1Hann kallaði saman þá tólf og gaf þeim mátt og vald yfir öllum illum öndum og til að lækna sjúkdóma.2Hann sendi þá að boða Guðs ríki og græða sjúka3og sagði við þá: Takið ekkert til ferðarinnar, hvorki staf né mal, brauð né silfur, og enginn hafi tvo kyrtla.4Og hvar sem þér fáið inni, þar sé aðsetur yðar og þaðan skuluð þér leggja upp að nýju.5En taki menn ekki við yður, þá farið úr borg þeirra og hristið dustið af fótum yðar til vitnisburðar gegn þeim.6Þeir lögðu af stað og fóru um þorpin, fluttu fagnaðarerindið og læknuðu hvarvetna.7En Heródes fjórðungsstjóri frétti allt, sem gjörst hafði, og vissi ekki, hvað hann átti að halda, því sumir sögðu, að Jóhannes væri risinn upp frá dauðum,8aðrir, að Elía væri kominn fram, enn aðrir, að einn hinna fornu spámanna væri risinn upp.9Heródes sagði: Jóhannes lét ég hálshöggva, en hver er þessi, er ég heyri þvílíkt um? Og hann leitaði færis að sjá hann.10Postularnir komu aftur og skýrðu Jesú frá öllu því, er þeir höfðu gjört, en hann tók þá með sér og vék brott til bæjar, sem heitir Betsaída, að þeir væru einir saman.11Mannfjöldinn varð þess var og fór á eftir honum. Hann tók þeim vel og talaði við þá um Guðs ríki og læknaði þá, er lækningar þurftu.12Nú tók degi að halla. Komu þá þeir tólf að máli við hann og sögðu: Lát þú mannfjöldann fara, að þeir geti náð til þorpa og býla hér í kring og náttað sig og fengið mat, því að hér erum vér á óbyggðum stað.13En hann sagði við þá: Gefið þeim sjálfir að eta. Þeir svöruðu: Vér eigum ekki meira en fimm brauð og tvo fiska, nema þá vér förum og kaupum vistir handa öllu þessu fólki.14En þar voru um fimm þúsund karlmenn. Hann sagði þá við lærisveina sína: Látið þá setjast í hópa, um fimmtíu í hverjum.15Þeir gjörðu svo og létu alla setjast.16En hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði fyrir þau og braut og gaf lærisveinunum að bera fram fyrir mannfjöldann.17Og þeir neyttu allir og urðu mettir. En leifarnar eftir þá voru teknar saman, tólf körfur brauðbita.18Svo bar við, að hann var einn á bæn og lærisveinarnir hjá honum. Þá spurði hann þá: Hvern segir fólkið mig vera?19Þeir svöruðu: Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir, að einn hinna fornu spámanna sé risinn upp.20Og hann sagði við þá: En þér, hvern segið þér mig vera? Pétur svaraði: Krist Guðs.21Hann lagði ríkt á við þá að segja þetta engum22og mælti: Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa á þriðja degi.23Og hann sagði við alla: Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.24Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því.25Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en týna eða fyrirgjöra sjálfum sér?26En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð sinni og föðurins og heilagra engla.27En ég segi yður með sanni: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Guðs ríki.28Svo bar við um átta dögum eftir ræðu þessa, að hann tók með sér þá Pétur, Jóhannes og Jakob og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir.29Og er hann var að biðjast fyrir, varð yfirlit ásjónu hans annað, og klæði hans urðu hvít og skínandi.30Og tveir menn voru á tali við hann. Það voru þeir Móse og Elía.31Þeir birtust í dýrð og ræddu um brottför hans, er hann skyldi fullna í Jerúsalem.32Þá Pétur og félaga hans sótti mjög svefn, en nú vöknuðu