1Á hinum innsigluðu skjölum stóðu: Nehemía landstjóri Hakalíason og Sedekía,2Seraja, Asarja, Jeremía,3Pashúr, Amarja, Malkía,4Hattús, Sebanja, Mallúk,5Harím, Meremót, Óbadía,6Daníel, Ginnetón, Barúk,7Mesúllam, Abía, Míjamín,8Maasja, Bilgaí, Semaja, þetta voru prestarnir.9Levítarnir: Jesúa Asanjason, Binnúí, einn af niðjum Henadads, Kadmíel,10og bræður þeirra: Sebanja, Hódía, Kelíta, Pelaja, Hanan,11Míka, Rehób, Hasabja,12Sakkúr, Serebja, Sebanja,13Hódía, Baní, Benínú.14Höfðingjar lýðsins: Parós, Pahat Móab, Elam, Sattú, Baní,15Búní, Asgad, Bebaí,16Adónía, Bigvaí, Adín,17Ater, Hiskía, Assúr,18Hódía, Hasúm, Besaí,19Haríf, Anatót, Nóbaí,20Magpías, Mesúllam, Hesír,21Mesesabeel, Sadók, Jaddúa,22Pelatja, Hanan, Anaja,23Hósea, Hananja, Hassúb,24Hallóhes, Pílha, Sóbek,25Rehúm, Hasabna, Maaseja,26Ahía, Hanan, Anan,27Mallúk, Harím og Baana.28Og hinir af lýðnum prestarnir, levítarnir, hliðverðirnir, söngvararnir, musterisþjónarnir og allir þeir, sem skilið höfðu sig frá hinum heiðnu íbúum landsins og gengist undir lögmál Guðs, konur þeirra, synir og dætur, allir þeir er komnir voru til vits og ára,29gengu í flokk með bræðrum sínum, göfugmennum þeirra, og bundu það eiðum og svardögum, að þeir skyldu breyta eftir lögmáli Guðs, því er gefið var fyrir Móse, þjón Guðs, og varðveita og halda öll boðorð Drottins, herra vors, og skipanir hans og lög:30Að vér skyldum ekki gifta dætur vorar hinum heiðnu íbúum landsins, né heldur taka dætur þeirra sonum vorum til handa.31Enn fremur, að þegar hinir heiðnu íbúar landsins kæmu með torgvörur og alls konar korn á hvíldardegi til sölu, þá skyldum vér eigi kaupa það af þeim á hvíldardegi eða öðrum helgum degi. Og að vér skyldum láta landið hvílast sjöunda árið og gefa upp öll veðlán.32Enn fremur lögðum vér á oss þá föstu kvöð að gefa þriðjung sikils á ári til þjónustunnar í musteri Guðs vors,33til raðsettu brauðanna, hinnar stöðugu matfórnar og hinnar stöðugu brennifórnar, til fórnanna á hvíldardögum og tunglkomudögum, til hátíðafórnanna, þakkarfórnanna og syndafórnanna, til þess að friðþægja fyrir Ísrael, og til allra starfa í musteri Guðs vors.34Og vér, prestarnir, levítarnir og lýðurinn vörpuðum hlutum um viðargjöfina, um að færa viðinn í musteri Guðs vors eftir ættum vorum á tilteknum tíma á ári hverju til þess að brenna honum á altari Drottins Guðs vors, eins og fyrir er mælt í lögmálinu.35Vér skuldbundum oss og til að færa frumgróða akurlands vors og frumgróða allra aldina af hvers konar trjám á ári hverju í musteri Drottins,36og sömuleiðis frumburði sona vorra og fénaðar, eins og fyrir er mælt í lögmálinu, og að færa frumburði nauta vorra og sauðfjár í musteri Guðs vors, til prestanna, er gegna þjónustu í musteri Guðs vors.37Frumgróðann af deigi voru og fórnargjöfum vorum og aldinum allra trjáa, aldinlegi og olíu viljum vér og færa prestunum inn í herbergi musteris Guðs vors og levítunum tíund af akurlandi voru, því að þeir, levítarnir, heimta saman tíundina í öllum akuryrkjuborgum vorum.38Og prestur, Aronsniðji, skal vera hjá levítunum, þá er þeir heimta saman tíundina, og levítarnir skulu færa tíund tíundarinnar upp í musteri Guðs vors, inn í herbergi féhirslunnar.39Því að í þessi herbergi skulu Ísraelsmenn og levítarnir færa fórnargjöf korns og aldinlagar og olífuolíu, þar eð hin helgu ker, prestarnir, er þjónustu gegna, hliðverðirnir og söngvararnir eru þar. Og eigi viljum vér yfirgefa musteri Guðs vors.

10.1-9 Sbr Neh 12.1-7
10.31 Tengjast ekki framandi þjóðum Esr 9.2+
10.32 Ekki verlsa á hvíldardegi Neh 13.15-22; 2Mós 20.8-11+ – hvílast sjöunda árið 3Mós 25.1+
10.33 Skattur til musterisins 2Mós 30.13+
10.39 Tíund tíundarinnar 4Mós 18.26