1Jesús gekk út úr helgidóminum og hélt brott. Þá komu lærisveinar hans og vildu sýna honum byggingar helgidómsins.2Hann sagði við þá: Þér sjáið allt þetta? Sannlega segi ég yður, hér mun ekki eftir látinn steinn yfir steini, er eigi sé niður brotinn.3Þá er hann sat á Olíufjallinu, gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: Seg þú oss, hvenær verður þetta? Og hvert mun tákn komu þinnar og endaloka veraldar?4Jesús svaraði þeim: Varist að láta nokkurn leiða yður í villu.5Margir munu koma í mínu nafni og segja: Ég er Kristur! og marga munu þeir leiða í villu.6Þér munuð spyrja hernað og ófriðartíðindi. Gætið þess, að skelfast ekki. Þetta á að verða, en endirinn er ekki þar með kominn.7Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum.8Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna.9Þá munu menn framselja yður til pyndinga og taka af lífi, og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns.10Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata.11Fram munu koma margir falsspámenn og leiða marga í villu.12Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna.13En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.14Og þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma.15Þegar þér sjáið viðurstyggð eyðingarinnar, sem Daníel spámaður talar um, standa á helgum stað, lesandinn athugi það16þá flýi þeir, sem í Júdeu eru, til fjalla.17Sá sem er uppi á þaki, fari ekki ofan að sækja neitt í hús sitt.18Og sá sem er á akri, skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína.19Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum.20Biðjið, að flótti yðar verði ekki um vetur eða á hvíldardegi.21Þá verður sú mikla þrenging, sem engin hefur þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og mun aldrei verða.22Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir, kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu munu þeir dagar styttir verða.23Ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur eða þar, þá trúið því ekki.24Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn, og þeir munu gjöra stór tákn og undur til að leiða afvega jafnvel hina útvöldu, ef orðið gæti.25Sjá, ég hef sagt yður það fyrir.26Ef þeir segja við yður: Sjá, hann er í óbyggðum, þá farið ekki þangað. Ef þeir segja: Sjá, hann er í leynum, þá trúið því ekki.27Eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs, svo mun verða koma Mannssonarins.28Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.29En þegar eftir þrenging þessara daga mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og kraftar himnanna bifast.30Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni, og allar kynkvíslir jarðarinnar hefja kveinstafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð.31Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri, og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli.32Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd.33Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið allt þetta, að hann er í nánd, fyrir dyrum.34Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.35Himinn og jörð munu líða undir lok, en orð mín munu aldrei undir lok líða.36En þann dag og stund veit enginn, hvorki englar á himnum né sonurinn, enginn nema faðirinn einn.37Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins.38Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina.39Og þeir vissu ekki, fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Mannssonarins.40Þá verða tveir á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.41Tvær munu mala á kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.42Vakið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur.43Það skiljið þér, að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi.44Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi.45Hver er sá trúi og hyggni þjónn, sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma?46Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.47Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.48En ef illur þjónn segir í hjarta sínu: Húsbónda mínum dvelst,49og hann tekur að berja samþjóna sína og eta og drekka með svöllurum,50þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi, sem hann væntir ekki, á þeirri stundu, sem hann veit ekki,51höggva hann og láta hann fá hlut með hræsnurum. Þar verður grátur og gnístran tanna.

24.1-14 Hlst. Mrk 13.1-13; Lúk 21.5-19
24.1 Musterið Jóh 2.20
24.2 Ekki steinn yfir steini Lúk 19.44
24.3 Koma Jesú Matt 24.27,37,39; 1Kor 15.23; 1Þess 2.19; 3.13; 4.15; 5.23; 2Þess 2.1,8; Jak 5.7,8; 2Pét 3.4,12; Jóh 2.28; sbr Matt 10.23+
24.4 Leiða í villu Matt 24.5,11,24; 1Jóh 1.8; 2.26; 3.7; Opb 2.20; 12.9; 13.14
24.6 Þetta á að verða Dan 2.28
24.7 Þjóð gegn þjóð Jes 19.2-6,17
24.8 Fæðingarhríðir Jes 13.8; Hós 13.13; Jóh 16.21
24.9 Menn framselja yður Matt 10.17,23 – þrengingar Matt 13.21; sbr 2Kor 1.4; 2.4; 6.4; Opb 7.14 – lífláta Jóh 16.2 – hata ykkur Matt 10.22; Jóh 15.18
24.11 Falsspámenn Matt 7.15+
24.13 Staðfastur Matt 10.22
24.14 Boðun fagnaðarerindisins Matt 26.13; 28.19; Mrk 1.14; 14.9; 16.15; Gal 2.2; Kól 1.23; 1Þess 2.9; sbr Matt 3.1+ – um alla heimsbyggðina Róm 10.18 – fái að heyra Matt 10.18 – endirinn Matt 10.22; 24.6,13
24.15-28 Hlst. Mrk 13.14-23; Lúk 21.20-24
24.15 Viðurstyggð eyðileggingarinnar Dan 9.27; 11.31; 12.11; 1Makk 1.54; 6.4
24.17 Uppi á þaki Lúk 17.31
24.19 Vei Matt 11.21+
24.21 Þrenging Dan 12.1; sbr Jl 2.2; Opb 7.14
24.24 Falskristar Matt 24.5; Post 5.36; 1Jóh 2.18 – tákn 5Mós 13.2-4; 2Þess 2.9-10; Opb 13.13-14
24.27 Koma Mannssonarins Matt 24.3+ ; sbr 10.23+
24.28 Ernir og hræ Lúk 17.37
24.29-31 Hlst. Mrk 13.24-27; Lúk 21.25-28
24.29 Sbr Jes 13.10; 24.4 – sólin sortnar Esk 32.7; Jl 2.10; 3.4; Opb 6.12 – festingar riðlast Hag 2.6,21; Opb 6.13
24.30 Kveinstafir Sak 12.10,11; Opb 1.7 – Mannssonurinn á skýjum Dan 7.13-14; Matt 26.64; Matt 16.27; sbr 2Mós 19.16; 34.5; Esk 10.3-4; Matt 17.5
24.31 Sbr 5Mós 30.4; Sak 2.10; Neh 1.9; Esk 37.9 – hann sendir engla sína Matt 13.41 – lúður Jes 27.13; 1Kor 15.52; 1Þess 4.16
24.32-35 Hlst. Mrk 13.28-31; Lúk 21.29-33
24.33 Mannssonurinn Matt 8.20+
24.34 Allt komið fram Matt 10.23; 16.28; 23.36
24.35 Líða undir lok – standast Matt 5.18; Lúk 16.17
24.36-44 Hlst. Mrk 13.32-37; Lúk 17.26-30,34-36
24.36 Sá dagur Post 1.7; 1Þess 5.1,2
24.37 Dagar Nóa 1Mós 6.9,12 – koma Mannssonarins Matt 24.3+ ; sbr Matt 10.23+
24.38 Syndaflóðið 1Mós 6.13-7.24; 2Pét 3.6
24.42 Vakið Matt 26.38-41; Mrk 13.35-37; Lúk 12.37,40; 21.36; Post 20.31; 1Kor 16.13; 1Þess 5.6; 1Pét 5.8; Opb 3.3; 16.15
24.43 Þjófur 1Þess 5.2; 2Pét 3.10; Opb 3.3; 16.15; sbr Matt 6.19
24.45-51 Hlst. Lúk 12.41-48
24.47 Setja yfir Matt 25.21,23
24.51 Hræsnarar Matt 6.2+ – grátur og gnístran tanna Matt 8.12+