1En það ásetti ég mér, að koma ekki aftur til yðar með hryggð.2Ef ég hryggi yður, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja?3Ég skrifaði einmitt þetta til þess að þeir, sem áttu að gleðja mig, skyldu ekki hryggja mig, er ég kæmi. Ég hef það traust til yðar allra, að gleði mín sé gleði yðar allra.4Af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði ég yður með mörgum tárum, ekki til þess að þér skylduð hryggjast, heldur til þess að þér skylduð komast að raun um þann kærleika, sem ég ber til yðar í svo ríkum mæli.5En ef nokkur hefur orðið til þess að valda hryggð, þá hefur hann ekki hryggt mig, heldur að vissu leyti að ég gjöri ekki enn meira úr því hryggt yður alla.6Nægileg er þeim manni refsing sú, sem hann hefur hlotið af yður allflestum.7Því ættuð þér nú öllu heldur að fyrirgefa honum og hugga hann til þess að hann sökkvi ekki niður í allt of mikla hryggð.8Þess vegna bið ég yður að sýna honum kærleika í reynd.9Því að í þeim tilgangi skrifaði ég yður, til þess að komast að raun um staðfestu yðar, hvort þér væruð hlýðnir í öllu.10En hverjum sem þér fyrirgefið, honum fyrirgef ég líka. Og það sem ég hef fyrirgefið, hafi ég þurft að fyrirgefa nokkuð, þá hefur það verið vegna yðar fyrir augliti Krists,11til þess að vér yrðum ekki vélaðir af Satan, því að ekki er oss ókunnugt um vélráð hans.12En er ég kom til Tróas til að boða fagnaðarerindið um Krist og mér stóðu þar opnar dyr í þjónustu Drottins,13þá hafði ég enga eirð í mér, af því að ég hitti ekki Títus, bróður minn, svo að ég kvaddi þá og fór til Makedóníu.14En Guði séu þakkir, sem fer með oss í óslitinni sigurför Krists og lætur oss útbreiða ilm þekkingarinnar á honum á hverjum stað.15„Því að vér erum góðilmur Krists fyrir Guði meðal þeirra, er hólpnir verða, og meðal þeirra, sem glatast;“16þeim síðarnefndu ilmur af dauða til dauða, en hinum ilmur af lífi til lífs. Og hver er til þessa hæfur?17Ekki erum vér eins og hinir mörgu, er pranga með Guðs orð, heldur flytjum vér það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs, með því að vér erum í Kristi.

2.6 Nægileg refsing Matt 18.15-17; 1Kor 5.1-13; 11.30-32; 3Jóh 10
2.9 Hlýðni 2Kor 7.15; 10.6
2.11 Satan nái tökum Matt 4.1-11; Lúk 22.31; Róm 16.17-20; 2Kor 6.14-16; 11.3-15
2.12 Tróas Post 16.8-11; 20.5-12; 2Tím 4.13 – opnað dyr Post 14.27; 1Kor 16.9; Kól 4.3; Opb 3.8
2.13 Títus 2Kor 7.6,13-15; 8.6,16,23; 12.18; Gal 2.1-3; 2Tím 4.10; Tít 1.4
2.17 Pranga með Guðs orð 2Kor 4.2; 11.13