1Til söngstjórans. Lag: Dúfan í fjarlægum eikilundi. Miktam eftir Davíð, þá er Filistar gripu hann í Gat.2Ver mér náðugur, Guð, því að menn kremja mig, liðlangan daginn kreppa bardagamenn að mér.3Fjandmenn mínir kremja mig liðlangan daginn, því að margir eru þeir, sem berjast gegn mér.4Þegar ég er hræddur, treysti ég þér.5Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað getur hold gjört mér?6Þeir spilla málefnum mínum án afláts, allt það er þeir hafa hugsað í gegn mér, er til ills.7Þeir áreita mig, þeir sitja um mig, þeir gefa gætur að ferðum mínum, eins og þeir væntu eftir að ná lífi mínu.8Sakir ranglætis þeirra verður þeim engrar undankomu auðið, steyp þjóðunum í reiði þinni, ó Guð.9Þú hefir talið hrakninga mína, tárum mínum er safnað í sjóð þinn, já, rituð í bók þína.10Fyrir því skulu óvinir mínir hörfa undan, er ég hrópa, það veit ég, að Guð liðsinnir mér.11Með Guðs hjálp mun ég lofa orð hans, með hjálp Drottins mun ég lofa orð hans.12Guði treysti ég, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér?13Á mér hvíla, ó Guð, heit við þig, ég vil gjalda þér þakkarfórnir,14af því þú hefir frelsað sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.

56.1 Davíð í Gat 1Sam 21.11-13
56.3 Ofsækja Slm 57.4; sbr 5.9
56.5 Hjálp manna er ónýt Slm 60.13 – treysta Guði Slm 9.11+ ; 55.24+
56.8 Steyp þjóðunum Jer 18.23
56.9 Tár Jes 38.5 – í bók Guðs sbr Slm 69.29; Opb 3.5+
56.10 Óvinir hörfa Slm 9.4 – Guð liðsinnir mér Slm 118.7; 124.1-2
56.14 Frelsa frá dauða Slm 33.19; 116.8 – ljós lífsins Slm 36.10