1Og þessir þrír menn hættu að svara Job, því að hann þóttist vera réttlátur.2Þá upptendraðist reiði Elíhú Barakelssonar Búsíta af Rams kynstofni. Upptendraðist reiði hans gegn Job, af því að hann taldi sig hafa á réttu að standa gagnvart Guði.3Reiði hans upptendraðist og gegn vinum hans þremur, fyrir það að þeir fundu engin andsvör til þess að sanna Job, að hann hefði á röngu að standa.4En Elíhú hafði beðið með að mæla til Jobs, því að hinir voru eldri en hann.5En er Elíhú sá, að mennirnir þrír gátu engu svarað, upptendraðist reiði hans.6Þá tók Elíhú Barakelsson Búsíti til máls og sagði: Ég er ungur að aldri, en þér eruð öldungar, þess vegna fyrirvarð ég mig og kom mér eigi að því að kunngjöra yður það, sem ég veit.7Ég hugsaði: Aldurinn tali, og árafjöldinn kunngjöri speki!8En það er andinn í manninum og andblástur hins Almáttka, sem gjörir þá vitra.9Elstu mennirnir eru ekki ávallt vitrastir, og öldungarnir skynja eigi, hvað réttast er.10Fyrir því segi ég: Hlýð á mig, nú ætla einnig ég að kunngjöra það, sem ég veit.11Sjá, ég beið eftir ræðum yðar, hlustaði á röksemdir yðar, uns þér fynduð orðin, sem við ættu.12Og að yður gaf ég gaum, en sjá, enginn sannfærði Job, enginn yðar hrakti orð hans.13Segið ekki: Vér höfum hitt fyrir speki, Guð einn fær sigrað hann, en enginn maður!14Gegn mér hefir hann ekki sett fram neinar sannanir, og með yðar orðum ætla ég ekki að svara honum.15Þeir eru skelkaðir, svara eigi framar, þeir standa uppi orðlausir.16Og ætti ég að bíða, þar sem þeir þegja, þar sem þeir standa og svara eigi framar?17Ég vil og svara af minni hálfu, ég vil og kunngjöra það, sem ég veit.18Því að ég er fullur af orðum, andinn í brjósti mínu knýr mig.19Sjá, brjóst mitt er sem vín, er ekki fær útrás, ætlar að rifna, eins og nýfylltir belgir.20Ég ætla að tala til þess að létta á mér, ætla að opna varir mínar og svara.21Ég ætla ekki að draga taum neins, og ég ætla engan að skjalla.22Því að ég kann ekki að skjalla, ella kynni skapari minn bráðlega að kippa mér burt.

32.3 Fundu ekkert til að sanna sekt Job 4.17+
32.4 Eldri en hann Job 8.8+ ; 3Mós 19.32
32.8 Innblástur frá hinum Almáttka 1Mós 41.38-39; Dan 1.17; VDan 1.45
32.9 Þurfa ekki að vera vitrir SSal 4.8-9; VDan 1.52-53
32.11 Hlustaði Sír 5.11; Jak 1.19
32.12 Enginn gat svarað Job 35.4; Tít 1.9
32.13 Guð einn hefur spekina Job 36.22; 1Mós 41.16; Dan 2.27-28
32.18-19 Skyldugur til að tala Jer 20.9
32.19 Nýjir vínbelgir Matt 9.17 og hlst.
32.21-22 Skjalla Job 13.7-10; Okv 29.5