1Í upphafi ríkisstjórnar Sedekía Jósíasonar, konungs í Júda, kom þetta orð til Jeremía frá Drottni:2Svo sagði Drottinn við mig: Gjör þér bönd og ok og legg um háls þér3og gjör konunginum í Edóm og konunginum í Móab og konungi Ammóníta og konunginum í Týrus og konunginum í Sídon orðsending með sendimönnunum, sem komnir eru til Jerúsalem til Sedekía Júdakonungs,4og bjóð þeim að mæla svo til herra sinna: Svo sagði Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Svo skuluð þér segja við herra yðar:5Ég hefi gjört jörðina og mennina og skepnurnar, sem á jörðinni eru, með mínum mikla mætti og útrétta armlegg, og ég gef þetta þeim, er mér þóknast.6Og nú gef ég öll þessi lönd á vald Nebúkadnesars Babelkonungs, þjóns míns. Jafnvel dýr merkurinnar gef ég honum, til þess að þau þjóni honum.7Og allar þjóðir skulu þjóna honum og syni hans og sonarsyni hans, þar til er einnig tími hans lands kemur og voldugar þjóðir og miklir konungar gjöra hann að þræl sínum.8Og sú þjóð og það konungsríki, sem ekki vill þjóna honum, Nebúkadnesar Babelkonungi, og ekki beygja háls sinn undir ok Babelkonungs, þeirrar þjóðar mun ég vitja með sverði, hungri og drepsótt segir Drottinn uns ég hefi gjöreytt þeim fyrir hans hendi.9Hlýðið ekki á spámenn yðar né spásagnarmenn, né drauma yðar, né á galdramenn yðar né töframenn, þá er þeir mæla til yðar á þessa leið: Þér munuð ekki þjóna Babelkonungi.10Því að þeir boða yður lygar til þess að flæma yður úr landi yðar, svo að ég reki yður burt og þér farist.11En þá þjóð, sem beygir háls sinn undir ok Babelkonungs og þjónar honum, hana vil ég láta vera kyrra í landi sínu segir Drottinn til þess að hún yrki það og byggi.12Og við Sedekía Júdakonung talaði ég öldungis á sama hátt: Sveigið háls yðar undir ok Babelkonungs og þjónið honum og þjóð hans, þá munuð þér lífi halda.13Hví viljið þér, þú og þjóð þín, deyja fyrir sverði, af hungri og drepsótt, eins og Drottinn hefir hótað þeim þjóðum, er eigi vilja þjóna Babelkonungi?14Hlýðið eigi á orð spámannanna, er segja við yður: Þér munuð eigi þjóna Babelkonungi! Því að þeir boða yður lygar.15Því að ég hefi ekki sent þá segir Drottinn heldur spá þeir ranglega í mínu nafni, til þess að ég reki yður burt og þér farist, ásamt spámönnunum, er yður hafa spáð.16Við prestana og allan þennan lýð hefi ég og talað á þessa leið: Svo segir Drottinn: Hlýðið eigi á orð spámanna yðar, er spá yður og segja: Sjá, áhöldin úr musteri Drottins munu bráðlega verða flutt heim aftur frá Babýlon! því að þeir boða yður lygar.17Hlýðið eigi á þá. Þjónið heldur Babelkonungi, þá munuð þér lífi halda! Hví á þessi borg að verða að rúst?18En séu þeir spámenn og sé orð Drottins hjá þeim, þá biðja þeir Drottin allsherjar, að áhöld þau, sem enn eru eftir í musteri Drottins og í höll Júdakonungs og í Jerúsalem, fari eigi líka til Babýlon.19Því að svo segir Drottinn allsherjar um súlurnar, um hafið og um undirstöðupallana og um hin önnur áhöld, sem eftir eru í þessari borg,20þau er Nebúkadnesar Babelkonungur ekki tók, þá er hann herleiddi Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, frá Jerúsalem til Babýlon, ásamt öllum tignarmönnum Júda og Jerúsalem,21já, svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð, um áhöldin, sem eftir eru í musteri Drottins og höll Júdakonungs og í Jerúsalem:22Til Babýlon skulu þau flutt verða og þar skulu þau vera, allt til þess dags, er ég vitja þeirra segir Drottinn og sæki þau og flyt þau aftur á þennan stað.

27.1 Jójakím Jer 1.3+
27.2 Spámannlegar athafnir Jer 13.1+ ; sbr Jes 20.3
27.5 Guð skapari Jer 10.12; Jes 44.24+ ; Slm 33.9 – með mætti Jer 21.5+ – ég gef Dan 4.14
27.6 Þjónn minn Jer 25.9+
27.7 Honum, syni og sonarsynir sbr Jer 25.11; 29.10 – tími yfir landið Jer 25.26
27.8 Vilji ekki þjóna Bar 2.22 – Nebúkadnesar Jer 21.2+ – ok konungsins í Babýlom Jer 27.11,12; 28.2,11 – sverð, hungur, drepsótt Jer 14.12+ – útrýma Jer 24.10
27.9 Spá heill Jer 23.17+
27.10 Boða lygar Jer 14.14+ ; Esk 13.2-23
27.11 Búa í landinu Jer 42.12
27.15 Ekki í mínu nafni Jer 14.14+
27.18 Fyrirbón spámanna Jer 7.16+
27.22 Musterið rænt Jer 28.3; 52.18; 2Kon 25.13-15 – í mína vörslu Jer 29.10; 32.5; sbr 23.2 – flyt aftur Esr 1.7-11