1Þegar Amrafel var konungur í Sínear, Aríok konungur í Ellasar, Kedorlaómer konungur í Elam og Tídeal konungur í Gojím, bar það til,2að þeir herjuðu á Bera, konung í Sódómu, á Birsa, konung í Gómorru, á Síneab, konung í Adma, á Semeber, konung í Sebóím, og konunginn í Bela það er Sóar .3Allir þessir hittust á Siddímsvöllum. Þar er nú Saltisjór.4Í tólf ár höfðu þeir verið lýðskyldir Kedorlaómer, en á hinu þrettánda ári höfðu þeir gjört uppreisn.5Og á fjórtánda ári kom Kedorlaómer og þeir konungar, sem með honum voru, og sigruðu Refaítana í Astarot Karnaím, Súsítana í Ham, Emítana á Kírjataímsvöllum6og Hórítana á fjalli þeirra Seír allt til El-Paran, sem er við eyðimörkina.7Síðan sneru þeir við og komu til En-Mispat það er Kades , og fóru herskildi yfir land Amalekíta og sömuleiðis Amoríta, sem bjuggu í Hasason Tamar.8Þá lögðu þeir af stað, konungurinn í Sódómu, konungurinn í Gómorru, konungurinn í Adma, konungurinn í Sebóím og konungurinn í Bela það er Sóar , og þeir fylktu liði sínu móti þeim á Síddímsvöllum,9móti Kedorlaómer, konungi í Elam, Tídeal, konungi í Gojím, Amrafel, konungi í Sínear, og Aríok, konungi í Ellasar, fjórir konungar móti fimm.10En á Siddímsvöllum var hver jarðbiksgröfin við aðra. Og konungarnir í Sódómu og Gómorru lögðu á flótta og féllu ofan í þær, en þeir, sem af komust, flýðu til fjalla.11Þá tóku hinir alla fjárhluti, sem voru í Sódómu og Gómorru, og öll matvæli og fóru burt.12Þeir tóku og Lot, bróðurson Abrams, og fjárhluti hans og fóru burt, en hann átti heima í Sódómu.13Þá kom maður af flóttanum og sagði Hebreanum Abram tíðindin, en hann bjó þá í lundi Amorítans Mamre, bróður Eskols og Aners, og þeir voru bandamenn Abrams.14En er Abram frétti, að frændi hans var hertekinn, bjó hann í skyndi þrjú hundruð og átján reynda menn sína, fædda í húsi hans, og elti þá allt til Dan.15Skipti hann liði sínu í flokka og réðst á þá á náttarþeli, hann og menn hans, og sigraði þá og rak flóttann allt til Hóba, sem er fyrir norðan Damaskus.16Sneri hann því næst heimleiðis með alla fjárhlutina og bróðurson sinn Lot, og fjárhluti hans hafði hann einnig heim með sér, sömuleiðis konurnar og fólkið.17En er hann hafði unnið sigur á Kedorlaómer konungi og þeim konungum, sem með honum voru, og hélt heimleiðis, fór konungurinn í Sódómu til fundar við hann í Savedal. Þar heitir nú Kóngsdalur.18Og Melkísedek konungur í Salem kom með brauð og vín, en hann var prestur Hins Hæsta Guðs.19Og hann blessaði Abram og sagði: Blessaður sé Abram af Hinum Hæsta Guði, skapara himins og jarðar!20Og lofaður sé Hinn Hæsti Guð, sem gaf óvini þína þér í hendur! Og Abram gaf honum tíund af öllu.21Konungurinn í Sódómu sagði við Abram: Gef mér mennina, en tak þú fjárhlutina.22Þá mælti Abram við konunginn í Sódómu: Ég upplyfti höndum mínum til Drottins, Hins Hæsta Guðs, skapara himins og jarðar:23Ég tek hvorki þráð né skóþveng, né nokkuð af öllu sem þér tilheyrir, svo að þú skulir ekki segja: Ég hefi gjört Abram ríkan.24Ekkert handa mér! Aðeins það, sem sveinarnir hafa neytt, og hlut þeirra manna, sem með mér fóru, Aners, Eskols og Mamre. Þeir mega taka sinn hlut.

14.2 Sódóma og Gómorra 1Mós 18.16+
14.7 Amalekítar 1Mós 36.12,16; 2Mós 17.8+
14.18 Melkísedek Slm 110.4; Heb 5.5-10; 6.20; 7.1,17
14.19 Skapari himins og jarðar 1Mós 1.1+
14.20 Tíund 1Mós 28.22; 3Mós 27.30-33; 4Mós 18.21-32; 5Mós 14.22-29; Neh 10.37-38; Lúk 18.12