náð og sannleikur 2Mós 34.6
1.15 Jóhannes vitnar Jóh 1.30 – kemur eftir mig Matt 3.11; Mrk 1.7; Jóh 1.27
1.16 Af gnægð hans Kól 2.9-10
1.17 Lögmálið gefið með Móse 2Mós 31.18; 34.28; Jóh 7.19
1.18 Sjá Guð 2Mós 33.20; Jóh 6.46; 1Tím 6.16; 1Jóh 4.12 – sonurinn eini Matt 11.27; Lúk 10.22
1.20 Ekki er ég Kristur Jóh 3.28
1.21 Elía Matt 11.14+ – spámaðurinn Matt 21.11+
1.23 Rödd í eyðimörk Jes 40.3; Matt 3.3 og hlst.
1.25-26 Skírn Jóhannesar Matt 3.6+
1.27 Kemur eftir mig Jóh 1.15 – ekki verður … Matt 3.11 og hlst.; Post 13.25
1.28 Jórdan Matt 3.13; Jóh 10.40
1.29 Guðs lamb Jóh 1.36 – ber synd heimsins Jes 53.6-7; Post 8.32; 1Pét 1.18-19; sbr 1Kor 5.7-12
1.30 Eftir mig kemur … Jóh 1.15,27
1.32 Andann koma af himni Matt 3.16 og hlst. – nam staðar yfir honum Jes 11.2; 61.1; sbr Jóh 3.34
1.34 Sonur Guðs Matt 3.17; 17.5 og hlst.; sbr Matt 14.33+ ; Mrk 1.1+
1.36 Guðs lamb Jóh 1.29
1.40 Andrés, Símon Pétur Matt 4.18+ og hlst.
1.41 Messías Jóh 4.25; sbr Lúk 4.41+
1.42 Kefas 1Kor 1.12+ – Pétur Matt 10.2; 16.18; Mrk 3.16; Lúk 6.14; sbr Matt 4.18+
1.44 Filippus Matt 10.3+ – Betsaída Jóh 12.21; sbr Matt 11.21+
1.45 Fundið þann … 5Mós 18.18; Jes 9.7; Esk 34.23
1.49 Sonur Guðs Slm 2.7; Matt 14.33+ ; Mrk 1.1,11 og hlst.; 4.41; Jóh 11.27; Post 13.33 – konungur Ísraels Sef 3.15; Matt 27.42; Mrk 15.32; Jóh 12.13+
1.51 Sjá himininn opinn Matt 3.16+ – englar stíga upp og niður 1Mós 28.12 – Mannssonurinn Matt 8.20+