1Son minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú gengið til handsala fyrir annan mann,2hafir þú ánetjað þig með orðum munns þíns, látið veiðast með orðum munns þíns,3þá gjör þetta, son minn, til að losa þig því að þú ert kominn á vald náunga þíns far þú, varpa þér niður og legg að náunga þínum.4Lát þér eigi koma dúr á auga, né blund á brá.5Losa þig eins og skógargeit úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans.6Far þú til maursins, letingi! skoða háttu hans og verð hygginn.7Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra,8þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðu sína um uppskerutímann.9Hversu lengi ætlar þú, letingi, að hvílast? hvenær ætlar þú að rísa af svefni?10Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast!11Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.12Varmenni, illmenni er sá, sem gengur um með fláttskap í munni,13sem deplar augunum, gefur merki með fótunum, bendir með fingrunum,14elur fláræði í hjarta sínu, upphugsar ávallt illt, kveikir illdeilur.15Fyrir því mun ógæfa skyndilega yfir hann koma, snögglega mun hann sundurmolast og engin lækning fást.16Sex hluti hatar Drottinn og sjö eru sálu hans andstyggð:17drembileg augu, lygin tunga og hendur sem úthella saklausu blóði,18hjarta sem bruggar glæpsamleg ráð, fætur sem fráir eru til illverka,19ljúgvottur sem lygar mælir, og sá er kveikir illdeilur meðal bræðra.20Varðveit þú, son minn, boðorð föður þíns og hafna eigi viðvörun móður þinnar.21Fest þau á hjarta þitt stöðuglega, bind þau um háls þinn.22Þegar þú ert á gangi, þá leiði þau þig, þegar þú hvílist, vaki þau yfir þér, og þegar þú vaknar, þá ræði þau við þig.23Því að boðorð er lampi og viðvörun ljós og agandi áminningar leið til lífsins,24með því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu hinnar lauslátu.25Girnst eigi fríðleik hennar í hjarta þínu og lát hana eigi töfra þig með augnahárum sínum.26Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif, og hórkona sækist eftir dýru lífi.27Getur nokkur borið svo eld í barmi sínum, að föt hans sviðni ekki?28Eða getur nokkur gengið á glóðum án þess að brenna sig á fótunum?29Svo fer þeim, sem hefir mök við konu náunga síns, enginn sá kemst klakklaust af, sem hana snertir.30Fyrirlíta menn eigi þjófinn, þó að hann steli til þess að seðja hungur sitt?31Og náist hann, verður hann að borga sjöfalt, verður að láta allar eigur húss síns.32En sá sem drýgir hór með giftri konu, er vitstola, sá einn gjörir slíkt, er tortíma vill sjálfum sér.33Högg og smán mun hann hljóta, og skömm hans mun aldrei afmáð verða.34Því að afbrýði er karlmanns-reiði, og hann hlífir ekki á hefndarinnar degi.35Hann lítur ekki við neinum bótum og friðast eigi, þótt þú ryðjir í hann gjöfum.

6.1-5 Ganga í ábyrgð Okv 20.16; 22.26-27; Sír 8.13; 29.18-20
6.6 Letingi Okv 19.24; 26.13-16
6.11 Hlutskipti letingjans Okv 15.19; 21.25; 24.30-34
6.12-14 Tala tveimur tungum Okv 26.24-25+
6.15 Hlutskipti óguðlegra Okv 3.33+
6.16 Sex, sjö Hós 6.2+ – Drottni andstyggð Okv 3.32+
6.19 Ljúgvottur Okv 19.5; 25.18; 2Mós 20.16+
6.20 Varðveita kenningu Okv 3.1+ – viðvörun foreldra Okv 1.8+
6.23 Leið til lífs Okv 4.13+
6.24 Framandi kona Okv 2.16+
6.26 Ótrú kona Okv 30.20; Sír 9.9; 23.22-27; sbr Okv 2.16+