1Hann leiddi mig nú aftur út að ytra hliði helgidómsins, því er til austurs vissi. Það var lokað.2Og Drottinn sagði við mig: Þetta hlið skal vera lokað og ekki opnað verða. Enginn maður skal inn um það ganga, því að Drottinn, Ísraels Guð, hefir inn um það gengið. Fyrir því skal það lokað vera.3Þó má landshöfðinginn setjast þar niður til þess að eta fórnarmáltíð frammi fyrir Drottni. Skal hann fara inn um forsal hliðsins og fara út aftur sama veg.4Því næst leiddi hann mig að norðurhliðinu fyrir framan framhlið musterisins. Sá ég þá, hversu dýrð Drottins fyllti musteri Drottins, og ég féll fram á ásjónu mína.5En Drottinn sagði við mig: Mannsson, legg þér á hjarta, sjá með augum þínum og hlýð með eyrum þínum á allt það, sem ég segi þér um öll ákvæði viðvíkjandi musteri Drottins og um allar þær tilskipanir, er það snerta, og gæt vandlega að inngöngunni í musterið og öllum útgöngum úr helgidóminum.6Seg við hina þverúðarfullu, við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Nú hafið þér, Ísraelsmenn, nógu lengi framið allar yðar svívirðingar,7þar sem þér leidduð inn útlenda menn, óumskorna bæði á hjarta og á holdi, að þeir væru í helgidómi mínum, til þess að vanhelga musteri mitt, þegar þér færðuð mér mat minn, mör og blóð, og rufuð þannig sáttmála minn ofan á allar svívirðingar yðar.8Þér hafið eigi annast þjónustu helgidóma minna, heldur settuð þér þá til þess að annast þjónustuna í helgidómi mínum.9Svo segir Drottinn Guð: Enginn útlendur maður, óumskorinn bæði á hjarta og holdi, má inn í helgidóm minn koma _ enginn af þeim útlendingum, sem búa meðal Ísraelsmanna.10Levítarnir fjarlægðu sig frá mér, þá er Ísrael fór villur vegar. Með því að þeir villtust burt frá mér og eltu falsguði sína, skulu þeir gjöld taka fyrir misgjörð sína.11Þeir skulu gegna þjónustu í helgidómi mínum sem varðflokkar við hlið musterisins og sem musterisþjónar. Þeir skulu slátra brennifórninni og sláturfórninni fyrir lýðinn og standa frammi fyrir þeim til þess að þjóna þeim.12Af því að þeir þjónuðu þeim frammi fyrir skurðgoðum þeirra og urðu Ísraelsmönnum fótakefli til hrösunar, fyrir því hefi ég hafið hönd mína gegn þeim, _ segir Drottinn Guð _ og þeir skulu taka gjöld fyrir misgjörð sína.13Þeir skulu ekki nálgast mig til þess að veita mér prestþjónustu og nálgast alla helgidóma mína, hina háheilögu, heldur skulu þeir bera vanvirðu sína og taka gjöld fyrir þær svívirðingar, sem þeir frömdu.14Ég vil setja þá til þess að gegna þjónustu við musterið, til þess að annast það að öllu leyti og allt, sem þar er að gjöra.15En levítaprestarnir, niðjar Sadóks, þeir er ræktu þjónustu helgidóms míns, þá er Ísraelsmenn villtust frá mér, þeir skulu nálgast mig til þess að þjóna mér, og þeir skulu ganga fram fyrir mig til þess að færa mér mör og blóð _ segir Drottinn Guð.16Þeir skulu ganga inn í helgidóm minn og þeir skulu nálgast borð mitt til að þjóna mér, og þeir skulu rækja þjónustu mína.17Og er þeir ganga inn í hlið innri forgarðsins, skulu þeir klæðast línklæðum. Ekkert ullarfat skulu