þeir og sáu dýrð hans og mennina tvo, er stóðu hjá honum.33Þegar þeir voru að skilja við Jesú, mælti Pétur við hann: Meistari, gott er, að vér erum hér. Gjörum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina. Ekki vissi hann, hvað hann sagði.34Um leið og hann mælti þetta, kom ský og skyggði yfir þá, og urðu þeir hræddir, er þeir komu inn í skýið.35Og rödd kom úr skýinu og sagði: Þessi er sonur minn, útvalinn, hlýðið á hann!36Er röddin hafði talað, var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu því, sem þeir höfðu séð.37Daginn eftir, er þeir fóru ofan af fjallinu, kom mikill mannfjöldi á móti honum.38Og maður nokkur úr mannfjöldanum hrópar: Meistari, ég bið þig að líta á son minn, því að hann er einkabarnið mitt.39Það er andi, sem grípur hann, og þá æpir hann skyndilega. Hann teygir hann svo að hann froðufellir, og víkur varla frá honum og er að gjöra út af við hann.40Ég bað lærisveina þína að reka hann út, en þeir gátu það ekki.41Jesús svaraði: Ó, þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá yður og umbera yður? Fær þú hingað son þinn.42Þegar hann var að koma, slengdi illi andinn honum flötum og teygði hann ákaflega. En Jesús hastaði á óhreina andann, læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans.43Og allir undruðust stórum veldi Guðs. Þá er allir dáðu allt það, er hann gjörði, sagði hann við lærisveina sína:44Festið þessi orð í huga: Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur.45En þeir skildu ekki þessi orð, og þetta var þeim hulið, svo að þeir skynjuðu það ekki. Og þeir þorðu ekki að spyrja hann um þetta.46Sú spurning kom fram meðal þeirra, hver þeirra væri mestur.47Jesús vissi, hvað þeir hugsuðu í hjörtum sínum, og tók lítið barn, setti það hjá sér48og sagði við þá: Hver sem tekur við þessu barni í mínu nafni, tekur við mér, og hver sem tekur við mér, tekur við þeim, er sendi mig. Því að sá sem minnstur er meðal yðar allra, hann er mestur.49Jóhannes tók til máls: Meistari, vér sáum mann reka út illa anda í þínu nafni, og vildum vér varna honum þess, af því að hann fylgir oss ekki.50En Jesús sagði við hann: Varnið þess ekki. Sá sem er ekki á móti yður, er með yður.51Nú fullnaðist brátt sá tími, er hann skyldi upp numinn verða. Beindi hann þá augum til Jerúsalem, einráðinn að fara þangað.52Og hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu.53En þeir tóku ekki við honum, því hann var á leið til Jerúsalem.54Þegar lærisveinar hans, þeir Jakob og Jóhannes, sáu það, sögðu þeir: Herra, eigum vér að bjóða, að eldur falli af himni og tortími þeim?55En hann sneri sér við og ávítaði þá og sagði: Ekki vitið þið, hvers anda þið eruð.56Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. Og þeir fóru í annað þorp.57Þegar þeir voru á ferð á veginum, sagði maður nokkur við hann: Ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð.58Jesús sagði við hann: Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.59Við annan sagði hann: Fylg þú mér! Sá mælti: Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.60Jesús svaraði: Lát hina dauðu jarða sína dauðu, en far þú og boða Guðs ríki.61Enn annar sagði: Ég vil fylgja þér, herra, en leyf mér fyrst að kveðja fólk mitt heima.62En Jesús sagði við hann: Enginn, sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur, er hæfur í Guðs ríki.

