1Nú voru tveir dagar til páska og hátíðar ósýrðu brauðanna. Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu handsamað Jesú með svikum og tekið hann af lífi.2En þeir sögðu: Ekki á hátíðinni, þá gæti orðið uppþot með lýðnum.3Hann var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa, og sat að borði. Þá kom þar kona og hafði alabastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardussmyrslum. Hún braut buðkinn og hellti yfir höfuð honum.4En þar voru nokkrir, er gramdist þetta, og þeir sögðu sín á milli: Til hvers er þessi sóun á smyrslum?5Þessi smyrsl hefði mátt selja fyrir meira en þrjú hundruð denara og gefa fátækum. Og þeir atyrtu hana.6En Jesús sagði: Látið hana í friði! Hvað eruð þér að angra hana? Gott verk gjörði hún mér.7Fátæka hafið þér jafnan hjá yður og getið gjört þeim gott, nær þér viljið, en mig hafið þér ekki ávallt.8Hún gjörði það, sem í hennar valdi stóð. Hún hefur fyrirfram smurt líkama minn til greftrunar.9Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindið verður flutt, um heim allan, mun og getið verða þess, sem hún gjörði, til minningar um hana.10Júdas Ískaríot, einn þeirra tólf, fór þá til æðstu prestanna að framselja þeim hann.11Þegar þeir heyrðu það, urðu þeir glaðir við og hétu honum fé fyrir. En hann leitaði færis að framselja hann.12Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna, þegar menn slátruðu páskalambinu, sögðu lærisveinar hans við hann: Hvert vilt þú, að vér förum og búum þér páskamáltíðina?13Þá sendi hann tvo lærisveina sína og sagði við þá: Farið inn í borgina, og ykkur mun mæta maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum,14og þar sem hann fer inn, skuluð þið segja við húsráðandann: Meistarinn spyr: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?15Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum og til reiðu. Hafið þar viðbúnað fyrir oss.16Lærisveinarnir fóru, komu inn í borgina og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.17Um kvöldið kom hann með þeim tólf.18Þegar þeir sátu að borði og mötuðust sagði Jesús: Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig, einn sem með mér etur.19Þeir urðu hryggir við og sögðu við hann, einn af öðrum: Ekki er það ég?20Hann svaraði þeim: Það er einn þeirra tólf. Hann dýfir í sama fat og ég.21Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.22Þá er þeir mötuðust, tók hann brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf þeim og sagði: Takið, þetta er líkami minn.23Og hann tók kaleik, gjörði þakkir og gaf þeim, og þeir drukku af honum allir.24Og hann sagði við þá: Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga.25Sannlega segi ég yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins til þess dags, er ég drekk hann nýjan í Guðs ríki.26Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.27Og Jesús sagði við þá: Þér munuð allir hneykslast, því að ritað er: Ég mun slá hirðinn, og sauðirnir munu tvístrast.28En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.29Þá sagði Pétur: Þótt allir hneykslist, geri ég það aldrei.30Jesús sagði við hann: Sannlega segi ég þér: Nú í nótt, áður en hani galar tvisvar, muntu þrisvar afneita mér.31En Pétur kvað enn fastar að: Þó að ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér. Eins töluðu þeir allir.32Þeir koma til staðar, er heitir Getsemane, og Jesús segir við lærisveina sína: Setjist hér, meðan ég biðst fyrir.33Hann tók með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes. Og nú setti að honum ógn og angist.34Hann segir við þá: Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið.35Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll til jarðar og bað, að sú stund færi fram hjá sér, ef verða mætti.36Hann sagði: Abba, faðir! allt megnar þú. Tak þennan kaleik frá mér! Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.37Hann kemur aftur og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: Símon, sefur þú? Gastu ekki vakað eina stund?38Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.39Aftur vék hann brott og baðst fyrir með sömu orðum.40Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra. Og ekki vissu þeir, hvað þeir ættu að segja við hann.41Í þriðja sinn kom hann og sagði við þá: Sofið þér enn og hvílist? Nú er nóg. Stundin er komin. Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.42Standið upp, förum! Sá er í nánd, er mig svíkur.43Um leið, meðan hann var enn að tala, kemur Júdas, einn þeirra tólf, og með honum flokkur manna frá æðstu prestunum, fræðimönnunum og öldungunum, og höfðu þeir sverð og barefli.44Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum og færið brott í tryggri vörslu.45Hann kemur, gengur beint að Jesú og segir: Rabbí! og kyssti hann.46En hinir lögðu hendur á hann og tóku hann.47Einn þeirra, er hjá stóðu, brá sverði, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.48Þá sagði Jesús við þá: Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig?49Daglega var ég hjá yður í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum. En ritningarnar hljóta að rætast.50Þá yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og flýðu.51En maður nokkur ungur fylgdist með honum. Hann hafði línklæði eitt á berum sér. Þeir vildu taka hann,52en hann lét eftir línklæðið og flýði nakinn.53Nú færðu þeir Jesú til æðsta prestsins. Þar komu saman allir æðstu prestarnir, öldungarnir og fræðimennirnir.54Pétur fylgdi honum álengdar, allt inn í garð æðsta prestsins. Þar sat hann hjá þjónunum og vermdi sig við eldinn.55Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu vitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann, en fundu eigi.56Margir báru þó ljúgvitni gegn honum, en framburði þeirra bar ekki saman.57Þá stóðu nokkrir upp og báru ljúgvitni gegn honum og sögðu:58Vér heyrðum hann segja: Ég mun brjóta niður musteri þetta, sem með höndum er gjört, og reisa annað á þrem dögum, sem ekki er með höndum gjört.59En ekki bar þeim heldur saman um þetta.60Þá stóð æðsti presturinn upp og spurði Jesú: Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?61En hann þagði og svaraði engu. Enn spurði æðsti presturinn hann: Ertu Kristur, sonur hins blessaða?62Jesús sagði: Ég er sá, og þér munuð sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma í skýjum himins.63Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: Hvað þurfum vér nú framar votta við?64Þér heyrðuð guðlastið. Hvað líst yður? Og þeir dæmdu hann allir sekan og dauða verðan.65Þá tóku sumir að hrækja á hann, þeir huldu andlit hans, slógu hann með hnefunum og sögðu við hann: Spáðu! Eins börðu þjónarnir hann.66Pétur var niðri í garðinum. Þar kom ein af þernum æðsta prestsins67og sá, hvar Pétur var að orna sér. Hún horfir á hann og segir: Þú varst líka með manninum frá Nasaret, þessum Jesú.68Því neitaði hann og sagði: Ekki veit ég né skil, hvað þú ert að fara. Og hann gekk út í forgarðinn, en þá gól hani.69Þar sá þernan hann og fór enn að segja við þá, sem hjá stóðu: Þessi er einn af þeim.70En hann neitaði sem áður. Litlu síðar sögðu þeir, er hjá stóðu enn við Pétur: Víst ertu einn af þeim, enda ertu Galíleumaður.71En hann sór og sárt við lagði: Ég þekki ekki þennan mann, sem þér talið um.72Um leið gól hani annað sinn, og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt við hann: Áður en hani galar tvisvar muntu þrisvar afneita mér. Þá fór hann að gráta.

