1Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans og fer með þá upp á hátt fjall, að þeir væru einir saman.2Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól, og klæði hans urðu björt eins og ljós.3Og Móse og Elía birtust þeim, og voru þeir á tali við hann.4Pétur tók til máls og sagði við Jesú: Herra, gott er, að vér erum hér. Ef þú vilt, skal ég gjöra hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.5Meðan hann var enn að tala, skyggði yfir þá bjart ský, og rödd úr skýinu sagði: Þessi er minn elskaði sonur, sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!6Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta, féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög.7Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: Rísið upp, og óttist ekki.8En er þeir hófu upp augu sín, sáu þeir engan nema Jesú einan.9Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim og mælti: Segið engum frá sýninni, fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.10Lærisveinarnir spurðu hann: Hví segja fræðimennirnir, að Elía eigi fyrst að koma?11Hann svaraði: Víst kemur Elía og færir allt í lag.12En ég segi yður: Elía er þegar kominn, og menn þekktu hann ekki, heldur gjörðu honum allt sem þeir vildu. Eins mun og Mannssonurinn píslir þola af hendi þeirra.13Þá skildu lærisveinarnir, að hann hafði talað við þá um Jóhannes skírara.14Þegar þeir komu til fólksins, gekk til hans maður, féll á kné fyrir honum15og sagði: Herra, miskunna þú syni mínum. Hann er tunglsjúkur og illa haldinn. Oft fellur hann á eld og oft í vatn.16Ég fór með hann til lærisveina þinna, en þeir gátu ekki læknað hann.17Jesús svaraði: Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður? Hversu lengi á ég að umbera yður? Færið hann hingað til mín.18Og Jesús hastaði á hann og illi andinn fór úr honum. Og sveinninn varð heill frá þeirri stundu.19Þá komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann einslega: Hvers vegna gátum vér ekki rekið hann út?20Hann svaraði þeim: Vegna þess að yður skortir trú. Sannlega segi ég yður: Ef þér hafið trú eins og mustarðskorn, getið þér sagt við fjall þetta: Flyt þig héðan og þangað, og það mun flytja sig. Ekkert verður yður um megn.21En þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn og föstu.22Þegar þeir voru saman í Galíleu, sagði Jesús við þá: Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur,23og þeir munu lífláta hann, en á þriðja degi mun hann upp rísa. Þeir urðu mjög hryggir.24Þá er þeir komu til Kapernaum, gengu menn þeir, sem heimta inn musterisgjaldið, til Péturs og spurðu: Geldur meistari yðar eigi musterisgjaldið?25Hann kvað svo vera. En er hann kom inn, tók Jesús fyrr til máls og mælti: Hvað líst þér, Símon? Af hverjum heimta konungar jarðarinnar toll eða skatt? Af börnum sínum eða vandalausum?26Af vandalausum, sagði Pétur. Jesús mælti: Þá eru börnin frjáls.27En til þess vér hneykslum þá ekki, skaltu fara niður að vatni og renna öngli, taktu síðan fyrsta fiskinn, sem þú dregur, opna munn hans og muntu finna pening. Tak hann og greið þeim fyrir mig og þig.

17.1-13 Hlst. Mrk 9.2-13; Lúk 9.28-36
17.1 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 26.37 og hlst.; Mrk 5.37; 13.3; Lúk 5.10; 8.51; Jóh 21.2; sbr Post 1.13 – fjall Matt 4.8; 28.16; sbr Jes 2.2-3; 11.9; Dan 9.16
17.2 Ummyndaðist 2Pét 1.16-18 – ásjóna sem sól Matt 28.3; Opb 1.14
17.3 Elía 2Kon 2.11; Matt 11.14+ – Móse 5Mós 18.15,18; 34.5-7
17.4 Tjaldbúðir 5Mós 16.13
17.5 Ský 2Mós 19.16; 24.15-16; 40.34-35; 1Kon 8.10-12; 2Makk 2.7-8; Post 1.9 – minn elskaði sonur Matt 3.17+ – hlýðið á hann 5Mós 18.15; Post 3.22
17.9 Halda leyndu Matt 8.4+
17.10 Elía Mal 4.5; sbr Matt 11.14+
17.12 Jóhannes og Elía Matt 3.4; 11.14; 16.14; Mrk 6.14; 8.28; Lúk 1.17; 9.7,19; Jóh 1.26 – Mannssonurinn Matt 8.20+ – sagt fyrir um þjáningar Matt 16.21+
17.14-23 Hlst Mrk 9.14-32; Lúk 9.37-45
17.17 Vantrúa kynslóð Matt 12.39-45+
17.18 Heill frá þeirri stundu Matt 8.13; 9.22; 15.28; Jóh 4.52-53
17.20 Mustarðskorn Matt 13.31; Lúk 17.6 – trú, sem flytur fjöll Matt 21.21 og hlst.; 1Kor 13.2; sbr Jes 40.4; Lúk 17.6
17.21 Fasta Matt 6.16
17.22-23 Sagt fyrir um þjáningar Matt 16.21+
17.24 Musterisgjaldið 2Mós 30.13; 38.26
17.27 Tilefni hneykslunar Matt 5.29+