1Þessir eru Ísraelsmenn eftir tölu þeirra, ætthöfðingjar, þúsundhöfðingjar, hundraðshöfðingjar og starfsmenn þeirra, er þjónuðu konungi í öllum flokkastörfum, er komu og fóru mánuð eftir mánuð, alla mánuði ársins. Voru í flokki hverjum tuttugu og fjögur þúsund manns.2Yfir fyrsta flokki, í fyrsta mánuði, var Jasóbeam Sabdíelsson, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.3Var hann af Peresniðjum og fyrir öllum herforingjum í fyrsta mánuði.4Yfir flokki annars mánaðarins var Eleasar Dódaíson, Ahóhíti. Fyrir flokki hans var höfðinginn Miklót, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.5Þriðji hershöfðinginn, í þriðja mánuðinum, var Benaja, sonur Jójada prests, höfðingi, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.6Var Benaja þessi kappi meðal þeirra þrjátíu og fyrir þeim þrjátíu. Var Ammísabad sonur hans fyrir flokki hans.7Fjórði var Asahel, bróðir Jóabs, fjórða mánuðinn, og eftir hann Sebadja sonur hans. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.8Fimmti hershöfðinginn var Samhút Jísraíti, fimmta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.9Sjötti var Íra Íkkesson frá Tekóa, sjötta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.10Sjöundi var Heles Pelóníti af Efraímsniðjum, sjöunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.11Áttundi var Sibbekaí Húsatíti af Seraítum, áttunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.12Níundi var Abíeser frá Anatót af Benjamínsniðjum, níunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.13Tíundi var Maharaí frá Netófa af Seraítum, tíunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.14Ellefti var Benaja frá Píraton af Efraímsniðjum, ellefta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.15Tólfti var Heldaí frá Netófa af ætt Otníels, tólfta mánuðinn, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans.16Þessir voru yfir kynkvíslum Ísraels: Af Rúbensniðjum var höfðingi Elíeser Síkríson. Af Símeonsniðjum Sefatja Maakason.17Af Leví Hasabja Kemúelsson. Af Aron Sadók.18Af Júda Elíhú, einn af bræðrum Davíðs. Af Íssakar Omrí Míkaelsson.19Af Sebúlon Jismaja Óbadíason. Af Naftalí Jerímót Asríelsson.20Af Efraímsniðjum Hósea Asasjason. Af hálfri Manassekynkvísl Jóel Pedajason.21Af hálfri Manassekynkvísl í Gíleað Íddó Sakaríason. Af Benjamín Jaasíel Abnersson.22Af Dan Asareel Jeróhamsson. Þessir voru höfðingjar Ísraelskynkvísla.23En Davíð lét ekki telja þá, er yngri voru en tvítugir, því að Drottinn hafði heitið því að gjöra Ísraelsmenn marga sem stjörnur himins.24Hafði Jóab Serújuson byrjað á að telja, en eigi lokið við, því að sakir þessa kom reiði yfir Ísrael, og talan var eigi skráð með tölunum í árbókum Davíðs konungs.25Asmavet Adíelsson hafði umsjón með fjársjóðum konungs og Jónatan Ússíasson með eignunum á mörkinni, í borgunum, þorpunum og köstulunum.26Esrí Kelúbsson hafði umsjón með jarðyrkjumönnum, er störfuðu að akuryrkju,27Símeí frá Rama yfir víngörðunum, og Sabdí Sifmíti yfir vínforðanum í víngörðunum,28Baal Hanan frá Geder yfir olíutrjánum og mórberjatrjánum á láglendinu og Jóas yfir olíuforðanum.29Yfir nautunum, er gengu á Saron, hafði Sítraí frá Saron umsjón, yfir nautunum, er gengu í dölunum, Safat Adlaíson,30yfir úlföldunum Óbíl Ísmaelíti, yfir ösnunum Jehdeja frá Merónót,31yfir sauðfénaðinum Jasis Hagríti. Allir þessir voru umráðamenn yfir eignum Davíðs konungs.32Jónatan, föðurbróðir Davíðs, var ráðgjafi. Var hann vitur maður og fróður. Jehíel Hakmóníson var með sonum konungs,33Akítófel var ráðgjafi konungs og Húsaí Arkíti var stallari konungs.34Næstur Akítófel gekk Jójada Benajason og Abjatar. Jóab var hershöfðingi konungs.

27.5-6 Benaja 1Kro 11.22-25
27.7 Asael 1Kro 11.26; 2Sam 2.18-23
27.23 Sem stjörnur himins 1Mós 15.5
27.24 Manntalið 1Kro 21
27.33 Akítófel 2Sam 15.12+