1Fimm dögum síðar fór Ananías æðsti prestur ofan þangað og með honum nokkrir öldungar og Tertúllus nokkur málafærslumaður. Þeir báru sakir á Pál fyrir landstjóranum.2Hann var nú kallaður fyrir, en Tertúllus hóf málsóknina og sagði: Fyrir þitt tilstilli, göfugi Felix, sitjum vér í góðum friði, og þjóð vor hefur sakir þinnar forsjár öðlast umbætur í öllum greinum og alls staðar.3Þetta viðurkennum vér mjög þakksamlega.4En svo að ég tefji þig sem minnst, bið ég, að þú af mildi þinni viljir heyra oss litla hríð.5Vér höfum komist að raun um, að maður þessi er skaðræði, kveikir ófrið með öllum Gyðingum um víða veröld og er forsprakki villuflokks Nasarea.6Hann reyndi meira að segja að vanhelga musterið, og þá tókum vér hann höndum. [ 8Með því að yfirheyra hann mátt þú sjálfur ganga úr skugga um öll sakarefni vor gegn honum.9Gyðingarnir tóku undir sakargiftirnar og kváðu þetta rétt vera.10Landstjórinn benti þá Páli að taka til máls. Hann sagði: Kunnugt er mér um, að þú hefur verið dómari þessarar þjóðar í mörg ár. Mun ég því ótrauður verja mál mitt.11Þú getur og gengið úr skugga um, að ekki eru nema tólf dagar síðan ég kom upp til Jerúsalem að biðjast fyrir.12Og enginn hefur staðið mig að því að vera að stæla við neinn eða æsa fólk til óspekta, hvorki í samkunduhúsunum né neins staðar í borginni.13Þeir geta ekki heldur sannað þér það, sem þeir eru nú að kæra mig um.14En hitt skal ég játa þér, að ég þjóna Guði feðra vorra samkvæmt veginum, sem þeir kalla villu, og trúi öllu því, sem skrifað stendur í lögmálinu og spámönnunum.15Og þá von hef ég til Guðs, sem þeir og sjálfir hafa, að upp muni rísa bæði réttlátir og ranglátir.16Því tem ég mér og sjálfur að hafa jafnan hreina samvisku fyrir Guði og mönnum.17Eftir margra ára fjarveru kom ég til að færa fólki mínu ölmusugjafir og til að fórna.18Þetta var ég að gjöra í helgidóminum og hafði látið hreinsast, og enginn var þá mannsöfnuður né uppþot, þegar menn komu að mér.19Þar voru Gyðingar nokkrir frá Asíu. Þeir hefðu átt að koma fyrir þig og bera fram kæru, hefðu þeir fundið mér eitthvað til saka.20Annars skulu þessir, sem hér eru, segja til, hvað saknæmt þeir fundu, þegar ég stóð fyrir ráðinu.21Nema það sé þetta eina, sem ég hrópaði, þegar ég stóð meðal þeirra: Fyrir upprisu dauðra er ég lögsóttur í dag frammi fyrir yður.22Felix, sem var vel kunnugt um veginn, frestaði nú málinu, og mælti: Þegar Lýsías hersveitarforingi kemur ofan hingað, skal ég skera úr máli yðar.23Hann bauð hundraðshöfðingjanum að hafa Pál í vægu varðhaldi og varna engum félaga hans að vitja um hann.24Nokkrum dögum seinna kom Felix með eiginkonu sinni, Drúsillu. Hún var Gyðingur. Hann lét sækja Pál og hlýddi á mál hans um trúna á Krist Jesú.25En er hann ræddi um réttlæti, sjálfsögun og komandi dóm, varð Felix skelkaður og mælti: Far burt að sinni. Ég læt kalla þig, þegar ég fæ tóm til.26Meðfram gjörði hann sér von um, að Páll mundi gefa sér fé. Því var það, að hann lét alloft sækja hann og átti tal við hann.27Þegar tvö ár voru liðin, tók Porkíus Festus við landstjórn af Felix. Felix vildi koma sér vel við Gyðinga og lét því Pál eftir í haldi.

24.1 Páll ákærður Post 25.2 – Ananías Post 23.2
24.5 Kveikir ófrið Post 17.6 – villuflokkur Post 5.17; 15.5; 24.14 – nasarear Post 2.22+
24.6 Reyndi að vanhelga musterið Post 21.28 – Gyðingar taka Pál höndum Post 21.30
24.11 Skamman tíma í Jerúsalem Post 21.17,27; sbr Post 21.18; 22.30; 23.12,32 – til að biðjast fyrir Post 8.27
24.14 Vegurinn Post 9.2+ – villa Post 24.5+ – lögmálið og spámennirnir Róm 3.19,21; Post 26.22; sbr Matt 7.12+
24.15 Von um upprisu Dan 12.2; Jóh 5.28-29; Post 23.6
24.16 Hrein samviska Post 23.1
24.17 Með ölmusugjafir Post 11.29-30; Róm 15.25-28; 1Kor 16.1-4; 2Kor 8-9; Gal 2.10 – og fórnir Post 21.24,26
24.18-19 Ég hafði látið hreinsast Post 21.26-27
24.21 Lögsóttur fyrir upprisu dauðra Post 23.6-9; 24.15; 25.19
24.22 Vegurinn Post 9.2+
24.23 Varna engum að vitja hans Post 27.3; 28.16,30
24.25 Réttlæti og dómur Jóh 16.8
24.27 Koma sér vel Post 25.9