14.1-2 Hlst. Matt 26.1-5; Lúk 22.1-2; Jóh 11.45-53
14.1 Páskar 2Mós 12.1-20; 5Mós 16.1-8 – ráðagjörðir gegn Jesú Matt 12.14+
14.3-9 Hlst. Matt 26.6-13; Jóh 12.1-8
14.3 Betanía Matt 21.17+ ; kona sbr Lúk 7.36-38
14.7 Fátækir 5Mós 15.11
14.8 Smurning til greftrunar Mrk 16.1; Jóh 19.40
14.9 Fagnaðarerindið Mrk 1.1+ – um heim allan Matt 24.14; Róm 10.8
14.10-11 Hlst. Matt 26.14-16; Lúk 22.3-6
14.10 Júdas Ískaríot Matt 10.4+ – hinir tólf Matt 10.2+ – framselja Matt 26.2+
14.12-25 Hlst. Matt 26.17-29; Lúk 22.7-23; Jóh 13.21-30; 1Kor 11.23-25
14.12 Páskalambið 2Mós 12.6,14-20
14.18 Einn sem með mér etur Slm 41.10; Jóh 13.18
14.21 Mannssonurinn Matt 8.20+
14.22 Brauð Matt 14.19 og hlst.; 15.36; Mrk 8.6
14.23 Kaleikur 1Kor 10.16
14.24 Blóð sáttmálans 2Mós 24.8; Sak 9.11; Heb 9.20 – fyrir marga Mrk 10.45+
14.25 Í Guðs ríki Jes 25.6; Lúk 13.29
14.26-31 Hlst. Matt 26.30-35; Lúk 22.31-34; Jóh 13.36-38
14.26 Lofsöngurinn Slm 115-118
14.27 Hafna Matt 5.29+ – ritað er Sak 13.7; sbr Matt 26.56; Mrk 14.50
14.28 Til Galíleu Matt 26.32; 28.7,10,16; Mrk 16.7; Jóh 21; sbr Mrk 1.14
14.31 Deyja með Jesú Jóh 11.16
14.32-42 Hlst. Matt 26.36-46; Lúk 22.39-46
14.32 Getsemane sbr Jóh 18.1
14.33 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1+ og hlst.; Mrk 1.29
14.34 Hryggð Slm 42.6,12; 43.5; Jóh 12.27 – allt til dauða Jón 4.9
14.35 Sú stund Jóh 12.27; 13.1; 17.1
14.36 Abba, faðir Róm 8.15; Gal 4.6; sbr Lúk 11.2 – þessi kaleikur Matt 20.22+ ; Mrk 10.38 – sem þú vilt Matt 6.10+ ; Jóh 5.30; 6.38
14.38 Freistni Matt 6.13; Lúk 11.4
14.43-52 Hlst. Matt 26.47-56; Lúk 22.47-53; Jóh 18.3-12
14.43 Júdas Matt 10.4+ ; Mrk 14.10 – æðstu prestar, fræðimenn og öldungar Mrk 11.27+
14.45 Meistari Mrk 9.5+
14.47 Sneið af eyrað Jóh 18.26
14.49 Kenndi daglega Lúk 19.47; 21.37; Jóh 18.20
14.50 Flýðu Sak 13.7; Mrk 14.27 og hlst.; Jóh 16.2
14.53-65 Hlst. Matt 26.57-68; Lúk 22.54-55,63-71; Jóh 18.13-14,19-24
14.53 Æðstu prestar Mrk 11.27+
14.58 Brjóta niður musterið Matt 24.2-3; Mrk 15.29 og hlst.; Jóh 2.19; Post 6.14 – ekki með höndum gert Post 7.48-50; 17.24
14.61 Hann þagði Mrk 15.4-5 og hlst.; sbr Jes 50.6-8; 53.7; Post 8.32 – sonur Guðs Matt 14.33+ ; Mrk 5.7; Lúk 8.28
14.62 Mannssonurinn Matt 8.20+ – til hægri handar Slm 110.1; Matt 22.4+ – í skýjum Matt 24.30+ ; Mrk 13.26; Lúk 21.27; 1Þess 4.17; Opb 1.7; 14.14
14.63 Reif klæði sín Matt 26.65+
14.64 Guðlast Matt 9.3+ – dauða verður 3Mós 24.16; Jóh 19.7
14.65 Hrækja Jes 50.6
14.66-72 Hlst. Matt 26.6-75; Lúk 22.56-62; Jóh 18.15-18,25-27
14.72 Sbr Mrk 14.30 og hlst.; Jóh 13.38