þeir á sér bera, þá er þeir gegna þjónustu í hliðum innri forgarðsins og þar innar af.18Þeir skulu hafa ennidúka af líni um höfuð sér og línbrækur um lendar sér. Eigi skulu þeir gyrðast neinu, er svita veldur.19En þegar þeir ganga út í ytri forgarðinn til lýðsins, skulu þeir fara úr þeim klæðum, er þeir gegna þjónustu í, og leggja þau í herbergi helgidómsins og fara í önnur klæði, svo að þeir helgi ekki lýðinn með klæðum sínum.20Þeir skulu ekki raka höfuð sín, né láta hárið flaka, heldur hafa stýft hár.21Vín skal enginn prestur drekka, þegar hann gengur inn í innri forgarðinn.22Enga ekkju né þá konu, sem við mann er skilin, mega þeir taka sér að eiginkonu, heldur aðeins meyjar af ætt Ísraelsmanna. Þó mega þeir kvongast ekkju, sé hún ekkja eftir prest.23Þeir skulu kenna lýð mínum að gjöra greinarmun á heilögu og óheilögu og fræða hann um muninn á óhreinu og hreinu.24Og þeir skulu standa frammi til þess að dæma í deilumálum manna. Eftir mínum lögum skulu þeir dæma þá, og boðorða minna og ákvæða skulu þeir gæta á öllum löghátíðum mínum og halda helga hvíldardaga mína.25Eigi mega þeir koma nærri líki, svo að þeir saurgist af, nema sé lík föður eða móður, sonar eða dóttur, bróður eða systur, sem ekki hefir verið manni gefin, á því mega þeir saurga sig.26Og eftir að hann er hreinn orðinn, skulu honum taldir sjö dagar.27Og daginn sem hann gengur aftur inn í helgidóminn, inn í innri forgarðinn til þess að gegna þjónustu í helgidóminum, skal hann fram bera syndafórn sína _ segir Drottinn Guð.28Óðal skulu þeir ekkert fá. Ég er óðal þeirra. Og ekki skuluð þér gefa þeim fasteign í Ísrael, ég er fasteign þeirra.29Þeir skulu hafa uppeldi sitt af matfórnum, syndafórnum og sektarfórnum, og allt, sem er banni helgað í Ísrael, skal tilheyra þeim.30Og hið besta af öllum frumgróða, hvers kyns sem er, og allar fórnir, hvers kyns sem eru af öllu því, er þér færið að fórnargjöf, skal tilheyra prestunum. Þér skuluð og gefa prestunum hið besta af deigi yðar til þess að leiða blessun niður yfir hús yðar.31Prestarnir mega ekki eta neitt sjálfdautt né það, sem dýrrifið er, hvort heldur er fugl eða fénaður.

44.2 Drottinn kom inn Esk 43.4
44.3 Þjóðhöfðinginn Esk 45.7; 46.2-18; 48.21-22
44.4 Dýrð Drottins Esk 43.5+
44.7 Mör og blóð Esk 44.15+
44.10 Misgjörð levítanna 4Mós 18.1-6
44.11 Annars vörslu hliðanna 1Kro 9.17-26; 26.1-19 – musterisþjónar 1Kro 9.26-32; 26.20-28
44.15 Niðjar Sadóks Esk 40.46+ – nálgast mig 4Mós 18.7; 1Kro 6.33-38 – mör og blóð 3Mós 3.2-4,16-17; 4.5-9,16-19,25-29,30-31; 9.9-10,18-19
44.17 Línklæði 2Mós 28.5,40-42; 3Mós 6.3; 16.4
44.19 Klæði prestanna Esk 42.14
44.20 Ekki raka höfuðið 3Mós 21.5 – hárið 3Mós 10.6; 21.10; sbr Esk 24.17,23
44.21 Vín forboðið 3Mós 10.9
44.22 Stofnun hjúskapar 3Mós 21.7,13
44.23 Kenna Ísrael 3Mós 10.10-11; 15.31
44.24 Halda lög og hvíldardaga Esk 20.19-20
44.25 Lík saurgar 3Mós 21.1-4
44.28 Erfðahlutur prestanna 4Mós 18.20-24; 5Mós 18.1-2; Jós 13-14
44.31 Sjálfdautt eða dýrrifið Esk 4.14; 2Mós 22.30; 3Mós 17.15-16; 22.8; 5Mós 14.21