9.1-6 Hlst. Matt 10.5-15; Mrk 6.7-13
9.1 Hinir tólf Matt 10.2+
9.2 Boða Matt 3.1+ ; Mrk 1.4+ – Guðs ríki Matt 3.2+ ; 6.10+
9.4 Aðsetur ykkar Lúk 10.5-7
9.5 Hristið dustið Lúk 10.11; Post 13.51; 18.6
9.7-9 Hlst. Matt 14.1-12; Mrk 6.14-29
9.7 Heródes fjórðungsstjóri Matt 14.1+
9.7-8 Hver er Jesús? Lúk 9.19 og hlst. – Jóhannes skírari Matt 3.1+ – Elía Matt 11.14+ – Jesús talinn spámaður Matt 16.14+
9.9 Vildi sjá hann Lúk 23.8
9.10-17 Hlst. Matt 14.13-21; Mrk 6.30-44; Jóh 6.1-14
9.10 Potularnir Lúk 6.13+ – Betsaída Matt 11.21+
9.13 Brauð og fiskar Matt 15.34; Mrk 8.5; Jóh 6.9
9.17 Mettir 2Mós 16.4,12; Slm 78.29; Jóh 6.12 – leifarnar 2Kon 4.44
9.18-20 Hlst. Matt 16.13-19; Mrk 8.27-29
9.18 Jesús á bæn Lúk 3.21+
9.19 Sbr Lúk 9.7-8
9.20 En þið? Jóh 6.67 – Pétur Matt 4.18+ – Kristur Lúk 3.15+ ; 4.41+ ; sbr Jóh 6.69
9.21-27 Hlst. Matt 16.20-28; Mrk 8.30-9.1
9.22 Á margt að líða Lúk 9.44 og hlst.; 18.31-34 og hlst. – Mannssonurinn Matt 8.20+ – öldungar, æðstu prestar og fræðimenn Mrk 11.27+
9.23 Fylgja Jesú Matt 4.19+ – taka kross sinn Matt 10.38; Lúk 14.27
9.24 Bjarga lífi sínu Matt 10.39; Lúk 17.33; sbr Jóh 12.25-26
9.26 Blygðast sín Matt 10.33; Lúk 12.9; 2Tím 2.12 – Mannssonurinn Matt 8.20+ – koma hans Matt 10.23+ – í dýrð hans Lúk 9.32; 24.26
9.27 Sjá Guðs ríki sbr Lúk 9.32
9.28-36 Hlst. Matt 17.1-8; Mrk 9.2-8;
9.28 Pétur, Jakob og Jóhannes Matt 17.1+ – bæn Jesú Lúk 3.21+
9.30 Elía Matt 11.14+ ; 2Kon 2.11-12 – Móse 5Mós 18.15,18; 34.5-6
9.31 Birtust í dýrð 2Mós 34.29-35; 2Kor 3.7-11 – dýrð Róm 5.2; 8.18,21; 1Kor 2.7; 15.43; 2Kor 3.18; 4.17; Fil 3.21; Kól 1.27; 3.4; 1Þess 2.12; 2Þess 2.14 – í Jerúsalem Lúk 9.22,51; 13.33
9.32 Sáu dýrð hans Jóh 1.14; 2Pét 1.16
9.34 Ský Matt 17.5+ ; sbr Lúk 1.35
9.35 Sonur minn útvalinn Jes 49.7; Matt 3.17+ og hlst.; 2Pét 1.17-18; sbr Jóh 1.34
9.37-43a Hlst. Matt 17.14-18; Mrk 9.17-27
9.38 Einkabarn Lúk 7.12
9.42 Læknaði sveininn Lúk 7.15+
9.43b-45 Hlst. Matt 17.22-23; Mrk 9.30-32
9.43 Undruðust veldi Guðs Lúk 1.63+
9.44 Mannssonurinn Matt 8.20+ – framseldur Lúk 18.32 og hlst.
9.45 Skildu ekki Lúk 18.34
9.46-48 Hlst. Matt 18.1-5; Mrk 9.33-37
9.46 Mestur Lúk 22.24
9.47 Vissi, hvað þeir hugsuðu Lúk 6.8+
9.48 Taka við Jesú Matt 10.40; Lúk 10.16; Jóh 13.20; sbr Gal 4.14
9.49-50 Hlst. Mrk 9.38-40
9.49 Ráku út anda í Jesú nafni Post 16.18; 19.13
9.50 Ekki á móti ykkur … Matt 12.30; Mrk 9.40; Lúk 11.23
9.51 Tíminn nálgast Lúk 9.31 – til Jerúsalem Lúk 13.22; 17.11
9.52 Samverjar 2Kon 17.24-41; Sír 50.25-26; Jóh 4.9; sbr Lúk 10.33-37; 17.16-19; Post 8.2-25
9.53 Gyðingar og Samverjar Jóh 4.9
9.54 Jakob og Jóhannes Matt 4.21+ – eldur af himni 2Kon 1.10-12
9.57-62 Hlst. Matt 8.19-22
9.59 Fylg þú mér Matt 4.19+
9.61 Leyf mér fyrst … 1Kon 19.20
9.62 Guðs ríki Matt 3.2+ ; 6.10+