1Orð Agúrs Jakesonar. Guðmælið. Maðurinn segir: Ég hefi streitst, ó Guð, ég hefi streitst, ó Guð, og er að þrotum kominn.2Því að ég er of heimskur til að geta talist maður, og ég hefi eigi mannsvit,3ég hefi eigi lært speki, svo að ég hafi þekking á Hinum heilaga.4Hver hefir stigið upp til himna og komið niður? Hver hefir safnað vindinum í greipar sínar? Hver hefir bundið vatnið í skikkju sína? Hver hefir reist öll endimörk jarðar? Hvað heitir hann og hvað heitir sonur hans fyrst þú veist það?5Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim, er leita hælis hjá honum.6Bæt engu við orð hans, til þess að hann ávíti þig eigi og þú standir sem lygari.7Um tvennt bið ég þig, synja mér þess eigi, áður en ég dey:8Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð.9Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: Hver er Drottinn? eða ef ég yrði fátækur, kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns.10Ræg eigi þjóninn við húsbónda hans, svo að hann biðji þér ekki óbæna og þú verðir að gjalda.11Til er það kyn, sem bölvar föður sínum og blessar ekki móður sína,12kyn, sem þykist vera hreint og hefir þó eigi þvegið af sér saurinn13kyn, sem lyftir hátt augunum og sperrir upp augnahárin,14kyn, sem hefir sverð að tönnum og hnífa að jöxlum til þess að uppeta hina voluðu úr landinu og hina fátæku burt frá mönnunum.15Blóðsugan á tvær dætur, sem heita Gefðu! Gefðu! Þrennt er til, sem er óseðjandi, fernt, sem aldrei segir: Það er nóg!16Helja og móðurlíf óbyrjunnar, jörðin, sem aldrei seðst af vatni, og eldurinn, sem aldrei segir: Það er nóg!17Það auga, sem gjörir gys að föður sínum og fyrirlítur hlýðni við móður sína, mega hrafnarnir við lækinn kroppa út og arnarungarnir eta.18Þrennt er, sem mér virðist undursamlegt, og fernt, sem ég skil eigi:19vegur arnarins um loftið, vegur höggormsins yfir klettinn, vegur skipsins um reginhaf og vegur manns hjá konu.20Þannig er atferli hórkonunnar: Hún neytir, þurrkar sér um munninn og segir: Ég hefi ekkert rangt gjört.21Undan þrennu nötrar jörðin, og undir fernu getur hún ekki risið:22undir þræli, þegar hann verður konungur, og guðlausum manni, þegar hann mettast brauði,23undir smáðri konu, þegar hún giftist, og þernu, þegar hún bolar burt húsmóður sinni.24Fjórir eru smáir á jörðinni, og þó eru þeir vitrir spekingar:25Maurarnir eru kraftlítil þjóð, og þó afla þeir sér fæðunnar á sumrin.26Stökkhérarnir eru þróttlítil þjóð, og þó gjöra þeir sér híbýli í klettunum.27Engispretturnar hafa engan konung, og þó fer allur hópurinn út í röð og reglu.28Ferfætlunni getur þú náð með tómum höndunum, og þó er hún í konungahöllum.29Þrír eru þeir, sem tigulegir eru á velli, og fjórir, sem tigulegir eru í gangi:30ljónið, hetjan meðal dýranna, er eigi hopar fyrir neinni skepnu,31lendgyrtur hesturinn og geithafurinn og konungur, er enginn fær móti staðið.32Hafir þú heimskast til að upphefja sjálfan þig, eða hafir þú gjört það af ásettu ráði, þá legg höndina á munninn!33Því að þrýstingur á mjólk framleiðir smjör, og þrýstingur á nasir framleiðir blóð, og þrýstingur á reiði framleiðir deilu.

30.1 Spakmæli Okv 16.10; Jes 14.22; Am 3.15; 4.3
30.4 Hver? Job 38.1-38; Sír 1.2-3; Bar 3.29-31
30.5 Guð, skjöldur Slm 3.4+
30.6 Bættu engu við 5Mós 4.2; Job 42.2-6
30.14 Uppræta hina fátæku Slm 14.4+
30.15 Þrennt, fernt Hós 6.2+ ; sbr Okv 6.16
30.16 Hel Okv 1.12+ – óseðjandi Okv 27.20
30.17 Óhlýðni við foreldra Okv 20.20+ ; 23.22
30.20 Skækja Okv 2.16+