1Um þær mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá kom Jesaja Amozson spámaður til hans og sagði við hann: Svo segir Drottinn: Ráðstafa húsi þínu, því að þú munt deyja og eigi lifa.2Þá sneri Hiskía andliti sínu til veggjar, bað til Drottins og mælti:3Æ, Drottinn, minnstu þess, að ég hefi gengið fyrir augliti þínu með trúmennsku og einlægu hjarta og gjört það, sem þér er þóknanlegt. Og hann grét sáran.4En áður en Jesaja var kominn út úr miðforgarði hallarinnar, kom orð Drottins til hans, svolátandi:5Snú aftur og seg Hiskía, höfðingja lýðs míns: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs forföður þíns: Ég hefi heyrt bæn þína og séð tár þín. Sjá, ég mun lækna þig. Á þriðja degi munt þú ganga upp í hús Drottins.6Og ég mun enn leggja fimmtán ár við aldur þinn, og ég mun frelsa þig og þessa borg af hendi Assýríukonungs, og ég mun vernda þessa borg, mín vegna og vegna Davíðs þjóns míns.7Þá bauð Jesaja: Komið með fíkjudeig. Sóttu þeir það og lögðu á kýlið. Þá batnaði honum.8En Hiskía sagði við Jesaja: Hvað skal ég hafa til marks um, að Drottinn muni lækna mig og að ég megi aftur ganga upp í hús Drottins á þriðja degi?9Þá svaraði Jesaja: Þetta skalt þú til marks hafa af Drottni, að hann muni efna það, sem hann hefir heitið: Á skugginn að færast tíu stig fram, eða á hann að færast aftur um tíu stig?10Hiskía svaraði: Það er hægðarleikur fyrir skuggann að færast niður um tíu stig nei, skugginn skal færast aftur um tíu stig.11Þá hrópaði Jesaja spámaður til Drottins, og hann lét skuggann á stigunum, sem færst hafði niður á sólskífu Akasar, færast aftur um tíu stig.12Um þær mundir sendi Meródak Baladan Baladansson, konungur í Babýlon, bréf og gjafir til Hiskía, því að hann hafði frétt, að hann hefði verið sjúkur, en væri nú aftur heill orðinn.13Og Hiskía fagnaði komu þeirra og sýndi þeim alla féhirslu sína, silfrið og gullið, ilmjurtirnar og hina dýru olíu og vopnabúr sitt og allt sem til var í fjársjóðum hans. Var enginn sá hlutur í höll Hiskía eða nokkurs staðar í ríki hans, að eigi sýndi hann þeim.14Þá kom Jesaja spámaður til Hiskía konungs og sagði við hann: Hvert var erindi þessara manna og hvaðan eru þeir til þín komnir? Hiskía svaraði: Af fjarlægu landi eru þeir komnir, frá Babýlon.15Þá sagði hann: Hvað sáu þeir í höll þinni? Hiskía svaraði: Allt, sem í höll minni er, hafa þeir séð. Enginn er sá hlutur í fjársjóðum mínum, að eigi hafi ég sýnt þeim.16Þá sagði Jesaja við Hiskía: Heyr þú orð Drottins:17Sjá, þeir dagar munu koma, að allt, sem er í höll þinni, og það sem feður þínir hafa saman dregið allt til þessa dags, mun flutt verða til Babýlon. Ekkert skal eftir verða segir Drottinn.18Og nokkrir af sonum þínum, sem af þér munu koma og þú munt geta, munu teknir verða og gjörðir að hirðsveinum í höll konungsins í Babýlon.19En Hiskía sagði við Jesaja: Gott er það orð Drottins, er þú hefir talað. Því að hann hugsaði: Farsæld og friður helst þó meðan ég lifi.20Það sem meira er að segja um Hiskía og öll hreystiverk hans, hversu hann bjó til tjörnina og vatnsstokkinn og leiddi vatnið inn í borgina, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.21Og Hiskía lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum. Og Manasse sonur hans tók ríki eftir hann.

20.1 Þú munt deyja 2Kon 1.4+
20.3 Einlægni 1Kon 8.61+
20.5 Tár þín Jes 25.8; Slm 116.8
20.6 Ég bjarga þér 2Kon 18.32+
20.8 Til marks 1Mós 24.12-14; Dóm 6.17-40; 1Sam 14.10; Jes 7.10-14
20.13 Allt skoðað 1Kon 10.4-5
20.17 Allt flutt til Babýlon 2Kon 24.13 og hlst.
20.18 Synirnir herleiddir 2Kon 24.15; sbr 2Kon 15.29+ – hirðsveinar Dan 1.1-7