1Davíðssálmur. Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa.2Því að hann hefir grundvallað hana á hafinu og fest hana á vötnunum.3Hver fær að stíga upp á fjall Drottins, hver fær að dveljast á hans helga stað?4Sá er hefir óflekkaðar hendur og hreint hjarta, eigi sækist eftir hégóma og eigi vinnur rangan eið.5Hann mun blessun hljóta frá Drottni og réttlætingu frá Guði hjálpræðis síns.6Þessi er sú kynslóð er leitar Drottins, stundar eftir augliti þínu, þú Jakobs Guð. Sela7Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.8Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Það er Drottinn, hin volduga hetja, Drottinn, bardagahetjan.9Þér hlið, lyftið höfðum yðar, hefjið yður, þér öldnu dyr, að konungur dýrðarinnar megi inn ganga.10Hver er þessi konungur dýrðarinnar? Drottinn hersveitanna, hann er konungur dýrðarinnar. Sela

24.1 Jörðin er Drottins Slm 50.12; 89.12; 95.4-5; 1Kor 10.26
24.2 Grundvallaði jörðina Slm 75.4; 104.5; Job 38.4-6
24.3 Hver … ? Slm 15.1
24.4 Flekklausar hendur Slm 15.2-5; 26.6; 1Mós 20.5; Jes 33.14-15; sbr Matt 5.5
24.5 Blessun frá Drottni Slm 129.8
24.6 Leita Drottins Slm 9.11+ – leita auglits Drottins Slm 27.8; 105.4; Hós 5.15
24.7 Hlið musterisins Slm 118.19-20 – konungur dýrðarinnar kemur sbr 2Sam 6.12-16; 1Kon 8.1-6; Esk 44.2; Mal 3.1
24.8 Konungur dýrðarinnar sbr 2Mós 24.16-17; 1Kor 2.8