1Á leið sinni sá hann mann, sem var blindur frá fæðingu.2Lærisveinar hans spurðu hann: Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans, fyrst hann fæddist blindur?3Jesús svaraði: Hvorki er það af því, að hann hafi syndgað eða foreldrar hans, heldur til þess að verk Guðs verði opinber á honum.4Oss ber að vinna verk þess, er sendi mig, meðan dagur er. Það kemur nótt, þegar enginn getur unnið.5Meðan ég er í heiminum, er ég ljós heimsins.6Að svo mæltu skyrpti hann á jörðina, gjörði leðju úr munnvatninu, strauk leðju á augu hans7og sagði við hann: Farðu og þvoðu þér í lauginni Sílóam. Sílóam þýðir sendur. Hann fór og þvoði sér og kom sjáandi.8Nágrannar hans og þeir, sem höfðu áður séð hann ölmusumann, sögðu þá: Er þetta ekki sá, er setið hefur og beðið sér ölmusu?9Sumir sögðu: Sá er maðurinn, en aðrir sögðu: Nei, en líkur er hann honum. Sjálfur sagði hann: Ég er sá.10Þá sögðu þeir við hann: Hvernig opnuðust augu þín?11Hann svaraði: Maður að nafni Jesús gjörði leðju og smurði á augu mín og sagði mér að fara til Sílóam og þvo mér. Ég fór og fékk sjónina, þegar ég var búinn að þvo mér.12Þeir sögðu við hann: Hvar er hann? Hann svaraði: Það veit ég ekki.13Þeir fara til faríseanna með manninn, sem áður var blindur.14En þá var hvíldardagur, þegar Jesús bjó til leðjuna og opnaði augu hans.15Farísearnir spurðu hann nú líka, hvernig hann hefði fengið sjónina. Hann svaraði þeim: Hann lagði leðju á augu mín, ég þvoði mér, og nú sé ég.16Þá sögðu nokkrir farísear: Þessi maður er ekki frá Guði, fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn. Aðrir sögðu: Hvernig getur syndugur maður gjört þvílík tákn? Og ágreiningur varð með þeim.17Þá segja þeir aftur við hinn blinda: Hvað segir þú um hann, fyrst hann opnaði augu þín? Hann sagði: Hann er spámaður.18Gyðingar trúðu því ekki, að hann, sem sjónina fékk, hefði verið blindur, og kölluðu fyrst á foreldra hans19og spurðu þá: Er þetta sonur ykkar, sem þið segið að hafi fæðst blindur? Hvernig er hann þá orðinn sjáandi?20Foreldrar hans svöruðu: Við vitum, að þessi maður er sonur okkar og að hann fæddist blindur.21En hvernig hann er nú orðinn sjáandi, vitum við ekki, né heldur vitum við, hver opnaði augu hans. Spyrjið hann sjálfan. Hann hefur aldur til. Hann getur svarað fyrir sig.22Þetta sögðu foreldrar hans af ótta við Gyðinga. Því Gyðingar höfðu þegar samþykkt, að ef nokkur játaði, að Jesús væri Kristur, skyldi hann samkundurækur.23Vegna þessa sögðu foreldrar hans: Hann hefur aldur til, spyrjið hann sjálfan.24Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: Gef þú Guði dýrðina. Vér vitum, að þessi maður er syndari.25Hann svaraði: Ekki veit ég, hvort hann er syndari. En eitt veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi.26Þá sögðu þeir við hann: Hvað gjörði hann við þig? Hvernig opnaði hann augu þín?27Hann svaraði þeim: Ég er búinn að segja yður það, og þér hlustuðuð ekki á það. Hví viljið þér heyra það aftur? Viljið þér líka verða lærisveinar hans?28Þeir atyrtu hann og sögðu: Þú ert lærisveinn hans, vér erum lærisveinar Móse.29Vér vitum, að Guð talaði við Móse, en um þennan vitum vér ekki, hvaðan hann er.30Maðurinn svaraði þeim: Þetta er furðulegt, að þér vitið ekki, hvaðan hann er, og þó opnaði hann augu mín.31Vér vitum, að Guð heyrir ekki syndara. En ef einhver er guðrækinn og gjörir vilja hans, þann heyrir hann.32Frá alda öðli hefur ekki heyrst, að nokkur hafi opnað augu þess, sem blindur var borinn.33Ef þessi maður væri ekki frá Guði, gæti hann ekkert gjört.34Þeir svöruðu honum: Þú ert syndum vafinn frá fæðingu og ætlar að kenna oss! Og þeir ráku hann út.35Jesús heyrði, að þeir hefðu rekið hann út. Hann fann hann og sagði við hann: Trúir þú á Mannssoninn?36Hinn svaraði: Herra, hver er sá, að ég megi trúa á hann?37Jesús sagði við hann: Þú hefur séð hann, hann er sá sem er nú að tala við þig.38En hann sagði: Ég trúi, herra, og féll fram fyrir honum.39Jesús sagði: Til dóms er ég kominn í þennan heim, svo að blindir sjái og hinir sjáandi verði blindir.40Þetta heyrðu þeir farísear, sem með honum voru, og spurðu: Erum vér þá líka blindir?41Jesús sagði við þá: Ef þér væruð blindir, væruð þér án sakar. En nú segist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.

9.2 Refsing fyrir syndir 2Mós 20.5; Esk 18.20; Slm 38.2-6; Lúk 13.2,4
9.3 Verk Guðs verði opinber Jóh 11.4
9.4 Vinna verk Guðs Jóh 5.17 – nótt … Jóh 11.10
9.5 Ljós heimsins Jóh 8.12+
9.6 Skyrpti Mrk 8.23; sbr Mrk 7.33
9.7 Farðu og þvoðu þér 2Kon 5.10 – laugin Sílóam 2Kon 20.20; Jes 8.6; Neh 3.15
9.8 Þekktu hann Post 3.10
9.14 Hvíldardagur Jóh 5.9+
9.16 Frá Guði Jóh 3.2; 9.33 – heldur ekki hvíldardaginn Jóh 5.16,18 – getur syndugur maður gjört þvilíkt? Jóh 9.31; sbr 3.2+ ; 5Mós 13.1-6 – ágreiningur um Jesú Jóh 7.43+
9.17 Jesús sagður spámaður Matt 16.14+ ; sbr Jóh 7.40
9.22 Af ótta við Gyðinga Jóh 7.13+ – samkundurækur Jóh 12.42; 16.2
9.24 Gefa Guði dýrðina Jós 7.19; Opb 11.13
9.29 Hvaðan hann er Jóh 7.27,28; 8.14
9.31 Guð heyrir ekki syndara Jes 1.15; Slm 66.18; 109.7; Job 27.9; 35.13 – þann, sem fer að vilja hans Slm 34.16; Okv 15.29; Jóh 16.23-27; 1Jóh 3.21-22
9.33 Tákn til sönnunar Jóh 3.2+
9.34 Frá fæðingu Slm 51.7; Jóh 9.2
9.35 Mannssonurinn Matt 8.20+ ; Jóh 1.51; 3.14-15; 6.62-63
9.37 Sá sem við þig talar Jóh 4.26
9.39 Til dóms Jóh 3.17; 5.22,27,30; 8.15-16; 12.47; sbr Mrk 4.11-12
9.40 Blindir farísear Matt 15.14; 23.26
9.41 Án sakar Jóh 15.22