1Þar kom, að vér þoldum ekki lengur við og réðum þá af að verða einir eftir í Aþenu,2en sendum Tímóteus, bróður vorn og aðstoðarmann Guðs við fagnaðarerindið um Krist, til að styrkja yður og áminna í trú yðar,3svo að enginn láti bifast í þrengingum þessum. Þér vitið sjálfir, að þetta er oss ætlað.4Þegar vér vorum hjá yður, þá sögðum vér yður fyrir, að vér mundum verða að þola þrengingar. Það kom líka fram, eins og þér vitið.5Því þoldi ég ekki lengur við og sendi Tímóteus til að fá að vita um trú yðar, hvort freistarinn kynni að hafa freistað yðar og erfiði vort orðið til einskis.6En nú er hann aftur kominn til vor frá yður og hefur borið oss gleðifregn um trú yðar og kærleika, að þér ávallt munið eftir oss með hlýjum hug og yður langi til að sjá oss, eins og oss líka til að sjá yður.7Sökum þessa höfum vér, bræður, huggun hlotið vegna trúar yðar þrátt fyrir alla neyð og þrengingu.8Nú lifum vér, ef þér standið stöðugir í Drottni.9Hvernig getum vér nógsamlega þakkað Guði fyrir alla þá gleði, er vér höfum af yður frammi fyrir Guði vorum?10Og vér biðjum nótt og dag, heitt og af hjarta, að fá að sjá yður og bæta úr því, sem trú yðar er áfátt.11Sjálfur Guð og faðir vor og Drottinn vor Jesús greiði veg vorn til yðar.12En Drottinn efli yður og auðgi að kærleika hvern til annars og til allra, eins og vér berum kærleika til yðar.13Þannig styrkir hann hjörtu yðar, svo að þér verðið óaðfinnanlegir og heilagir frammi fyrir Guði, föður vorum, við komu Drottins vors Jesú ásamt öllum hans heilögu.

3.2 Tímóteus Post 16.1+ – samverkamaður Guðs 1Kor 3.9
3.3 Þrengingar þessar Mrk 13 og hlst; Post 14.22; Opb 2.9-10; 7.14 – bifast ekki Ef 3.13 – er að vænta 2Tím 3.12
3.4 Þola þrengingar Post 14.22
3.5 Erfiði til einskis Fil 2.16
3.6 Trú og kærleikur 2Þess 1.3
3.7-8 Standið stöðug 2Þess 1.4; 2.15
3.10 Áfátt Fil 1.25; 2Þess 1.3
3.12 Eflast að kærleika Fil 1.9; 1Þess 4.10 – til allra 1Þess 5.15
3.13 Óaðfinnanleg Fil 1.10 – koma Drottins vors 1Kor 1.8; 1Þess 5.23 – ásamt öllum hans heilögu 5Mós 33.3; Sak 14.5; Dan 7.25,27; Matt 25.31; 1Þess 4.16; 2Þess 1.7; Opb 14.10