1Æ, hversu hylur Drottinn í reiði sinni dótturina Síon skýi. Frá himni varpaði hann til jarðar vegsemd Ísraels og minntist ekki fótskarar sinnar á degi reiði sinnar.2Vægðarlaust eyddi Drottinn öll beitilönd Jakobs, reif niður í bræði sinni vígi Júda-dóttur, varpaði til jarðar, vanhelgaði ríkið og höfðingja þess,3hjó af í brennandi reiði öll horn Ísraels, dró að sér hægri hönd sína frammi fyrir óvinunum og brenndi Jakob eins og eldslogi, sem eyðir öllu umhverfis.4Hann benti boga sinn eins og óvinur, hægri hönd hans stóð föst eins og mótstöðumaður og myrti allt sem auganu var yndi í tjaldi dótturinnar Síon, jós út heift sinni eins og eldi.5Drottinn kom fram sem óvinur, eyddi Ísrael, eyddi allar hallir hans, umturnaði virkjum hans og hrúgaði upp í Júda-dóttur hryggð og harmi.6Hann hefir rifið niður skála sinn eins og garð, umturnað hátíðastað sínum. Drottinn lét gleymast í Síon hátíðir og hvíldardaga og útskúfaði í sinni áköfu reiði konungi og prestum.7Drottinn hefir hafnað altari sínu, smáð helgidóm sinn, ofurselt í óvina hendur hallarmúra hennar. Þeir létu óp glymja í musteri Drottins eins og á hátíðardegi.8Drottinn hafði ásett sér að eyða múr dótturinnar Síon. Hann útþandi mælivaðinn, aftraði eigi hendi sinni að eyða og steypti sorg yfir varnarvirki og múr, þau harma bæði saman.9Hlið hennar eru sokkin í jörðu, hann ónýtti og braut slagbranda hennar. Konungur hennar og höfðingjar eru meðal heiðingjanna, lögmálslausir, spámenn hennar fá ekki heldur framar vitranir frá Drottni.10Þeir sitja þegjandi á jörðinni, öldungar dótturinnar Síon, þeir hafa ausið mold yfir höfuð sín, gyrst hærusekk, höfuð létu hníga að jörðu Jerúsalem-meyjar.11Augu mín daprast af gráti, iður mín ólga, hjarta mitt ætlar að springa yfir tortíming dóttur þjóðar minnar, er börn og brjóstmylkingar hníga magnþrota á strætum borgarinnar.12Þau segja við mæður sínar: Hvar er korn og vín? er þau hníga magnþrota eins og dauðsærðir menn á strætum borgarinnar, er þau gefa upp öndina í faðmi mæðra sinna.13Hvað á ég að taka til dæmis um þig, við hvað líkja þér, þú dóttirin Jerúsalem? Hverju á ég að jafna við þig til að hugga þig, þú mærin, dóttirin Síon? Já, sár þitt er stórt eins og hafið, hver gæti læknað þig?14Spámenn þínir birtu þér tálsýnir og hégóma, en drógu ekki skýluna af misgjörð þinni til þess að snúa við högum þínum, heldur birtu þér spár til táls og ginninga.15Yfir þér skelltu lófum saman allir þeir er um veginn fóru, blístruðu og skóku höfuðið yfir dótturinni Jerúsalem: Er þetta borgin, hin alfagra, unun allrar jarðarinnar?16Yfir þér glenntu upp ginið allir óvinir þínir, blístruðu og nístu tönnum, sögðu: Vér höfum gjöreytt hana! Já, eftir þessum degi höfum vér beðið, vér höfum lifað hann, vér höfum séð hann!17Drottinn hefir framkvæmt það, er hann hafði ákveðið, efnt orð sín, þau er hann hefir boðið frá því forðum daga, hefir rifið niður vægðarlaust og látið óvinina fagna yfir þér, hann hóf horn fjenda þinna.18Hrópa þú hátt til Drottins, þú mærin, dóttirin Síon. Lát tárin renna eins og læk dag og nótt, unn þér engrar hvíldar, auga þitt láti ekki hlé á verða.19Á fætur! Kveina um nætur, í byrjun hverrar næturvöku, úthell hjarta þínu eins og vatni frammi fyrir augliti Drottins, fórnaðu höndum til hans fyrir lífi barna þinna, sem hníga magnþrota af hungri á öllum strætamótum.20Sjá, Drottinn, og lít á, hverjum þú hefir gjört slíkt! Eiga konur að eta lífsafkvæmi sín, börnin sem þær bera á örmum? Eiga myrtir að verða í helgidómi Drottins prestar og spámenn?21Vegnir liggja á strætunum sveinar og öldungar. Meyjar mínar og æskumenn féllu fyrir sverði, þú myrtir á degi reiði þinnar, slátraðir vægðarlaust.22Þú stefnir eins og á hátíðardegi skelfingum að mér úr öllum áttum. Á reiðidegi Drottins var enginn, er af kæmist og eftir yrði. Þá sem ég hefi fóstrað og uppalið, þá hefir óvinur minn afmáð.

2.1 Vegsemd Ísraels Jes 60.7; 64.10 – fótskör Drottins Jes 66.1; Esk 43.7; Slm 199.5; 132.7; 1Kro 28.2
2.2 Reif niður vígin 5Mós 28.52
2.3 Horn afhöggvin Jer 48.25; Slm 75.11
2.4 Eins og fjandmaður Jer 21.5-6 – heift Drottins Jes 42.25
2.5 Hryggð og harmur Jes 29.2
2.6 Hátíðastefnur Hlj 1.4+ – umturna Jer 52.13; 2Kro 36.19 – áköf reiði Sef 3.8
2.7 Hafnar altari sínu Esk 24.21; Slm 89.40
2.8 Spellvirki Jer 5.10 – mælisnúra 2Kon 21.13; Jes 34.11
2.9 Í útlegð 5Mós 28.36; 2Kon 25.7 – leiðsögn 5Mós 4.5-8 – spámenn Slm 74.9 – fá ekki vitranir Esk 7.26
2.10 Mold, hærusekkur Jer 6.26
2.11 Helsár þjóð Jer 8.21-22
2.13 Dóttirin Jerúsalem Hlj 1.15+ – hugga þig Jes 51.19 – hver læknar? Jer 30.12
2.14 Tálsýnir Jer 23.9-40; 28; 29.8-9; Esk 12.24; 13.6-23; 21.34; 22.28
2.15 Hrista höfuðuð Slm 22.8+ – borgin alfagra Esk 16.14; Slm 50.2 – yndi gjörvallrar jarðar Jes 60.15; Slm 48.3
2.17 Drottinn lætur rætast 5Mós 28.15
2.19 Fórna höndum Hlj 3.41; Slm 28.2+ ; 44.21; 141.2 – á öllum gatnamótum Hlj 4.1; Jes 51.20
2.20 Sjá, Drottinn … Hlj 1.9+ – eta börnin sín Hlj 4.10; 3Mós 26.29; 5Mós 28.53-57; 2Kon 6.28-29; Jes 49.26; Jer 19.9; Esk 5.10; Bar 2.3
2.22 Hátíð Hlj 1.4+ – hvaðanæva Jer 6.25; 20.3,10; Slm 31.14